Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 63382 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

38685 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Fundagerðabækur 1929-1962

Í safninu eru bækur bæði stílabækur og innbundnar bækur, þær eru allar með línu- eða rúðustrikuðum blaðsíðum. Bækurnar eru ýmsum stærðum og gerðum. Í bækurnar eru skráðar fundagerðir, ársskýrslur, félagaskrá einnig ferðasögur skátaflokkanna. Bækurnar eru allar vel varðveittar og læsilegar og er lítið skrifað í þær flestar. Pappírsgögn sem voru í fundagerðabók (A-E) voru tekin úr bókinni og sett í sér örk (A-G). Í gögnum A-F og A-G eru persónugreinanleg gögn, arkirnar voru settar efst í öskjuna til að hægt sé að taka þau úr safninu. Í einni fundagerðabók, í örk A-F fannst mygla, bókin var hreinsuð (ryksuguð og burstuð eins og kostur var) og er hún að öðru leyti í góðu ásigkomulagi.

Fundagerðabók Smyrla 1932-1941

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum og frásögnum úr starfi félagsins. Bókin er rifin og blaðið í miðju er laust, hún er vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Fálka 1929-1943

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum og frásögnum úr starfi Fálka. Bókin er í ágætu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1.sveitar 1930-1939

Innbundin og handskrifuð bók. Í bókinni eru fundagerðir 1. sveitar og félagaskrá, einnig fundagerðir sveita- og foringjafunda. Í bókina eru límdar tvær dagskrár fyrir skemmtanir sem skátarnir stóðu fyrir.
Bókin er í ágætu ásigkomulagi og er vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Ferðadagbók 1. sveitar 1933-1939

Innbundin og handskrifuð bók, í hana eru skráðar ferðasögur 1. sveitar. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Svana" 1936-1943

Harðspjalda bók með fundagerðum fyrir 2. flokk (Svani), einnig er félagatal og yfirlit yfir mætingar. Bókin er í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Ylfingaflokks 1934-1952

Innbundin og handskrifuð bók, í bókina eru skráðar fundagerðir, félagaskrá og yfirlit yfir mætingar félagsmanna.
Í bókinni eru persónugreinanleg gögn.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Pappírsgögn 1934-1952

Pappírsgögn úr fundagerðabók "Ylfingaflokks" (A-F). Í safninu eru teikningar af þjóðfánum norðurlandanna, skuldalisti félaga
Í safninu eru persónugreinanleg gögn, 4 biblíumyndir og nokkur óútfyllt félagsskírteini. Ákveðið var að halda eftir 1 af hvoru áfram í safninu til varðveislu. Talsvert er af litlum blaðabútum (minnismiðar) í safninu sem þarf að passa upp á að glatist ekki.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Svanir" 1948-1949

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og sagt líka frá annari starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel varðveitt, lítill hluti bókarinnar er notaður en hún er vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1946-1949

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og sagt líka frá annari starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel varðveitt og læsileg, lítill hluti bókarinnar er notaður.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1946-1958

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum flokks- og sveitafundum skátafélagsins. Ein fundagerð (frá 1946) er aftarlega í bókinni. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt, aðeins lítill hluti bókarinnar er notaður.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1940-1962

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum foringja- sveitar-, deildar-, og stjórnarfunda. Einnig eru lög og ársskýrslur félagsins skráðar í bókina. Bókin er í góðu ásigkomulagi og er vel læsileg. Límborði er á kjöl bókarinnar.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Roverskáta 1940-1960

Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni er skráður stofnfundur Roverskáta (fyrir skáta 18 ára og eldri). Aðeins nokkrar fundagerðir eru skráðar í bókina en hún er ágætlega varðveitt og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Ernir" 1960-1961

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum, líklega frá árinu 1960-1961. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt. Miði framan á er laus.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Ernir" 1960-1961

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum í bókinni og öðru er tengist starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðir "Víkinga" 1960-1962

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum. Inni í bókinni eru nokkrir lausir minnismiðar. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Ýmis skjöl

