Skýrslan er skráð á pappírsörk í foliostærð. Þar gerir skýrsluritari grein fyrir verkþáttum og fjölda dagsverka og launum vegna vegavinnu í Hofshreppi sumarið 1900.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar nýtt fyrirkomulag á búnaðareftirlitsstarfsemi. Með liggur fjölritað blað með yfirskriftinni: "Ræktunarsamband Norðurlands og búnaðarlögin" og er það í A4 stærð.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 23,5x34 cm. Bókin er 304 númeraðar síður og þar af eru 6 auðar. Kápan er farin að losna frá bókinni og kjölurinn nokkuð slitinn. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls fjórar skrifaðar síður. Það varðar tillögur reikningarnefndar um sjóðsreikninga. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar skemmdir í landi Bólu. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Tillögurnar eru handskrifaðar á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Með liggur samþykkt á pappírsörk í A5 stærð. Þær varða sundkennslu í Skagafirði. Ástand skjalanna er gott.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, tvær skrifaðar síður, undirritaðar af Árna Jónssyni. Svör eru rituð aftan við, undirrituð af Sigurði Jónssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Með liggur reikningur fyrir fæði Guðmundar Jónssonar farkennara í Rípurhreppi veturinn 1920-1921.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls 3 skrifaðar síður. Það varðar tillögur um niðurjöfnun útsvara á Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur merkt örk í folio stærð sem slegin hefur verið utan um skjalið. Það varðar hrossasölu. Ástand skjalsins er gott.
Stílabók í A5 broti, alls 89 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Varðar ástand sýsluvega. Undirritað af Lúðvík Kemp. Bókin er nokkuð óhrein en heil.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Tillögurnar eru vélritaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða fjallskilamál í Akrahreppi. Með liggur afrit í sömu stærð, gert með kalkipappír. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar sýslusjóð og sýsluvegasjóð. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Minnisblaðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það er gefið út af framkvæmdastjóra Alþingishátíðar og varðar "Nokkur atriði til athugunar fyrir héraðsnefndirnar." Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélrtiað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð á ræktunarsjóðsláni fyrir Guðmund og Hjörleif Andréssyni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Það er svar hreppsnefndar Skefilstaðahrepps við útsvarskæru Jóns Jónssonar.
Umsögnin er rituð á pappírsörk í folio stærð. Um er að ræða umsögn nefndar sem kosin var vegna tjóns á brúnni. M.a. er staðfest þátttaka brúarsmiðsins í tjóninu.
Athugasemdir eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Varða athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Skefilsstaðahrepps fardagaárið 1915-1916 og svör við þeim. Með liggur reikningur vegna lækniskostnaðar, 2 kvittanir vegna sauðfjárböðunar og hvittun vegna Ræktunarsjóðsláns. Ástand skjalanna er gott.
Fjórir seðlar í mismunandi stærðum. Kvittanir sem varða leigu á húsnæði og jarðnæði. Virðast allar úr Hofshreppi og tveir þeirra eru merktir sem fylgiskjöl 1 og 2. Ástand skjalanna er gott.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Þær varða sveitarsjóðsreikning Skefilsstaðahrepps fardagaárið 1919-1920. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Með liggur bréf frá nefnd um minnismerki. Tillagan varðar minnismerki um nokkra látna Skagfirðinga. Ástand skjalsins er gott.