Showing 987 results

Archival descriptions
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Text
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

987 results with digital objects Show results with digital objects

Skjal 26, framhlið

Þessi örk er greinilega hluti af siðfræðibók Sölva því hér eru nokkrar viðbætur við þriðju grein hennar og þær fjalla um samband siðfræði og trúar, einkum um hvernig siðbótin hafi leitt hið sanna samband þar á milli í ljós andstætt harðstjórnaranda kaþólsku kirkjunnar.

Skjal 26, bakhlið

Þessi örk er greinilega hluti af siðfræðibók Sölva því hér eru nokkrar viðbætur við þriðju grein hennar og þær fjalla um samband siðfræði og trúar, einkum um hvernig siðbótin hafi leitt hið sanna samband þar á milli í ljós andstætt harðstjórnaranda kaþólsku kirkjunnar.

Skjal 2, opna 4

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.
Á seinni síðu þessa skjals hefst ný umfjöllun þar sem velt er upp þeirri spurningu hvað felist í hugtakinu trúarbrögð.

Skjal 2, opna 3

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, opna 2

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, opna 1

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, opna

Hér eru ýmsir kynntir til sögunar sem fylgismenn og fornarlömb djöfulsins, til dæmis Allt heimilsfólkið á Ketilsstöðum á Völlum 1853, allt heimilisfólkið á Valþjófsstað, allt heimilisfólkið á Hofi í Eyjarfirði, allt heimilisfólkið og allt heimilisfólkið á Sauðanesi á Langanesi

Skjal 2, framhlið

Byrjar á umfjöllun um Sölva sjálfan og samband hans við alföðurinn og náttúruna. Síðan er fjallað um Schulesen sýslumann og Jón Ingjaldsson sem Sölvi líkir við Óðinn sjálfan.

Skjal 2, framhlið

Á þessari síðu má finna tvö kvæði. Annars vegar fjórtán erinda kvæði og hins vegar fyrstu sex erindin í 26 erinda bálki. Bæði kvæðin fjalla á einn eða anna hátt um Sölva sjálfan.

Skjal 2, framhlið

Á þessum síðum má sjá sögu af djöflinum og hans framgöngu á Íslandi. Þema sem kemur nokkuð oft fyrir í handritum Sölva. Þá er því lýst hvernig djöfullinn fer um og safnar saman fólki sem hann á sálina í og leikur það oft grátt með ýmsum gróteskum hætti. Oft virðist vera um að ræða hefðbundna frásögn þar sem lýst er samskiptum Sölva við helstu fjandmenn sína, þar sem þeir eru nafngreindir en síðan fer frásögnin út í fantasíu sem stundum virðist tengd við drauma Sölva. Í þessari sögu eru nafngreindir menn sem sannarlega voru uppi og reyndust Sölva ekki sértaklega vel ef marka má þessa frásögn. Jóhannes nokkur frá Laxamýri og synir hans þeir jón og Kristján fá allir slæman vitnisburð frá Sölva. Hóp presta telur hann upp og segir þá alla vera á vegum andskotans en ekki drottins. Þetta voru þeir Björn Þorsteinsson (1805-1874) prestur á Stafafelli í Lóni. Bjarni Sveinsson á Múla í Skriðdal. Páll Magnússon (1801-1860) prestur í Sandfelli í Öræfum.

