Bréf til og frá Akraskóla. Flokkun gagnanna þegar þau bárust safninu var með þeim hætti að möppur merktar einstaka skólaárum innihéldu bréf og var sú flokkun látin halda sér. Því er flest bréf frá tímabilinu 1996-2006 að finna í flokki D-Skólastarf.
Handskrifuð blöð um bókhald félagsins . Rekstursreikningur frá 1935 ein opna. Skýrslur, pappírsgögn, um viðskipti við bændur, nöfn þeirra og heimili og þeirra bókhaldsfærslur við félagið árið 1935 og 1937.
Reikningabókin er innbundin og handskrifuð bókfærslubók í góðu ásigkomulagi. Í bókinni er félagatal dýraverndunarfélagsins fyrir árið 1939 og bókhaldsfærslurnar eru gerðar á tímabilinu 1939-1963. Á saurblaði bókarinnar stendur; Ath. úr dánarbúi Egils Helgasonar 2003. Í bókinni var mikið af lausblöðum sem er sett í sér möppu: Bókhaldskvittanir og reiknivélastrimill frá tímabilinu 1961-1972. Félagaskrá, dagsett 1.11.1964 og fleiri skjöl og nafnalistar er tengjast kosningum á fundi dýraverndunarfélagsins. Einnig skýrsla um aðbúnað útigangshrossa, Skjal og reikningur úr db. Egils Helgasonar. Skjöl þessi voru sett í aðra örk.
Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur og pappírsgögn. Bækurnar eru vel læsilegar og eru í mig góðu ásigkomulagi, ein bókin er illa farin og með rifnar blaðsíður. Pappírsgögnin eru vel læsileg og í mis góðu ástandi.
Handskrifuð og vélrituð pappírsgögn, einnig formleg og óformleg. Félagatal, skrár yfir bókatitla og bókhaldsgögn. Gögnin eru í misgóðu ástandi en hafa varðveist ágætlega.
Pappírsgögn er fylgja félagsstarfi, hin ýmsu erindi og reikningar félagsins gögn í misgóðu ástandi sum rifin og blettótt en öll vel læsileg. Hreinsað var úr safni hefti og bréfaklemmur.
Stór harðspjalda handskrifuð skýrslubók um búfé og fóðurforða í Skefilstaðarhreppi. Bókin var hreinsuð en í nokkuð góðu ástandi. Bók er rétt hálf skrifuð og krot er á nokkrum óskrifuðum blaðsíðum. Persónugreinanleg bók með nöfnum eigenda búfjár, býlum, upplýsingar um iðgjöld og afurðir.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Bókhald félagssins með rekstrarreikningum, efnahagsreikningum, fylgiskjölum, skrá yfir útborganir og skrá yfir síldarmjölskaup svo eitthvað sé nefnt.
Handskrifuð pappírsgögn og litlar óinnbundnar bækur um þau samskipti sem eru í lestrarfélagi , félagatal, fylgigögn, bókaeign og leigu bóka. Gögnin eru í misgóðu ástandi og hreinsuð af heftum og bréfaklemmum.
Handskrifuð og prentuð erindi er koma til félagsins frá ýmsum aðilum s.s. Fræðslumálaskrifstofu,Bókaútgáfu Guðjóns Ó Guðjónssonar, Skrár yfir bækur og handskrifuð erindi.
Bókhaldsgögn er fylgja lestrarfélaginu eru pappírsgögn prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það.