Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Hefti í stærðinni 16,2 x 11,8 cm. Heftið fjallar um Sólveigu Eiríksdóttur, sem hafði viðurnefnið Lúsa-Sólveig. Útg. Fimmmenningarnir. Akureyri 1947. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Heftið er 40 bls., auk kápu.
Innbundin bók með handskrifuðum kveðskap. Á forsíður stendur: "Eitt æfintýri er kallast Jóhönnu raunir á þýsku útlagt og á ljóðmæli snúið af Snorra Björnssyni presti að Húsafelli."
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,0 cm. Hún inniheldur frásagnir af landnámsmönnum (uppskriftir) m.a. Flóka Vilgerðarsyni, Hrafna-Flóka. Kápuna vantar en ástand bókarinnar er að öðru leyti gott.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggingarnefndar Grunnskóla Sauðárkróks 14.01.1998-03.10.2001. Bls. 1-31 útfylltar. Með liggja fundargerðir á lausum, prentuðum blöðum, nr. 25-30.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1944" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1944-1945. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1953. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er sæmilegt.
Oliver Twist eftir Charles Dickens. Þýtt hefur Páll E. Ólason. Reykjavík: Þorvarður Þorvarðsson gaf út, 1906.Prentsmiðjan Gutenberg. Á saurblaði og titilblaði er bókin merkt Guðjóni Jónssyni á Tunguhálsi.
Fimmtíu Passíusálmar. Hallgrímur Pétursson. Útgefandi Reykjavík : Prentað í Prentsmiðju Íslands og á kostnað hennar. Bókin er 208 bls. og 13 x 9,6 sm að stærð.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 1. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 2. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 3. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur annál ársins 1962, að mestu leyti í formi dagbókafærlsna. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur annál ársins 1962, að mestu leyti í formi dagbókafærlsna, og er merkt 2. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,8 cm. Bókin inniheldur einkum ljóð eftir þjóðskáldin og a.m.k. eina vísa er eftir Björn Pétursson frá Sléttu. Með liggur minnisblað um skuldi bænda í Fljótum við Samvinnufélag Fljótamanna. Ástand skjalanna er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,2 cm. Bókin inniheldur einkum ljóð, m.a. "Þið þekkið Fljót með ís og snjóinn..." Kápu vantar á bókina og hún er óhrein.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,5 cm. Bókin inniheldur ýmsar frásagnir, má. dagbókarbrot, frásögn úr útvarpinu, ættfræði, endurminningar Gísla á Hofi í Svarfaðardal, og ýmis sundurleit fróðleiksbrot um Siglufjarðarskarð. Framan á bókina er skrifað: "Frá Silfrastöðum og Egilsá. Frá Neskoti. Sögn um Siglufjarðarskarð. Ástand bókarinnar er gott. Með liggur minnisblað sem Hjalti Pálsson hefur skrifað um innihald bókarinnar.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,4 cm. Bókin inniheldur ýmsar æviágrip, einkum Fljótamanna. Kápuna vantar á bókina og búið er að klippa nokkrar af fremstu síðunum úr henni.
Útgefið hefti í stærðinni 10 x 17,7 cm. Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eftir Snæbjörn Jónsson með formála eftir síra Einar Thorlacius prófast. Gefið út í Reykjavík 1931 af Ísafoldarprentsmiðju.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1955. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er sæmilegt.
Innbundin bók sem heldur skrá yfir skip og báta í Skagafirði árin 1904-1943. Í skránni kemur m.a. fram skrásetningardagur, skipsheiti, stærð, eigendur, byggingarstaður, byggingarefni og fleira.
Stílabókin er í stærðinni 19,5 x 15,4 cm. Hún inniheldur æviágrip um Gunnar Einarsson á Þangskála, Snorra Bessason í Grundarkoti og Guðmund Bergsson. Einnig ýmsar ættfræðiupplýsingar, ábúendatal eftir 1900, fjártölu Holtshrepps 1967 o.fl. Kápan er óhrein en ástand bókarinnar er að öðru leyti gott.
Veilending ved undervisning i samtidig læsning og skrivning. Höfundur: Hedevig Rosing. Kristinania. Udgiven efter offentlig Forantstaltning 1899. Bókin er 60 bls.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1947-Eignakönnun 1948" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1947-1955. Bókin er í mjög heillegu ástandi. Inni í henni eru þrír minnismiðar sem varða búfjárhald og bréfaskipti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 19,4x24,5 cm. Bókin er 616 númeraðar síður, þar af 15 auðar síður. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,8 cm. Bókin inniheldur frásögn af Myllu-Kobba, alls 35 síður, ritaða af Pétri. Hún tengist útgáfu bókarinnar Tvennir tímar. Kápuna vantar á bókina.
Stílabókin er í stærðinni 20,5 x 16,0 cm. Bókin inniheldur frásagnir af Þorsteini Þorsteinssyni í Vík og ættir hans og frásögn um Reynistaðabræður. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina. Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970. Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur efni sem Pétur ritaði fyrir Skagfirskar æviskrá og bréf frá Eiríki Kristinssyni. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur æviágrip Magnúsr Bjarnasonar, smásöguna Gamla fólkið eftir Huldu Stefánsdóttur og fleiri frásagnir og æviþætti. Með liggur minnismiði um útvarpsþátt frá 1964. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur æviágrip Stefáns Sigurðssonar, Jónasar Stefánssonar, Sæmundar Jóns Kristjánssonar og Péturs Jónssonar, Framan á bókina er skrifað: "Það er afrit í þessari bók sem ég sendi til Sauðárkróks um skylmenni ím 18.10.1967." Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20 x 16,5 cm. Bókin inniheldur m.a. sögn um Vatnsfjarðar-Kristínu, og sögn um ætt og afkomendur séra Einars Grímssonar á Knappstöðum í Stíflu. Ástand bókarinnar er gott.
Handskrifuð pappírsörk í A4 stærð. Á annarri síðunni er lagabreytingatillaga sem samþykkt var á aðalfundi 1997 og á hinni síðunni listi yfir stjórnarmenn og nefndarmenn.