Skjal 2, framhlið

Hér hefst ný umfjöllun undir titlinum „Grein“ og enn er fjallað um trúmál. Líkt og á síðunum hér á undan er samband trúar og siðferðis höfundinum hugleikið. Hann veltir upp hugmyndum ólíkra trúarbragða og gerir grein fyrir ákveðnum eðlismunum sem hann telur vera, á milli þeirra, á sambandi siðferðis og trúarfræði. Máli sínu til stuðning vitnar hann ítrekað í ritninguna og jafnframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

Skjal 2, framhlið

Hér les Sölvi amtmanni Havsteen, Eggerti Briem og fleiri nafngreindum mönnum pistilinn. Fyrst lýsir Sölvi umfjöllunarefninu sem hann segir vera þá félaga áður nefnda. Þar á eftir kemur níðvísa um Pétur Havsteen og síðan romsa þar sem ýmsir menn eru nefndir og ókostir þeirra tíundaðir. Landsréttur er Sölva hugleikinn í pistlinum og talar um „landsréttar leysi“. Nokkuð sem gæti tengst dómsmálinu 1854 því það mál fór aldrei fyrir landsrétt af ókunnum ástæðum.

Skjal 2, bakhlið

Frásögnin einblínir á yfirnáttúru Sölva . Afkastgeta hans og til vinnu og þol gegn öllum hans sýnir ð hann er ekki eins og venjulegir menn, heldur sé hann gæddur yfirnáttúrlegum kröftum.
Yfirnáttúru þessa fékk Sölvi frá Guði og það er trú hans sem kemur í veg fyrir að djöfullinn geti snert hann ólíkt öllum óvildarmönnum hans sem eru á vegum andskotans og því berskjaldaðir þegar hann fer um Ísland og hirðir upp sálir sínar

Skjal 2, bakhlið

Sölvi segir strax í fyrstu málsgrein síðunnar að hann geti ekki fjallað meira um stjörnufræði eða nokkuð annað i bili vegan kvala og þrældóms sem hann má þola. Á eftir fer almenn umfjöllun um píslir Sölva.

Skjal 11, seinni síða á opnu

„Enn af því guð var með honum, og hafði gefið honum meira vit og krafta og þekkingu á náttúrunni …“
Áfram heldur frásögnin af djöflinum en á þessari síðu er fjallað um guðdóminn og trú Sölva. Hvernig hann í krafti trúar sinnar getur veitt andskotanum mótspyrnu og hvernig er reynt að brjóta hann niður í þeirri von að hann snúi af guðsvegum og djöfulinn fái sínu framgengt.

Skjal 11, fyrri síða í opnu

Hér heldur áfram frásögnin af djöflinum og fylgjendum hans hér á Íslandi. Um miðja síðu snýr hann sér að sjálfum sér og hvernig hann er ógn við djöfulinn og hans málstað. Það kemur fram hvernig hann er kúgaður og píndur, rétt eins og allir þeir sem voga sér að ihuga að snúa frá villu síns vegar og snúa sér að dyggðinni og sannleikanum á drottins vegum.

Skjal 11, framhlið

Frásögn af djöflinum og ferðum hans um landið þar sem fylgjendur hans hljóta grimmilega og jafnvel hláleg örlög eftir meðferð hans.
Margt fólk er nefnt í þessari sögu, til dæmis Jóhann Sölvason (1829-1864), Kristján í Ærlækjarseli og annað heimilisfólk þar á bæ og Jakob Pétursson í Breiðumýri (1790-1885).

Skjal 11, bakhlið

Hér dregur til tíðinda, djöfullinn ætlar að taka með sér hóp af fólki til helvítis. Þar eru nefndir meðal annara: Jónas Helgason, Stefán Þorfinnsson, Sigurð Jónsson, Stefán Hjörleifsson, allir á Skinnastöðum. Þóra, Oddný og þrjár aðrar konur, auk hjónanna á Breiðumýri Allt þetta fólk ætlaði djöfullin handa sér á páskunum en tvær konur verða eftir.
„þetta allt fólk(ógr.) ætlaði andskotinn til páskanna handa sér, djöflunum þeim þar í helvíti sem hann hélt mest uppá, nema gömlu frúnna á Breiðumýri og Guðlaugu Björnsdóttur á Skinnastöðum, gamlar hórur djöfulsins. Þær áttu að vera hórurnar hans um alla eilífð“
Undir lok sögunnar virðist hersingin haf tekið drepsótt og læknar koma við sögu, þeir Oddur Stefánsson, Eggert Jónsson og Jón Þorsteinsson.