í þessu safni eru pappírsgögn, vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra. Einnig er talsvert af prentuðum blöðum með merki og logo Bandalags íslenskra skáta (BIS). Misjafnt var hvort gögnin voru röðuð upp eftir ártali eða ekki, ákveðið var að raða þeim í ártalsröð til að koma einhverju skipulagi á það og til að auðvelda aðgengi að þeim. Mest er um fréttabréf og erindi frá BIS. Í safni B-J eru skýrslur og inntökubeiðnir skátafélagið og eru þetta persónugreinanleg gögn, þau voru sett efst til að hægt sé að taka þau frá þegar safn er fengið til lestrar. Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð og á sumum er sýnilegir ryðblettir eftir hefti. Tvö umslög voru tekin úr safninu, búið var að klippa frímerkin úr, Inntökubeiðnir voru í plastmöppu, þau voru tekin úr möppunni og sett saman við aðrar samskonar skýrslur.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1935-1945

Í safninu eru vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra, það inniheldur bréf og erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, skátablaðið, fylgigögn bókhalds, félagatal og skýrsla yfir starfsemi félagsins. Einnig litlir miðar með úrsögnum úr skátafélaginu og fundarboð.
Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð og á einhverjum blöðunum er sýnilegir ryðblettir eftir hefti.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1946

Í safninu eru vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra, það inniheldur bréf og erindi frá Bandalagi íslenskra skáta - á bakhliðs á einu blaðinu er listi með nöfnum félaga og upphæð. Í safninu er einng jólakort, fylgigögn bókhalds og óundirritað erindi til Bandalags íslenskra skáta.
Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð og á einhverjum blöðunum er sýnilegir ryðblettir eftir hefti.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1947

í þessu safni eru pappírsgögn, vélrituð, forprentuð og handskrifuð á mismunandi gerðir pappíra. Einnig er talsvert af prentuðum blöðum með merki og logo Bandalags íslenskra skáta.
Safninu var ekki raðað í ártalsröð, en það var gert til að koma einhverju skipulagi á það. Mest er um fréttabréf og erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, einnig fylgigögn bókhalds, litlir miðar vegna inngöngu eða í skátana, auk annara erinda og bréfa er varða skátafélagið.
Í safni B-J eru skýrslur og skráningar í skátafélagið og eru þetta persónugreinanleg gögn, þau elstu eru frá 1929 en þau voru sett efst til að hægt sé að taka þau frá þegar safn er fengið til lestrar.
Safnið var hreinsað af heftum og bréfaklemmum, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum eru rifin og gulnuð jafnvel orðin nokkuð skítug, á sumum er sýnilegir ryðblettir eftir heftin. Tvö umslög voru tekin úr safninu, búið var að klippa frímerkin úr. Inntökubeiðnir í skátafélagið voru geymd í plastmöppu, þau voru tekin úr möppunni og sett saman við aðrar samskonar skýrslur.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1948

Í safninu eru vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra. Safnið inniheldur að mestu bréf og erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, fylgigögn bókhalds, jólakort, lista yfir eignir Andvara og flokksblaðið Delawarinn.
Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum eru orðin gulnuð og krumpuð.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1949

Í safninu eru nokkur erindi frá frá Bandalagi íslenskra skáta, tvö símskeyti og fylgigögn bókhalds. Blöðin eru gulnuð en hafa varðveist ágætlega.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi og fylgigögn bókhalds 1950

Safnið inniheldur vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra. Þetta eru erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, fylgigögn bókhalds og jólakort. Í safninu er kvittun frá Bandalagi íslenskra skáta þar sem búið er að klippa á tveimur stöðum inn á blaðið.
Hefti voru hreinsuð úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Erindi, ódagsett

Í þessu safni eru nokkur vélrituð, útprentuð og handskrifuð erindi, dagskrá og ræða. Ekki er ártal á þessum skjölum. Skjölin eru sýnilega frá ýmsum tímabilum miðað við útlit þeirra. Þau eru vel læsileg og ágætlega varðveitt.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Reglugerðir og lög, ódags.

