2 bréf frá Ingunni Árnadóttir. Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar. Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
5 handskrifuð bréf frá Elsu Þuríði til Guðlaugar. 1 úrklippa úr blaðinu "Laugarnesskólinn" sem sýnir sýnishorn úr ritsmíðum og teikningum nemenda skólans. Þar er lítil grein eftir Elsu.
7 albúm, nokkur umslög, leikfélagsmyndir frá Kára Jónssyni, Bréf frá Stefáni Jónssyni arkitekt, uppdráttur af húsaskipan bændaskólans á Hólum. 80 ljósmyndir og 104 filmur úr dánarbúi bakarahjónanna Guðjóns og Ólínu.
Ljósmyndir frá Ríkharði Jónssyni myndhöggvara varðandi hugmyndir að minnisvarðanum Arnarstapa, teikning Hróbjartar Jónassonar múrarameistara á Hamri og eitt skjal til nefndarinnar
1 umslag og 4 Bréf skrifuð á íslensku frá Gloriu í Winnipeg, Manitoba: 1981-1986. Fyrsta bréf er dagsett 03.03.1981 Annað bréf er dagsett 20.11.1985 Þriðja bréf er dagsett 21.02.1986 Fjórða bréf er skrifað 1998 Umslag er stimplað 1986 í Winnipeg, Canada
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afrit af bréfi frá félaginu til héraðsráðs og héraðsnefndar, sem óskað er eftir að viðtakandi kynni sér.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Bréfritari er sr Friðrikk Friðriksson. Það varðar fyrirhugaða stofnun KFUM á Sauðákróki. Með liggur umslag merkt Hálfdáni Guðjónssyni, en bréfið er stílað á hann. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á þrjár pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar innbindingu á bókum og ættfræði. Upplýsingar eru í bréfinu um m.a. Jón Auðunsson, Kristján og Sigurjón. Einnig fréttir af fjölskyldu Eiríks. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af fjölskyldu Eiríks og sumarleyfi hans á Suðurlandi. Einnig biður hann Pétur um efni í blaðið Heima er bezt. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Fremstu síðuna vantar. Efni bréfsins er ættfræði, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Efni bréfsins er efni sem Pétur hefur sent honum með birtingu í Heima er bezt í huga, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á sjö pappírsarkir í A4 stærð. Efni bréfsins er hugleiðingar um menntun, fróðleikur um útbúnað á reiðtygjum sem nefndist starkóngur og ættfræði. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar afkomendur Önnu Jóhannesdóttur og Stefáns Benediktssonar frá Berghyl. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af heimferð bréfritara úr sveitadvöl í Minni-Brekku og skólagöngu hans. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.