Árni Sveinsson kennari frá Kálfsstöðum með barnaskólakrakka í Brekkukoti í Hjaltadal 1943-1944. Aftari röð frá vinstri: Fríða Ólafsdóttir, Ragnar Sveinsson, Kristín Þórhallsdóttir, Ragna Sigurðardóttir og Konkordía Rósmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Þórhallsson, Sigurlaug Pálsdóttir, Margrét Haraldsdóttir, Trausti Pálsson, Rögnvaldur Haraldsson, Sævar Guðmundsson og loks Anna Pálsdóttir yngst á myndinni.
Kennarar í gamla Barnaskólanum V/ Aðalgötu frá vinstri: Magnús Bjarnason (1900-1975) kennari á Sauðárkróki. - Friðrik Hansen (1891-1953) kennari og skáld Sauðárkróki- Þorvaldur Guðmundsson (1883-1961) kennari Sauðárkróki og Jón Þ. Björnsson (1882-1964) skólastjóri á Sauðárkróki.
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki fylgdist með og skráði líkamlegan þroska skólabarna á tímabilinu 1914-1953. Í þessari bók skráir hann niður mælingar á börnum frá 1931 til 1943. Mæld var hæð, þyngd, brjóstmál (brjóstkassi), kraftur/afl og andrými.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Skjal til undirritunar fyrir samskot í sjóðinn, undirritað af stofnendum sjóðsins. Á skjalinu eru nöfn tveggja gefenda, rituð með hendi Guðmundar Davíðssonar á Hraunum.
Pappírskópía, framkölluð í brúntónum og límd á pappaspjald. Myndin er heilleg en nokkur óhreinindi á henni. Á henni er hópur pilta, líklega skólapiltar. Staðsetning og nöfn þeirra sem á myndinni eru óþekkt.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Um er að ræða skólaspjald frá Menntaskólanum á Akureyri. Á myndinni er m.a. Stefán Stefánsson skólameistari, auk kennara og nemenda.
Skjalið er handskrifað með blýanti á eina örk í stærðinni 33,7x21 cm. Blaðið virðist rifið úr bók og er nokkuð af brotum og rifum í því. Fundargerðin er undirrituð en hefur ef til vill verið hreinrituð síðar. Um frumrit er að ræða.
Skýrslan, sem fjallar um framvindu verkefnisins Námsumhverfi og samskipti er 16 fjölritaðar síður, auk kápu. Hún er tekin saman af umsjónarmönnum verkefnisins, sem framkvæmt var af skólastjórum og kennurum í Skagafirði.
Barnafræðsluskýrslur árin 1920-1966. Ritið er 81 bls auk kápu og er heftað og kjallímt, A4 stærð. Það er gefið út af Hagstofu Íslands og er hluti af hagskýrslum, aukaflokki nr 1.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v. Björg Línberg Runólfsdóttir, Guðrún Hulda Pálmadóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, Kristín S. Björnsdóttir og Steinar Sörensson. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Þórunn Snorradóttir, Kristín S. Björnsdóttir og Sigurlaug Einarsdóttir. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Þórunn Snorradóttir, Kristín S. Björnsdóttir, Sigurlaug Einarsdóttir og Guðni Sigurður Óskarsson. Fremst sér aftan á Björgu Línberg Runólfsdóttur. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Með liggur reikningur fyrir fæði Guðmundar Jónssonar farkennara í Rípurhreppi veturinn 1920-1921.
Þrír Skiptinemar frá Bandaríkjunum á vegum AFS skiptinemasamtakanna, sem dvalið höfðu í Skagafirði ásamt AFS deildinni á Sauðárkróki í ágúst 1987. F.v. Þorkell Þorsteinsson kennari, þá skiptinemarnir þrír, Rannveig Jónasdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir með Valdísi Dröfn.
Laus blöð sem heftuð hafa verið saman og stílabókarkápu brugðið utan um. Fundargerðir fundarhalda hjá nemendum í Ungmennaskóla Sauðárkróks 1936-1944. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og aðra í A5 stærð. Það varðar samning um skólamál í Hofsós-, Hofs- og Fellshreppum. Ástand skjalsins er gott.
Vélritað hefti í A5 broti, alls 16 síður. Með liggur annað hefti sem virðist að flestu eins, nema hvað höfundar er þar getið. Ástand skjalanna er gott.
Svörin eru handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Farið hefur verið yfir verkefnið og gefin einkunn fyrir það. Þau varða verkefni bréfaskólans, 1. kennslubréf. Ástand er gott.
Bókin er heftuð saman og límt yfir kjölinn. Stærð hennar er 17,4 x 11,7 cm. Á titilsíðu er handskrifað "Uppdráttardæmi." Í bókinni eru skrifuð reikningsdæmi. Með liggur ljósritað blað með upplýsingum um ættir Egils ásamt minnismiða frá starfsmanni sem veitti bókinni viðtöku.
Blöðungur í A5 broti, alls 16 bls. Um er að ræða sérprentun úr Lög og reglur um skóla- og menningarmál á Íslandi." Búið er að skrifa ýmsar athugasemdir í blöðunginn.
Skýrslan er 14 fjölritaðar bls. í A4 stærð, auk forsíðu og baksíðu. Ársskýrsla ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á vegum fræðsluskrifstofanna á Norðurlandi.
Bréf í A4 stærð. Bréfið er frá bæjarstjóranum á Sauðárkróki og með því fylgir útskrift úr fundargerð þar sem forsvarsmenn skólamála ræddu hugsanlegt samstarf um Gagnfræðaskóla á Sauðárkróki.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.