Skjöl úr fórum Gunnars Oddssonar í Flatatungu á Kjálka. Gamlar bækur, tímarit ungmennafélagsins Framfarar og gögn Veiðifélags Skagfirðingar Héraðsvatnadeildar. Gögnin voru afhent úr dánarbúi Gunnars.
Bókin er innbundin í stærðinni 9,5x12,9 sm. Á titilsíðu stendur: "Bent Rasmussen: Spedjer kogebog. K.F.U.M. spedjernes instruktionshaandböger. III. De unge forlag. I Hovedkommission: O. Lohse, Köbenhavn. MCMXXIV." Bókin er í góðu ásigkomulagi.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.
Framan á bókinni stendur Kvenfélag Holtshrepps og að það sem sé í bókinni hafi verið fært í aðra bók með útskýringum. (Þessi bók var því ekki ljósmynduð). Bókin er í ágætu ásigkomulagi.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1944" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1944-1945. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Óinnbundið hefti. Reynsla um ormalyf 1933-1935 eftir Níels P. Dungal. Sérprentun úr Búnaðarritinu. Gefið út í Reykjavík af Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg árið 1936. 18,6x12,5 sm
Bók í A5 broti, heftuð. 32 blaðsíður. Þýsk bók um Ísland. Kápan er rifin og hefur verið límd á. Bókin hefur verið brotin saman og er því illa farin. Umslag fylgir bókinni sem Gerda Trill hefur sent Sæmundi Dúasyni.
Fimtíu Píslar-Hugvekjur útaf Pínu og Dauda Drottins vors Jesú Krists / samdar af Síra Vigfúsi sál. Jónssyni Presti ad Stød í Stødvarfirdi Vigfús Jónsson 1711-1761 (Stöð, Stöðvarfirði) höfundur. Kaupmannahøfn, 1851. 352 bls. ; 19 sm. [2. útg.]. Kæapan er laus frá bókinni, að öðru leyti er hún í góðu ásigkomulagi.
Fimmtíu Passíu Sálmar / kvednir af Hallgrími Péturssyni, Sóknarpresti til Saurbæar á Hvalfjardarstrønd, frá 1651 til 1674. Hallgrímur Pétursson 1614-1674 höfundur. Reykjavík : Prentsmiðja Islands : Einar Þórdarson, 1855 214, [1] bls. ; 15 sm. Kápan er laus frá bókinni en annars er hún í góðu ásigkomulagi.
Skráningarbók fyrir póstsendingar. Bókin er innbundin og í hana eru færðar póstsendingar frá Silfrastöðum 1904-1959. Með liggja póstsendingaskrár og fylgibréf.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,9 cm. Hún inniheldur uppskrift af leikþætti. Rithöndin er ekki Péturs, en gæti verið Guðrúnar Jónsdóttur, frænku hans, sem bjó á Hofi í Vesturdal. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina. Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970. Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.
Stílabókin er í stærðinni 20 x 16,5 cm. Bókin inniheldur m.a. sögn um Vatnsfjarðar-Kristínu, og sögn um ætt og afkomendur séra Einars Grímssonar á Knappstöðum í Stíflu. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 15,8 cm. Bókin inniheldur frásögn um sjóhrakninga Jóhanns Jónssonar til Grímseyjar 1884, minningar Jóns Bergssonar á Þrasastöðum og sögur um Þorstein Daníelsson á Skipalóni. Með liggja þrjú minnisblöð, eitt þeirra með eftirmælum um Svein Sveinsson. Einnig minnisblað Hjalta Pálssonar um innihald bókarinnar. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 29,7 x 21,2 cm. Í bókina er skrifaður ýmiss fróðleikur, einkum æviþættir og fáein ljóð. Líklega að stórum hluta uppskriftir. Með liggja allmörg laus blöð, hér og þar um bókina. Bókin hefur verið bundin inn með harðspjalda kápu, en kápuna vantar framan á og blöðin eru orðin mjög sundurlaus. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Á kápusíðu er ritað: "Til hamingju með áttræðisafmælið. Til Péturs Frá Ástu." Í bókina er ritaður annáll Holtshrepps árið 1956 og ýmsar hugleiðingar. Einnig koma fyrir ýmis ljóð. Tilgáta að mest af þessu efni sé eftir Hannes Hannesson á Melbreið. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni er uppskrift af frásögn eftir Friðfinn Jóhannsson á Egilsá,frásögn eftir Skapta Stefánsson á Nöf, frásögn úr útvarpinu af kaupstaðarferð úr Héðinsfirði til Siglufjarðar, fróðleikur um þilskipaútgerð, uppskriftir af nokkrum fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1921-1926, fróðleiksmolar um Siglufjarðarskarð og frásögn úr Fljótum. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja þrjú minnisblöð.
Stílabókin er í stærðinni 25,4 x 19,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni er skrifaður ýmiss fróðleikur um atburði nítjándu aldar og fram á þá tuttugustu. Er þetta ritað í annálaformi, tekið að mestu úr bókum og blöðum. Öftustu síðurnar innihalda einkum fróðleik úr Fljótum.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1958. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Kápan er nokkuð slitin en annars er ástand bókarinnar gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1959. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggur minnisblað. Kápan er nokkuð slitin en annars er ástand bókarinnar gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1959. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1963. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggja minnisblöð. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1967. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggur minnisblað. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Stílabókin er í stærðinni 21 x 17 cm. Bókin inniheldur uppskriftir á efni úr útvarpinu árið 1947. Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.
Bókin er innbundin í A5 stærð. Í hana eru færðar bókfærslur. Hún er merkt Finnboga Sigurðssyni Verzlunarskóla Íslands 1918-1919. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin fundargerðarbók. Fundagerðir stýrihóps um Staðardagskrá 21. Fundir 14.05.1999-30.04.2002 (nr 1-46). Ein vélrituð fundargerð er laus með í bókinni.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1953. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er sæmilegt.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1955. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er sæmilegt.