Skjal 10, framhlið

„draumaengillinn segir það sálunni“
„Tunglið, Hvar þar er á sinni braut“
„Sálin sjálf á sinni braut“
Greinilegt að Sölvi telur stöðu himintunglanna hafa áhrif á sálarlíf mannsins í draumi og í vöku. Í fyrstu lýsir hann eðli drauma en á eftir virðist fylgja draumur með kunnuglegu stefi. En þar kemur djöfullinn við sögu og gróteskar lýsingar á hans framferði.

Skjal 1, opna 5

Á þessum síðum heldur áfram umfjöllun um samband siðfræði og trúfræði. Bornir eru saman ólíkir siðir kristinnar trúar og fullyrt að í siðbótinni felist aðgreining á milli sifræði og trúfræði sem sé því ekki að finna í kaþólskum sið, heldur sé samþætt.

Skjal 1, opna 4

Á þessum síðum heldur áfram umfjöllunin um guðdóminn en nú er áherslan á hið dulda sem opinberast við dauðann. Fullyrt er að guð hafi ekki skapað manninn en lögð er áhersla á mikilvægi orkunnar, geislans eða ljóssins sem guð stendur á bak við og opinberast mönnum eftir dauðann. Allt lífs og liðið grundavallast á þessari orku guðdómsins.
Þó að umfjöllunarefni seinni síðunnar sé það sama og fyrr, þ.e. guðdómurinn er ekki víst að hún sé í beinu framhaldi af fyrri síðunni. En þar er fjallað um mismunandi afstöðu trúarbragða til guðdómsins en umfjöllunin hefst á afstöðu heiðingja en þeir sjá guð ekki sem veru eða kærleika en kannski sem sál heimsins.
Hann minnist líka á heimspekinginn Platon en frummyndakenning hans er grundvöllur nýplatonismans en í kenningum ýmsra trúarbragða og annara hugmyndakerfa er hann áberandi, t.d. hugmyndum kristinna manna um guð.
Því næst fjallar hann um hinn ópersónulega guð gyðingdómsins en eðli hans er hulinn. Ólíkt því sem hugmyndir kristinna manna gerir ráð fyrir en þeim hefur opinberast guðdómurinn í gegnum krist sjálfan.
Siðferðisboðskap kristinnar trúar virðist Sölvi telja meiri, en annara trúarhreyfinga svo sem gyðingdómsins, vegna þess að vilji Guðs er fylgjendum trúarinnar opinberaður gegnum boðskap krists. Í framhaldinu fjallar sölvi um samband trúar og siðferði.

Skjal 1, opna 3

Sögumaður boðar trú og speki Sölva af áfergju til lesandans sem er ávarpaður. Hann gerir grein fyrir smáatriðum er varðar þroska og framgang sálarinnar hérna megin grafar sem hann skiptir upp í fimm stig og á því efsta: „fer maðurinn að geta deilt fyrst sál eilífðarinnar, eða að sjá: að geislarnir koma frá einni uppsprettu …“ Með fimmta stiginu endar tröppugangur í þroska sálarinnar sem mun halda áfram um alla eilífð hinum megin grafar.

Skjal 1, opna 3

Sögumaður fjallar áfram um þessa ferð Sölva þar sem hann selur og afhendir gripi fyrir höfðingjana, hann víkur að guðdóminum og skilningi Sölva á honum eins og kemur fram í tilvitnunni hér að neðan en Sölvi muni síðar birta alla sína speki í Sjö þúsund þúsunda auka bók sinni.
„… hans og speki, og þekkingu hans á öflunum, lífsins, ljósins, náttúrunnar og andaheimsins“

