Anna Claessen kona Valgarðs Claessens situr fremst til vinstri. Konan við hlið hennar fremst til hægri er óþekkt. Milli þeirra er Anna Valgerða Claessen. Bakvið standa fósturdætur Önnu, Ingibjörg Claessen (t.v.) og María Claessen.
Frá vinstri: Jónína Magnúsdóttir kona Sigurðar Guðmundssonar sem er 1.f.h.- Sumarrós Sigurðardóttir- dóttir þeirra er eldri stúlkan en sú minni er Guðrún Símonardóttir fósturdóttir þeirra. Safn Kr. C. Magnússonar.
Trausti Friðriksson Eyhildarholti og Ingveldarstöðum á Reykjaströnd- Ása Ásgrímsdóttir kona hans og Sigtryggur Traustason sonur þeirra. Fjölskyldan fór til Ameríku.
Ingibjörg Hannesdóttir (situr) kona Sveins sigvaldasonar- Steini á Reykjaströnd- síðast Árbæ á Sauðárkróki og dóttir hennar Anna Sveinsdóttir kona Sigurjóns Mýrdal. Eftirtaka myndar guðmundar sigurðar Jóhannssonar ættfræðing. 1982
Hallgrímur Sigurðsson bóndi á Þröm á Langholti- kona hans Ingiríður Hannesdóttir- sonur Hallgríms af fyrra hjónabandi Jóhannes Hallgrímsson bóndi á Botnastöðum.
Fimleikaflokkur kvenna sem syndi á Sauðárkróki 17. júní 1911. Talið frá vinstri: Jón Þ. Björnsson skólastjóri go stjórnandi flokksins. Þórunn Kristjánsdóttir - Una Pétursdóttir - Sigurbjörg Pálsdóttir - Sigríður Sigtryggsdóttir - Guðbjörg Sigurðardóttir - Þórey Ólafsdóttir - Þórdís Jóhannsdóttir - Ingibjörg Halldórsdóttir - Otta Popp - Dýrleif Árnadóttir - bak við stúlkurnar stendur Jón Ósmann.
Fimleikaflokkur sem sýndi undir stjórn Jóns Þ. Björnsson á Sauðárkróki 17. júní 1911.. Frá vinstri Jón Þ. Björnsson -Sigurður Á Björnsson - Þorbjörn Bjarnason - Árni Magnússon - Friðbjörn Traustason - Jón Þórðarson - Stefán Vagnsson - Friðrik Hansen - Margeir Jónsson - Páll Jónsson - Magnús Halldórsson.
Börn sr. Jónmundar Halldórssonar á Barði og Guðrúnar Jónsdóttur konu hans talin frá vinstri: Guðmundur Jónmundsson- Sesselja Jónmundsdóttir- Halldór Jónmundsson og Guðrún Jónmundsdóttir.
Pétur Jónsson verslunarmaður situr lengst til vinstri. Jón Egilsson verslunarmaður 2.f.v. í miðröð. Sigurður Pálsson læknir situr fremst fyrir miðju og Chr. Popp honum til hægri handar. Jón Ólafur Stefánsson er í miðröð 3.f.v. Aðrir eru ónafngreindir. Myndin er tekin skammt frá Sauðárkrókskirkju. Ljósmynd má finna í Sögu Sauðárkróks á bls. 417.
Margrét Guðmundsdóttir Johnsen (1855-1917) ekkja Jóhannesar Ólafssonar sýslumanns Skagfirðinga og börn (talið frá vinstri): Ólafur Jóhannesson (1885-1912)- Guðmundur Jóhannesson (1887-1961) stórkaupmaður- Sigrún Jóhannesdóttir (1889-1934)- Alexander Jóhannesson (1888-1965) háskólarektor og Valdimar Davíð Jóhannesson (1896-1960) síðar símstöðvarstjóri.
frá vinstri: Valgarð Blöndal Sauðárkróki. Valgarð Claessen kaupmaður á Sauðárkróki síðar landsféhirðir. Valgarð Thoroddsen Rafmagnsveitustjóri í Reykjavík Gefandi: Jóhanna Blöndal.
Ingimar Hallgrímsson Litla- Hóli í Eyjafirði ásamt seinni konu sinni Sigurbjörgu Jónsdóttur. Bak við þau standa dætur Ingimars af fyrra hjónabandi: (Jóna) Margrét Ingimarsdóttir (t.h.) og Hrefna Ingimarsdóttir. Milli hjónanna stendur Júlíus Ingimarsson- fyrir miðju er Sigrún Ingibjörg Ingimarsdóttir og Birna Ingimarsdóttir er t.h.