Í safninu eru vélrituð og forprentuð skjöl sem á eru reglugerð, breytingatillögur og frumvarp er tengjast Bandalagi íslenskra skáta og skátastarfinu.
Blöðin eru í mismunandi ástandi, sum eru orðin gulnuð og hafa rifnað aðeins.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Lagatextar

Í safninu voru nokkur vélrituð skjöl sem á eru textar með skátasöngvum varðveittir í einni örk, eitt textablað fannst til viðbótar og var því bætt saman við. Blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð, eitt ljóðið sem er í safninu heitir Andvaraljóð og er eftir Friðrik Hansen. Tveir textar eru eftir Gunnar Einarsson, svo er blað með þremur skátasöngvum bæði á íslensku og erlendu tungumáli. Giskað er að textarnir séu frá tímabilinu 1930-1965.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Félagaskrá, inntökubeiðnir 1930-1950

Forprentaðar skýrslur og inntökubeiðnir nýrra félaga. Á þessum skjölum eru upplýsingar um skátafélaga frá tímabilinu 1930-1950 í safninu eru persónugreinanlegar upplýsingar. Pappírinn er af mismunandi gerð og lit.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Árs- og mánaðarskýrslur 1929-1962

Forprentaðar árs og mánaðarskýrslur fyrir skátafélagið Andvara fyrir tímabilið 1929-1962. Í safninu eru tvær mánaðarskýrslur frá árinu 1962 fyrir janúar og febrúar. Ársskýrslurnar ná yfir tímabilið 1929-1948, þó vantar skýrslur frá árinu 1943-1946 í safnið.
Skýrslurnar eru í mismunandi ástandi, blöðin rifnuð, skítug og hafa gulnað.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Manntalsskrá og blótsskrá "Víkinga" 1961-1962

Tvö lítil reikningsbókahefti með rúðustrikuðum blaðsíðum. Í öðru heftinu er manntal fyrir desember 1961 og janúar 1962, en í hinu er blótsská fyrir desember 1961 og febrúar 1962. Annað er ekki í heftunum. Blaðsíðurnar hafa gulnað og heftin hafa varðveist að öðru leyti mjög vel .

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Bókhald

Í safninu eru bókhaldsbækur, dagbókarfærslubækur, viðskiptabók, kassabók og söluyfirlit. Safnið er í góðu ásigkomulagi og vel læsilegt. Bækurnar voru í bland við aðrar í safninu en ákveðið var að halda þessum sér þó svo að önnur fylgigögn bókhalds hafi fengið að fylgja pappírsgögnum í safni B (A-F).

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Kassabók 1934-1943

Innbundin lítil skrifbók með bókhaldsfærslum. Bókin er í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Söluyfirlit 1929-1960

Tvö pappírsskjöl, á öðru þeirra er með nöfnum félaga og yfirlit yfir seld skátamerki. Skjalið er ódagsett og án ártals. Hitt blaðið er með félagaskrá og yfirlit yfir greiðslu pr. árs 1929-1933.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Gjaldabók "Víkinga" 1960-1962

Lítið stílabókarhefti fyrir greidd gjöld, flokks- og blótssjóð skátaflokksins Víkinga. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Prófbækur

Í þessu safni eru innbundnar bækur sem halda utan um skráningu á skátaprófum, einnig eru pappírsgögn með staðfestingu á skátaprófi sem Franc Michelsen þreytti 1929. Safnið er í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Prófbók 1933-1961

Innbundin og handskrifuð bók með yfirlit yfir þá einstaklinga sem tóku skátapróf árin 1933-1961. Í bókinni er laust blað sem er staðfesting á loknu sérprófi skáta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Prófbók 1960-1961

Innbundin handskrifuð bók með yfirlit yfir skátapróf einstaklinga árin 1960-1961. Í bókinni eru laus stílabókarblöð með fundagerð sem er án ártals, einnig eru nokkrir samanbrotnir miðar í bókinni frá foreldrum þar sem þau veita börnum sínum leyfi til að skrá sig í skátafélagið. Bókin og miðarnir eru í góðu ásigkomulagi og vel læsiegt.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Prófstaðfestingar 1932

Vélritaðar og handskrifaðar staðfestingar að Frank B. Michelsen hafi náð skátaprófi. Blaðið þunnt líkt og smjörpappír, orðið gulnað og skitugt, öðru leyti er það vel varðveitt.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Kvenskátafélagið Ásynjur