Efst á seinni síðu opnu:
„Þér undrist ekki á því heiðvirðu lesarar mínir! Þótt ég viti sannleikann um mig í bókunum mínum, yfir gáfur þær er Alfaðir gaf og gefur Sölva“
Þessi byrjun á seinni síðu opnunnar er athyglisverð, hér ávarpar sögumaðurinn lesandann og gefur um leið upplýsingar um sjálfan sig og um leið hægt að skilja það svo að sögumaður og Sölvi séu einn og sami maðurinn.
Frásögnin af Sölva sem er gæddur gjöfum Alföðursins heldur áfram, í bókum hans má lesa um sannleikann enda er hann á drottins vegum, sannleikans og dyggðarinnar gegn lyginni og syndinni.

Skjal 1, opna 2

Sögumaður fer með nákvæma leiðarlýsingu í gegnum gjörvallan Skagafjörð og segir svo að svona sé honum skipað að þræða sýslurnar og selja fólki gripi sem hann hefur smíðað sjálfur í nauðungarvinnu hjá þeim.
Svo virðist sem Sölvi sé í þessari frásögn gerður út sem sölumaður fyrir höfðingja Norðurlands og fer sögumaður nákvæmlega yfir hvað Sölva er skipað að gera en bendir jafnframt á að Sölvi sé ekki líklegur til þess að fylgja þeim í einu og öllu, enda jafnist það á við synd að hlíða skipunum ættuðum frá djöflinum sjálfum.
Á eftir fylgir löng ræða sögumanns þar sem kostir þess að fylgja Guði eru raktir ítarlega, hann hvetur Sölva til dáða og til að fara ekki af spori sannleikans.
Á eftir f hann skal skila þeim öllum ágóðanum og halda um það nákvæmt bókhald. Honum er meinað að sofa eða hvílast á leiðinni.

Skjal 1, opna 2

Á fyrri síðu þessa skjals er umfjöllunin tvískipt. Á fyrri hluta síðunna er fjallað um gyðingdóminn sem Sölvi líkir við lífvana tré og segir hafa vikið fyrir heiðnum sið.
Síðan tekur við framhald af fyrri umfjöllun þar sem Sölvi eggjar lesandann til að fylgja Guði almáttugum. Jafnframt hvetur hann til stöðugs sjálfsnáms á vegi dyggðarinnar. Þar sem hver og einn horfist í augu við bresti sína og lærir þannig að þekkja þá sem er forsenda þess að geta bætt úr þeim og orðið betri maður.
Á seinni síðunni er framhald frá fyrra skjali þar sem varað er við rétttrúnaði og um leið bent á að aðferðir heimspekingana við sannleiksleitina þurfi ekki að vera í andstöðu við trúnna, heldur eigi að nýta slíkar aðferðir til að feta áfram á vegi dyggðarinnar

Skjal 1, opna 2

Umfjöllun um höfðingjana og djöfulinn heldur áfram en á seinni síðu snýr sögumaður sér að speki Sölva og fjallar um vetrarbrautina.

Skjal 1, opna 2

Þar sem bréfinu sleppir tekur við texti sem ekki er sendibréf en gæti verið heldur hefðbundin frásögn þar sem sögumaður ávarpar Sölva. Sama mál virðist þó vera til umfjöllunar en níðingur nokkur á Ketilsstöðum er þungamiðja frásagnarinnar. til umfjöllunar. Þessi maður er aldrei nefndur fullu nafni en ýmist kallaður Baulu – Steini eða Ketilgerðis – Steini. Frásögnin segir að hann hafi hrökklast austur vegna skuldar í Reykjavík.
Sögumaður frásagnarinnar segir hann hafa skrifað lygi í vegabréf Sölva. Þetta tengist greinilega þeim atburðum sem urðu til þess að Sölvi hélt ferð sinni ekki áfram suður að Stafafelli í Lóni.

