Frá vinstri: Pálmi Sighvats með óþekktan krakka, Jónas Sölvason, Þorvaldur Þorvaldsson, Hjörtur Laxdal, Sigurður Tómasson, Sölvi og Maríus Sölvasynir Myndin er tekin 1934 eða 1935, en þá sprakk aðveituæð að stöðvarhúsi rafstöðvarinnar í Grjótklauf Safn Kr. C. Magnússonar
Akureyri. Tilgáta um hverjir eru á þessari mynd: F.v. Óskar Magnússon, Ásgrímur Sveinsson, Sigurð Pálsson (Jónsson), Þorvaldur Þorvaldsson, Hjörtur Laxdal og Björn Jóhannesson (Bjössi Ólínu).
Frá vinstri: Hjörtur Laxdal. Björn Jóhannesson, sjómaður. Sverrir Sigurðsson, lyfjafr. og lyfsali. Þorvaldur Þorvaldsson, kaupmaður. Frank Micelsen, úrsmiður. Svavar Guðmundsson, verslunarmaður og söngvari. Ekki er vitað um nafn barnsins. Þegar myndin er tekin eru þeir allir búsetti á Sauðárkróki, minnisvarði í baksýn.
Frá vinstri: Björn Jóhannesson, sjómaður á Sauðárkróki og í Reykjavík. Hjörtur Laxdal, frá Sauðárkróki. Guðjón Sigurðsson, bakari á Sauðárkróki. Sigurður P. Jónsson, kaupmaður og bæjarfulltrúi á Sauðárkróki.
Neðstur er Sighvatur P. Sighvatz, aftan við hann Sigfús Guðmundsson, Sauðárkróki. Efst standa frá vinstri Sigurður Tómasson, Hjörtur Laxdal og Pálmi P. Sighvatz, Sauðárkróki
Frá vinstri Flovent Albertson, "Bensi á Spítalanum", Hjörtur Laxdal, Herbert Jónsson og Ingólfur Andrésson. Á myndinni til hægri eru sömu án Hjartar Laxdal.