Erlendur Hansen í Drangeyjafjöru að snæða fugl við grjótbyrgið. Byrgið var hlaðið úr grjóti og reft yfir og klætt með áburðarpokum. Betri skúti en úti þegar norðan bræla vor eða sunnan rok.
Ottó Geir Þorvaldsson (1922-2001) í Grjótbirgi í Drangey. Ottó er að borða fugl í Drangeyjarfjöru árið 1943. Byrgið var hlaðið úr grjóti og reft yfir og klætt með áburðarpokum. Betri skúti en úti þegar norðan bræla vor eða sunnan rok. "En minningarnar muna flestir betur" stendur við þessa mynd.
Sagnaþættir eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Ehdr. I. "Enn um Reykstendinga og Skarðamenn". II. "Formenn og útvegsmaður á Sauðárkróki". III. "Formenn og útgerðarmaður úr Hegranesi og austan fjarðarins". IV. "Sjóslys á Skagafirði". V. Frásagna viðauki við formannatalið að framan (viðk. Drangey.) VI. Um slysfarir í Tindastól og Drangey, sem örnefni hafa myndast af. -Tölusetning kafla í hdr. er röng.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 21,9x10,9 sm. Varðar uppsögn vegna nytja Friðriks Jónssonar á Lambhöfða í Drangey. Skjalið er heillegt.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, ein skrifuð síða. Það varðar undirbúningsfund fyrir sýslunefndarfund. M.a. herpinótaveiði, nýtingu Drangeyjar, vegamál og fjallskilamál.
Í safninu eru svart hvítar litmyndir - fjölskyldumyndir og myndir teknar á Sauðárkróki og nokkrum öðrum kennileitum í Skagafirði. Tvær skólamyndir frá Húsmæðrakólanum á Löngumýri. Tvær myndir voru innrammaðar, önnur þeirra er máluð ljósmynd af Suðurgötu 18 og lítil mynd af Rósu og foreldrum hennar. Rammar og umslög utan um myndirnar var grisjað úr safninu. Í safninu eru einnig nokkrar handskrifaðar blaðsíður með lista yfir jólagjafir og jólakortasendingar. Í öskjunni er bréf frá Ingibjörgu, dóttur Rósu um afhendinguna til Héraðsskjalasafnsins.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Það varðar umfjöllum almenns fundar í Hegranesi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og er bréfið undirritað af Eggert Briem.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.