Frá vinstri: Sigurður Pálsson læknir- Lára Sigurðardóttir dóttir þeirra hjóna og Þóra Gísladóttir kona Sigurðar. Myndin var eign Páls Sigurðssonar bókavarðar í Reykjavík. Gefandi: Kristmundur Bjarnason 23.06.1978.
Efri röð frá vinstri: Ingibjörg Guðmundsdóttir Sauðárkróki- Gísli Guðmundsson "vert"- Stefanía Jóhannesdóttir Sauðárkróki- og Helga Guðmundsdóttir Sauðárkróki. Neðri röð frá vinstri: Sigríður Þorleifsdóttir- dóttir Ingibjargar- Sigurlaug Gísladóttir Sauðárkróki- Þórey Ólafsdóttir- dóttir Sigurlaugar og Ólafur Guðmundsson Sauðárkróki faðir hennar.
Eggert Briem sýslumaður á Sauðárkróki og kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Auðkúlu. Börnin eru Gunnlaugur Eggertsson Briem (1903-1999) ráðuneytisstjóri Rvk. og Sigríður Eggertsdóttir Briem (1901-1998) kennari Rvk. Gefandi: Kristmundur Bjarnason 23.06.1978.
Bjarni Jónsson Lögfræðingur á Seyðisfirði- Akureyri og Reykjavík- kona hans Sólveig Einarsdóttir og 3 elstu börn þeirra- fremst t.v. er Einar Bjarnason (f.1907)- Kristín Bjarnadóttir (f.1909) situr í kjöltu móður sinnar og Unnur Bjarnadóttir (f.1910) er í höndum föður síns.
Ljósmynd tekin við ferjuhús Jóns Ósmann, fyrir ofan dyr stendur Emanuel sem er fjöl úr skipinu sem strandaði 13. september 1906. Jón Ósmann er þriðji frá vinstri
Sitjandi: Guðríður Pétursdóttir Valadal- kona Friðriks Stefánssonar og börn þeirra- talið frá vinstri: Helga Friðriksdóttir- Sigþrúður Friðriksdóttir og Stefán Friðriksson.
Saumanámskeið hjá Sigríði Sigtryggsdóttur á Sauðárkróki. Sitjandi frá vinstri: Sigurlaug Jónasdóttir Uppsölum- Sigríður Sigtryggsdóttir Sauðárkróki og Magnea Baldvinsdóttir Sauðárkróki. Standandi frá vinstri: Anna Gunnlaugsdóttir Siglufirði- Sigríður Gunnarsdóttir Flatatungu og Oddný Jónsdóttir Narfastöðum.
Guðmundur Ólafsson Ási í Hegranesi- Jóhanna Einarsdóttir kona hans og yngstu börn þeirra: Ólöf Guðmundsdóttir er fyrir miðju en tvíburasysturnar Kristjbjörg Guðmundsdóttir (t.v.) og Lovísa Guðmundsdóttir- hvor við sinn enda.
Sigurður Briem (1860-1952) póstmálastjóri og kona hans Guðrún Ísleifsdóttir. Börn þeirra: fremst sitja Ása Sigurðardóttir og Ísleifur Sigurðarson- þau eru þarna 10 og 7 ára- Kara Sigurðardóttir12 ára stendur að baki Ásu- Sigrún Sigurðardóttir1 1/2 er fyrir miðju. Gunnlaugur Sigurðarson 11 ára stendur.
Þrír sjólar norrænir- frá vinstri: Hákon 7.- Gústaf 5. og Kristján 10. Úr dánarbúi Brynleifs Tobíassonar. Póstkortsmyndin tekin á fundi sem þeir konungar áttu árið 1914 þegar fyrri heimstyrjöldin braust út.
Talið frá vinstri: Hólmjárn Jósefsson (1891-1972) framkvæmdastjóri í Reykjavík- Björn Jósefsson (1885-1963) héraðslæknir á Húsavík og Einar Reynis Jósefsson (1892-1979) frá Vatnsleysu- Reykjavík. Synir Jósefs skólastjóra á Hólum. Myndin er tekin í Kaupmannhöfn 1914.