Í þessu safni eru gögn sem voru í safni Skátafélagsins Andvarar en tengjast kvenskátafélaginu Asynjum á Sauðárkróki. Um er að ræða fundagerðabók og erindi frá Brynju Hlíðar á Akureyri. Safnið er í góðu ásigkomulagi, plastfilma var utan um fundagerðabókina sem var fjarlægt og bréf í umslagi sem vélritað var á Kvenskátafélagið Ásynjur, Sauðárkróki og handskrifað með blýanti nafn sr. Helga Konráðssonar. Búið var að fjarlægja frímerki sem var á umslaginu.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók kvenskátafélagsins Ásynjur

Innbundin og handskrifuð bók. Saurblaðið er fagurlega skreytt, og á næstu blaðsíðum eru skátalögin, skátaheitið, kjörorð skáta og heilbrigðisreglur Baden Powells skráð með skrautskrift. Bindingin er léleg en bókin er engu að síður ágætlega varðveitt, plastfilma var utan um bókina en hún var fjarlægð.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Bréf til kvenskáta á Sauðárkróki

Erindi frá Brynju Hlíðar fyrir hönd K.S.S.I. á Akureyri (Kvenskátasamband Íslands ?) til Kvenskátafélagsins Ásynja en umslagið er merkt sr. Helga Konráðssyni.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Búnaðarfélag Hólahrepps

  • IS HSk E00122
  • Safn
  • 1892 - 1945

Fyrsta og önnur fundargerða - reikninga - og skýrslubók. Harðspjalda handskrifuð bækur í misjöfnu ástandi .

Búnaðarfélag Hólahrepps

Fundagerða - reikninga - og skýrslubók

Handskrifuð harðspjalda línustrikuð bók í lélegu ástandi , kjölur laus frá forsíðu en fastur við baksíðu, laus blöð og gulnuð. En bók er vel læsileg. Bókin er fundargerða - reikninga - og skýrslubók félagsins.

Búnaðarfélag Hólahrepps

Fundagerðabók

Harðspjalda handskrifuð bók i þokklegu ástandi, vel læsileg. Kemur fram að þetta er fundagerðabók no II.

Ungmennafélagið Hjalti

Aðalfunda - reikningabók og lög

Harðspjalda handskrifuð bók i þokklegu ástandi vel læsileg og fjallar um starfsemi félagsins, aðalfundi, lög og reglur, félagaskrá og aðalreikninga

Ungmennafélagið Hjalti

Ungmennafélagið Tindastóll

  • IS HSk E00124
  • Safn
  • 1903 - 2003

Handskrifaðar innnbundnar og óbundnar bækur og pappírsgögn frá U.M.F.T. Bækurnar eru flestar vel varðveittar og í góðu ásigkomulagi, sú elsta er frá stofnun ungmennafélagsins árið 1907. Í safninu er að finna fundagerðir, félagatal, bókhaldsgögn, vísur/stökur og formleg erindi. Þrjár bækur sem innihalda lög og fundareglur ungmennafélagins eru áhugaverðar og eru í sér öskju. Ákveðið var að flokka fundargerðir U.M.F.T. sérstaklega þar sem þær fylla tvær öskjur, mikið af bókhaldsgögnum eru líka í safninu. Talsvert var af stökum bókum og pappírsgögnum um ýmsa starfsemi innan félagsins sem fylla eina öskju. Gögn er tengjast knattspyrnu- og körfuboltadeildina eru flokkuð og varðveitt í sér öskjum.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Gjörðabækur aðalfunda U.M.F.T. 1903-1987

Innbundnar handskrifaðar og vel læsilegar bækur. Bækurnar hafa varðveist ágætlega, bindingar og blöð eru að mestu heilleg. Elsta fundargerðarbókin (frá 1903-1912) hefur varðveist illa.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók stofnfundar U.M.F.T. 1903-1912

Innbundin og handskrifuð og vel læsileg bók, fundagerðirnar eru frá stofnun Ungmannafélags Tindastóls. Blaðsíður eru heillegar en bókin hefur varðveist illa, bókin er án kjalar og bindingin er einnig illa farin. Nokkuð af blöðunum inni í bókinni eru laus úr bindingunni.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók 1912-1922

