Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, fjórar skrifaðar síður. Þær eru undirritaðar af Ólafi Briem. Svör eru rituð aftan við, undirrituð af Guðmundi Ólafssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.
Bókin er merkt sem III árgangur 1912, 1. blað. Fyrstur ritar Ólafur Sigurðsson Hellulandi 1912. Bókin inniheldur handskrifaðar skemmtisögur, gátur , smælki og ljóð eftir hina ýmsu ritara. Þar eru hinar ýmsu hugleiðingar t.d .Sjö grundvallareglur góðs uppeldis, Andlegur auður ( bækur) .
Bókin er án kápu í lélegu ástandi, blettótt og heftuð saman. Bókin inniheldur handskrifaðar skemmtisögur, gátur , smælki og ljóð eftir hina ýmsu ritara. Gáta: Í gleði og sút hef ég gildi tvenn. Til gangs menn mig elta, en skaða njóta Í reiða er ég hafður, um háls ég renn. Til höfuðs ég stíg, en er bundinn til fóta.