Sýnir 303 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Michelsen-fjölskyldan: Skjalasafn Image
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

303 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Guðrún Pálsdóttir og óþekktur maður.

Guðrún Pálsdóttir ásamt óþekktum manni við skúrabyggðina, sem var þar sem nú er Minjahús Sauðárkróks. Tilgátur um að maðurinn sé Hólmar Friðrik Magnús Magnússon
Fæddur á Sauðárkróki 14. október 1914
Látinn 8. júlí 1995
Verkamaður á Sauðárkróki 1930. Fósturforeldrar Þorkell Jónsson og Málfríður Friðgeirsdóttir. Sjómaður í Reykjavík 1945.

Árgangur 1929

Árgangur 1928 ásamt skólastjóra og kennar Barnaskólans á Sauðárkróki. Hugsanlega skólaferðalag. Aftasta röð frá vinstri; (Skráð Sigga Þórðar (Blöndal), Óþekkt, Þorvaldur Guðmundsson kennari, Jón Þorbjargarson Björnsson. Miðröð: Steinunn Aðalehieður Árnadóttir, Aage Michelsen, Magnús Bjarnason kennari og Alda Bjarnadóttir. Fremsta röð frá vinstri; Sigurður Margeirsson, Snorri Sigurðsson, Hjalti Jósafat Guðmundsson og skráning "Bjöggi Skafta". Einnig talið að Aage Michelssen sé á myndinni.

Bíll

Bíll við Skagfirðingabraut. Hugsanlegir eigendur eru Ole Bang og Þorvaldur Þorvaldsson "Búbbi"

Mynd tekin við Utanverðunes

Mynd tekin í Utanveðurnesi frá vinstri: Sigurlaug Gunnarsdóttir, óþekkt, Guðrún Pálsdóttir Michelsen, Jörgen Frank Michelsen, óþekkt barn, Sigurgeir Daníelsson, Ingvard Sörensen apótekari

Eiríkur Jónsson

Halldór "Dóri skó" Stefán Halldór Halldórsson
Fæddur í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, Eyj. 11. nóvember 1880
Skósmiður á Sauðárkróki 1930.

Tilgáta um
Jóhann Eiríkur Jónsson
Fæddur á Sauðárkróki 19. ágúst 1921
Látinn 20. mars 2004
Var á Siglufirði 1930. Heimili: Sauðárkrókur. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Bóni og frjótæknir á Beinakeldu. Síðast bús. þar.

Við Svartahúsið

Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.

Aðalgata

Mynd tekin rétt sunnan við Sauðárkrókskirkju út Aðalgötu. Mynd sennilega tekin að vori. Gamlibarnaskólinn til hægri. Hann var fyrst starfræktur á þessum stað í lok árs 1908 og varð Jón Þ. Björnsson skólastjóri. Jón reyndist einn mikihæfasti skólamður landsins og setti mjög svip sinn á skólastarf á Sauðárkróki um langt skeið.

Eyrin

Hesteyri, höfnin á Eyrinni í byggingu. Steypuklumpar bíða í röðum eftir því að vera sökkt við hafnargarðinn til að verja hann fyrir haföldunni. Nýja höfnin var gríðarmikið mannvirki og boðaði byltingu í atvinnuháttum á Sauðárkróki. Myndin tekin á árunum 1938-1939.

Bretar á Króknum

Hinn 10. maí 1940 var Ísland hernumið af Bretum. Um sumarið kom um 50-60 manna flokkur breskra hermanna til Sauðárkróks og hafði þar bækistöð. Myndin er líklega tekin árið 1941. Hafði þá fækkað í liðinu. Herlið var yfirleitt fámennt á Sauðárkróki, yfirleitt ekki nema nokkrir menn sem áttu að verja þorpið. Bæjarlífið fór furðulítið úr skorðum þrátt fyrir þessa heimsókn og fór vel á með hermönnum og heimafólki. Annar frá vinstri í aftari röð er merktur sem Charles

Nótabátur á Aðalgötunni.

Verið að flytja Nótabát á Aðalgötu Sjá má Aðalgötu 17 og 19. Svangrund og Apótek. Bíllinn er SK 25, bíll Hjartar Laxdal en hann mun hafa stjórnað flutningum. Myndin er tekin fyrir árið 1940.

Snjór á Aðalgötu

Snjóþyngsli við Aðalgötuna. Götur Sauðárkróks voru lengi vel handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir bílaumfer um þær á vetrum þegar snjór var sem mestur. Aðalgata 17 og 19.

Börn í kassabíl

Anna Lísa og Frank sonur Páls Michelsens um borð í kassabíl. Aage Michelsen bakvið bílinn. Kassabílar voru uppáhald leikföng margra krakka á Króknum og var þessi kassabíll knúinn með keðjum sem án efa hefur létt á drættinum.

Mannamyndir

Þrír menn standa við hús á Sauðárkróki. Frá vinstri Kristján Jónsson "Kiddi bif", Sigurður Þorsteinsson og þriðji maður óþekktur.

Niðurstöður 171 to 255 of 303