Skjal 1, opna 1

Rakaskemmdir gera lestur frekar erfiðan en umfjöllun sögumanns um um guð og speki Sölva heldur áfram á seinn síðu opnunnar víkur hann máli sínu að höfðingjunum íslensku sem eru í slagtogi með djöflinum.

Skjal 1, opna 1

Bréfið vinstra megin á opnunni er einnig stílað á Bjarna Sveinsson prest í Múla í Skriðdal og er stefna á hendur honum fyrir illa meðferð á spekingnum Sölva. Bréfið byrjar á aðvörun, bréfritarinn segir viðtakandanum að vara sig á bræðrum hans og frændum einkum bróður hans Jóni faktor. Í lok bréfsins er Bjarna ráðlagt af bréfritara að skamma ekki ferðafólk sem ekkert hefur gert honum og allra síst níðast á þeim manni sem er vitrari og betri en aðrir, bréfið er undirritað af Sölva og „Grafskrift“ Bjarna fylgir með þar fyrir neðan.
Bréfið hægra megin hefst á því að Sölvi segist vera staddur á Ketilsstöðum (væntanlega á Völlum) og áformaði að halda ferð sinni áfram að Stafafelli í Lóni og hafi til þess leyfisbréf. Hins vegar kemur fram að Sölvi verður að snúa við.
Það er ljóst að þessi bréf snúast um áform Sölva um að ferðast að Stafafelli til þess að sækja þar hluti í hans eigu. Það er þekkt og kemur m.a. fram í umfjöllun Jóns Óskars (Sölvi Helgason: Listamaður á hrakningi, bls. 93.) að Sölvi fékk reisupassa til að sækja að Stafafelli ýmsar eigur sínar. Jafnframt er ljóst að þangað fór hann aldrei, heldur þvældist hann um Norðausturland þar sem hann var handsamaður síðla árs 1853 fyrir flakk. Ekki er annað að sjá á þessum bréfaskrifum Sölva en að hann hafi ætlað að fylgja áformum sínum eftir en af einhverjum ástæðum hafa þeir Bjarni og Björn komið í veg fyrir það.

Skjal 1, opna 1

Sögumaður fer í fyrstu yfir þær híðingar sem Sölvi má þola en guðdómurinn gagnast Sölva ekki aðeins til stórkostlegra vinnuafkasta. Hann veitir honum styrk til að þola hverja þá raun sem hann þarf að þola.
Sögumaður fjallar um ýmsa þætti guðdómsins sem styrkja Sölva eins og ást guðs og hin „eilífa speki“ sem gera Sölva að þeim vitra og góða manni sem hann er. Öðru máli gegnir um höfðingjana en líf þeirra einkennist af „lífleysi“, spillingu og synd.
Sögumaður fer í fyrstu yfir þær híðingar sem Sölvi má þola en guðdómurinn gagnast Sölva ekki aðeins til stórkostlegra vinnuafkasta. Hann veitir honum styrk til að þola hverja þá raun sem hann þarf að þola.
Sögumaður fjallar um ýmsa þætti guðdómsins sem styrkja Sölva eins og ást guðs og hin „eilífa speki“ sem gera Sölva að þeim vitra og góða manni sem hann er. Öðru máli gegnir um höfðingjana en líf þeirra einkennist af „lífleysi“, spillingu og synd.
Á seinni síðu opnunnar heldur ferð Sölva áfram þó þeir séu nýlega búnir að senda hann um Austur og Norðurland senda þeir hann að stað aftur en í þetta skiptið með passa. Ferðinni er heitið alla leið á suðausturlandið að Stafafelli í Lóni. Sögumaður fjallar almennt um mannvonsku þá sem Sölvi má þola og þær birgðir sem hann má bera. Undir lok síðunnar fjallar sögumaður um hversu mikið veröldin hafi farið á mis við vegna þess hvernig ilskan og grimmdin hafi halið Sölva frá þeim störfum sem hefðu verið til mikilla bóta.

Results 256 to 340 of 987