Ósk um að rífa niður timburskúr er áfastur er íbúðarhúsi hans á Skógargötu 5 (Seylu), endurbyggja skúrinn og gera glugga. Samþykkt í fundargerð. Sá sem teiknar uppþráttinn skrifar undir G.S.
Efni bréfs: Sigrún Aadnegard, formaður S.S.K. skrifar bréf til formanna kvenfélaganna og er þar m.a. minnst á komandi formannafund. Meðfylgjandi er bréf frá Sambandi borgfirskra kvenna.
Efni bréfs: Bréf til formanna kvenfélaganna, frá formanni S.S.K. Handskrifuð undirskrift Sigrúnar Aadnegard. Tilgreindar eru þær konur sem skipuðu vinnuvökunefndina: Margrét Gunnarsdóttir, Sauðárkróki Guðrún Andrésdóttir, Sauðárkróki Kristbjörg Bjarnadóttir, Litlu-Brekku Hólmfríður B. Pétursdóttir, Stórholti María Guðfinnsdóttir, Ökrum
Efni bréfs: Bréfið varðar fundargerð formannafundar og fund um Samband norðlenskra kvenna. Meðfylgjandi eru punktar frá þeim fundi. Það bréf er dagsett 31. ágúst 1999 og skrifað af Margréti Gunnarsdóttur, ritara Sambands norðlenskra kvenna.
Bréf formanns Sambands skagfirskra kvenna, Sigrúnar Aadnegard, til formanna kvenfélaganna. Meðfylgjandi bréf frá stjórn Sambands norðlenskra kvenna, dagsett á Sauðárkróki 22.02.2004, auk stjórnarfundar Sambands skagfirskra kvenna, haldinn að Bergstöðum 19.01.2004. Vitnað er í bréfið og fundinn í bréfi Sigrúnar. Einnig er vitnað í leiksýningu frá Leikhúsmógúllnum ehf. og meðfylgjandi upplýsingar um sýninguna „100% „hitt““.
Nótur við ljóðið Andvökunótt. Höfundur ljóðs Margeir Jónsson. Höfundur lags Jón Björnsson (1934). Hluti upplýsinganna er límdur inn á blaðið með límbandi. Ástand skjalsins er gott.
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum C.F. Balslevs af Ólafi Pálssyni Bók merkt innan á kápu: Arngrímur Sigurðsson. Litlu-Gröf.
Balslevs biflíusögur handa unglingum / er íslenzkað hefir Ólafur Pálsson ; með viðbæti eptir Helga Einarsson. Balslev, Carl Frederik, 1805-1895. Ólafur Pálsson. Útgefandi Reykjavík : Ísafoldarprentsmiðja, 1896. Bókin er 160 bls. í stærðinni 13,8 x 9,5 sm.