Innbundin og handskrifuð fundargerðarbók, tímabilið 1912-1922. Þetta er stofnfundabók Sngmennafélags Tindastóls og í henni eru fyrstu lög þess. Nokkrar blaðsíður hafa verið klipptar eða skornar úr, ein blaðsíða er laus í bókinni. Binding bókarinnar er orðin mjög léleg.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók 1922-1928

Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bindingin farin að gefa sig annars er bókin í góðu ásigkomulagi. Kjölurinn og kápan eru heilleg, límt er yfir kápuna.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók1928-1934

Óbundin handskrifuð og læsileg fundagerðarbók, svört á lit. Bókin hefur varðveist ágætlega, kjölurinn er límdur.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók 1934-1939

Innbundin handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin eru í góðu ásigkomulagi, nokkur blöð hafa verið klippt eða skorin úr. Tvö laus blöð eru í bókinni, eitt handskrifað bréf, dags 14.11.1937 um úrsögn úr U.M.F.T. Bréfið er undirritað af Jófinnu Maríusdóttur. Eitt vélritað bréf frá Sambandsstjórn U.M.F.Í. dags. 5. mars.1940 vegna skuldar ungmennafélagsins við U.M.F.Í.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðarbók 1939-1962

Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin hefur líklega lent í raka eða bleytu sem sést sést á öftustu blaðsíðunum. Í bókinni er athugasemd sem er svohljóðandi; Bók þessi týndist árið 1941. Var þá ný gjörðabók tekin í notkun og gildir hún frá 5. janúar 1942 til ársloka 1948.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók 1942-1949

Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Þessi gjörðabók kom í staðinn fyrir aðra sem byrjað var að skrá fundargerðir í (fyrir tímabilið 1939-1962). Bókin hefur varðveist ágætlega.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðabók 1961-1987

Innbundin og handskrifuð og vel læsileg fundagerðarbók. Í athugasemd í bókinni kemur fram að það vanti fundargerðir fyrir árið 1962 þar sem þær glötuðust.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundagerðabók 1952-1965

Innbundin og handskrifuð bók í A5 stærð, Bókin er í góðu ásigkomulagi, kjölurinn er límdur. Skrifað er með skrautskrift á fyrstu blaðsíðunni Gjörðabók stjórnar U.M.F.T. Skrifleg athugasemd er í bókinni að hún sé "tekin í notkun 5. maí 1952. Áður hafði stjórnin haldið nokkra fundi en enginn þeirra var bókaður". Einnig er skrifað að síðasta fundargerðin er rituð í þessa bók 27. sept.1965.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundargerðarbók 1966-1976

1 handskrifuð og vel læsileg bók, fremsta blaðsíðan er aðeins farin að rifna annars er bókin í mjög góðu ástandi.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundagerðabók 1982-1989

Innbundin og handskrifuð bók. Kjölur bókarinnar er aðeins farinn að rifna en annars er hún í góðu ásigkomulagi.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Ýmsar bækur og gögn

Vélritað pappírsgögn með erindi til Sýslunefndar Skagafjarðarsýslu er varðar tímaritið "Tindastóll", einnig er samskonar blað sem fylgir og er með tillögu og greinargerð um sama blað. Gögnin hafa varðveist vel og voru innan um bókhaldsgögn U.M.F.T. Ákveðið var að setja þau með öðrum gögnum óskyldum bókhaldi félagsins.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Bréfabók 1908-1925

Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Í bókinni eru skráð bréf og erindi sem hafa borist U.M.F.T. einnig erindi og bréf sem félagið sendi á tímabilinu 1908-1925. Í bókinni er skráð reglugjörð fyrir glímuverðlaunapening U.M.F.T., dags. í desember 1911. Bókin er vel varðveitt.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Móðurmálsvörður 1910-1936

Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Bókin heldur skrá utan um orð sem félagsmenn hafa látið falla á fundum og merking þeirra.
Bókin er slæmilega varðveitt en kápa hennar er orðin snjáð, kjölurinn er límdur og bindingin er orðin léleg.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Niðurstöður 1276 to 1360 of 63382