Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar greiðslur fyrir fæði vegna Snorra, sonar Sigurðar. Með liggur reikningur frá Einhildi til Sigurðar.
Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar: Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906. Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936. Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950. Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.
63 umslög, sem ekki tókst að para saman við bréf. Flest öll stíluð á Sigurð Sigurðsson. Á sum þeirra er búið að rita dagsetningar eða aðrar athugasemdir.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar greiðslur fyrir húsaleigu fyrir Snorra son Sigurðar, fréttir af fjölskyldunni og fleira.
Bréfið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar eignahlut Þórunnar í Ártúni í Hofshreppi. Með liggur skrá yfir muni Þórunnar úr búinu.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 25,4 x 20,6 sm, bréfsefni Sigurjóns Sigurðssonar lögreglustjóra. Með liggur umslag. Búið er að rífa frímerki af umslaginu.