Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lántöku vegna jarðarinnar Geirmundarhóls. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar tillögur til samþykktar um kynbætur nautgripa í Skagafirði. Með liggur önnur örk með tillögum. Skjölin eru orðin slitin í brotum en annars er ástand þeirra ágætt.
Greinargerðin er rituð á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Svo virðist sem það séu tilkvaddir tryggingamenn sem rita hana. Greinargerðin er rituð á dönsku.
Pappírsörk í folio stærð, varðar bréf til Pálma Péturssonar og Flóvents Jóhannessonar. Varðar skipan þeirra í sýningar- og dómnefnd vegna hrossasýninga.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á fimm pappírsarkir í folio broti, alls sextán skrifaðar síður. Um er að ræða athugsemdir við sveitarsjóðsreikninga hreppanna í sýslunni.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar kosningu í nefnd til undirbúnings landbúnaðarsýningar í tengslum við Alþingishátíðina. Með liggur eyðublað þar sem viðtakandi er beðinn um að taka sæti í nefndinni. Ástand skjalanna er gott.
Annars vega handskrifað skjal í folio stærð sem varðar skoðun reikninga ýmissa sjóða og hins vegar handskrifað skjal í A4 stærð sem varðar saman málefni. Ástand skjalanna er gott.
Skýrslan er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Með liggja tveir reikningar og stutt greinargerð, undirrituð af Friðrik Guðmundssyni á Bræðrá. Ástand skjalanna er gott.
Tillögurnar eru handskrifaðar á pappírsörk í A4 broti. Þær varða bókasafn sýslunnar. Með liggur reikningur safnsins sem er einnig í A4 broti. Ástand skjalanna er gott.
Afritið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar aukafundargerð sýslunefndarinnar, þar sem fjallað var um frystihúsbyggingu. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar frumvarp til reglugjörðar um viðauka við fjallskilareglugjörð Skagafjarðarsýslu. Bréfið er heilt en aðeins upplitað. Brot er í því miðju.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar frumvar til laga um breytingu á lögum um friðun á laxi. Bréfið er aðeins farið að rifna í brotum en annars er ástand þess gott.
Skjalið er tvær pappírsarkir í foliobroti. Um er að ræða einhvers konar uppkast, þar sem ritað er á hægri hlið blaðanna og athugasemdir ritaðar vinstra megin. Með liggja tveir pappírsmiðar sem virðast vera uppkast að breytingatillögum. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar síldveiðar á Skagafirði. Skjalið er nokkuð upplitað á köntunum en annars er ástand þess gott.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í folio stærð. Það varðar kæru vegna hreppsnefndarkosningar í Viðvíkurhreppi 09.06.1926. Á bréfið er rituð staðfesting Björns Björnssonar á Narfastöðum á efni bréfsins, sem og kvittað fyrir móttöku bréfsins og loks álit allsherjarnefndar´i málinu.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggja tvær pappírsarkir í A4 stærð, listi yfir bækur. Það varðar fornbækur sem bókasafni sýslunnar eru boðnar til sölu. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í foliobroti. Með liggja athugasemdir sem eru vélritaðar á pappírsörk í A4 broti. Varðar sveitarstjóðsreikning Sauðárkrókshrepps. Bæði skjölin eru orðin stökk og skemmd á jöðrum.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Með liggur pappírsörk í A5 stærð með minnispunktum. Varðar athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Akrahrepps fyrir faradagaárið 1914-1915. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar héraðshátíð í Garði í Hegranesi 1930. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur pappírsörk úr bréfabók sýslunefndar, einnig í folio stærð. Varðar aukafund sýslunefndar. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar vangoldnar greiðslur vegna leigu á sýsluhesthúsi. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar erindi Búnaðarféalgs Hólahrepps um styrk til byggingar klakstöðvar. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar boð um almenna kláðaskoðun í öllu sauðfé innan hreppanna. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappirsörk í A5 stærð. Það varðar jörðina Litla-Hól. Með liggja eftirfarandi gögn vegna málsins: Reikningur frá Pálma Símonarsyni og Jóni Sigfússyni til Guðmundar Magnússonar Kvittun fyrir greiðslu Sigurðar Þórðarsonar til veðdeildar Landsbankans. Umboð til Sigurðar Þórðarsonar til að innheimta veðskuldir hjá Guðmundi Magnússyni. Kvittun fyrir greiðslu Sigurðar Þórðarsonar til Ræktunarsjóðs. Minnismiði um málið. Ástand skjalanna er gott.
Eftirritið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar skýrslu um vegstæði undir sýsluveginn milli Hofsóss og Kolkuóss. Ástand skjalsins er gott.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð og undirritaðar af Sigfúsi Jónssyni á Mælifelli. Svör eru rituð neðan við, undirrituð af Ólafi Briem. Með liggur pappírsörk í folio stærð, með tillögum vegna athugasemdanna. Er hún undirrituð af endurskoðendum.
Bókin er innbundin og er 16,3 x 19,9 sm að stærð. Bókin er 212 tölusettar síður. Á fremstu 17 síðurnar eru ritaðar fundargjörðir en aftan við miðja bókina eru samtals 37 síður sem á eru rituð ýmis minnisatriði vegna kosninga, líklega einnig frá árinu 1944.
Ályktanirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í A4 broti. Þær varða ályktanir á almennum fundi í Hofshreppi í aðdraganda sýslufundar. Ástand skjalsins er gott.
Yfirlitið er handskrifað á pappírsörk í A3 stærð. Það varðar "kostnað við sjúklingahald héraðslæknisins í Hofsóshéraði árið 1929." Með liggur stutt fylgibréf frá Páli Sigurðssyni, ritað á pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalanna er gott.
Bókin er innbundin og stærð hennar er 29,2 x 24,8 sm. Kjölurinn er slitinn og rifnað hefur af kápunni frá kilinum. Hún er 64 tölusettar síður og eru þær fullskrifaðar.