Leikarar í "Fölsku töntunni" á Sauðárkróki 1914- frá vinstri í fremri röð: Anna Sveinsdóttir- Þórey Ólafsdóttir- Torfhildur Einarsdóttir og Margrét Sigtryggsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Björnsson Veðramóti- Jóhannes Pálsson- Flóvent Jóhannsson- Árni Daníelsson og Gísli Guðmundsson. Gefandi: Kristmundur Bjarnason 1978.
Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir Briem (1889-1961) húsmóðir Sauðárkróki. Björn Guðmundsson Briem (1913-2009) verslunarm. Rvk. Kristinn P. Briem (1887-1970), kaupmaður á Sauðárkróki. Páll Jakob Briem (1912-2000) útibússtjóri Reykjavík.
Frá vinstri: Sigurlína Björnsdóttir, Hofi, Höfðaströnd, f. 22/5 1898. Margrét Björnsdóttir, Reykjavík f. 12/1 1897. Sigurbjörg Björnsdóttir, Deildartungu, Borgarfirði, f. 18/11 1886.
Gísli L. Pétursson (1870-1943) bóndi Kýrholti Skag. er til vinstri og Sigurður Þorsteinsson Bjarnastöðum í Akrahreppi til hægri á skjóttum hestum. Myndin er líklega tekin á Sauðárkróki- óvíst þó.
Ingibjörg Hjálmsdóttir frá Syðra-Vatni kona Konráðs Magnússonar og börn þeirra talið frá vinstri: Fremri röð: Pétur Konráðsson og Helgi Konráðsson. Aftari röð: Margrét Konráðsdóttir- Magnús Konráðsson- Jón Konráðsson- Sesselja Konráðsdóttir og Hjálmur Konráðsson.
Magnús Jónsson prófessor í Reykjavík- Ingveldur Benedikta Lárusdóttir kona hans og dóttir þeirra Unnur Lára Magnúsdóttir. Myndin er líklega tekin árið 1915. Gefendur: Margrét Hjartardóttir og Steingrímur Guðjónsson Reykjavík. 15.07.1977
Pétur Sighvatsson Símstöðvarstjóri á Sauðárkróki- Rósa Daníelsdóttir kona hans og börn þeirra talin frá vinstri: Pálmi Pétursson- Ragnhildur Pétursdóttir- Sighvatur Pétursson- Þórður Pétursson og Gunnar Pétursson.
Jónas Jónasson Hofdölum og Anna Jónsdóttir kona hans- með dætur sínar þrjár frá vinstri: Hólmfríður Jónasdóttir- Þórdís Jónasdóttir (efst) og Arnfríður Jónasdóttir. Dánarbú Stefáns Jónssonar Höskuldsstöðum 1981.
Systur frá Krossanesi, frá vinstri: Jónína Jósafatsdóttir, húsfr. Gröf og Grófargili. Valgerður Jósafatsdóttir húsfr. Ási. Sigríður Jósafatsdóttir húsfr. í Ási, f. 1889.
Frá vinstri: Gróa Árnadóttir kona Þóris Bergssonar- Magnús Jónsson dósent og Gróa Helgadóttir Helgasonar tónskálds. Gefendur: Margrét Hjartardóttir og Steingrímur Guðjónsson Reykjavík. 15.07.1977
Aftast fyrir miðju stendur Sigurður Sigtryggsson. Fremri röð frá vinstri: Sigríður Sigtryggsdóttir. Björn Sigtryggsson. Þórey Sigtryggsdóttir. Þau eru frá Hóli
Jónas Jónasson Hofdölum og Anna Ingibjörg Jónsdóttir kona hans- með dætur sínar þrjár frá vinstri: Hólmfríður Jónasdóttir- Þórdís Jónasdóttir (efst) og Arnfríður Jónasdóttir. Dánarbú Stefáns Jónssonar Höskuldsstöðum 1981.
Guðmundur Ólafsson og Jóhanna Einarsdóttir í Ási með 3 yngstu dætur sínar- Ólöf Guðmundsdóttir (fyrir miðju)- tvíburarnir Kristbjörg Guðmundsdóttir (t.v.) og Lovísa Guðmundsdóttir. Gefandi: Sigurður Pétur Björnsson. 1978.
Þóranna Pálmadóttir- kona Péturs Péturssonar verslunarmanns á Sauðárkróki og Akureyri með tvö börn þeirra- Pálma Pétursson og Önnu Pétursdóttur. Gefandi: Sigurður Pétur Björnsson Húsavík. 1978.