- IS HSk N00016-A-B-Mic165
- Item
- 1930-1945
Snjóþyngsli við Aðalgötuna. Götur Sauðárkróks voru lengi vel handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir bílaumfer um þær á vetrum þegar snjór var sem mestur. Aðalgata 17 og 19.
Snjóþyngsli við Aðalgötuna. Götur Sauðárkróks voru lengi vel handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir bílaumfer um þær á vetrum þegar snjór var sem mestur. Aðalgata 17 og 19.
Aage Michelsen og Anna Lísa Michelsen í kartöflugarði. Matjurtagarðar voru gríðarmikilir á Sauðárkróki. Árið 1940 var uppskera Sauðkrækinga af kartöflum 335 tunnur samkvæmt hagskýrslum.
Blíðfari SK59 eign Hreggviðað Ágústssonar.
Síldarsöltun á Sauðárkróki. Síldarsöltunin var fátækum heimilum á Sauðárkróki veruleg búbót.
Horft suður eftir Sauðárkróki.
Á síld um borð í Skagfirðingi SK 1. Frank Michesl í félagi við fleiri menn stóður fyrir kaupum á skipinu frá Belgíu. Útgerð skipsins reyndist afar erfið, en mikil atvinnubót varð af því. Hvíldu ábyrgðirnar að mestu á Michelsen og allt valt á að síldin veiddist. Skagfirðingur var síðast gerður út frá Sauðárkróki árið 1940. Vinstramegin bakatil Sigvaldi Þorsteinn Sveinn Nikódemusson (1908-1990) Tilgáta um Sighvat Pétursson Sighvats (1922-1991) Lengst til vinstri Óskar Magnússon
Aage Michelsen með tíkina hans Ole Bang en hún var kölluð Bjana. Hún var eflaust eini bolabíturinn á Sauðárkróki á þeim tíma.
Horft yfir Sauðárkrók, bátur við gömlu bryggjuna, sem var utan við hús Verslunar Haraldar Júlíussonar.
Guðrún Pálsdóttir og Elísabet Beck
Guðrún Pálsdóttir Michelsen og Elísabet Beck.
Jórunn að gefa hænunum. Magnús Jónsson og Kristinn Michelsen í dyragættinni. Hænsnarækt var mikilvæg búbót fyrir marga Króksara. Árið 1940 voru ríflega 450 hænur á Sauðárkróki en íbúar ríflega 900.
Aage á sleða sem Frank Michelsen smíðaði.
Karen Edith, Frank og Guðrún Michelsens
Elsa og Karen "Dúdda" kæla sig í Sauðárgili.
Það var vinsælt tómstundargaman að baða sig í Sauðánni enda höfðu Skagfirðingar ekki kynnst hitaveitu og þeim þægindum sem nægt magn af heitu vatni hafa í för með sér.
Vetrarhörkur á Sauðárkróki. Á þessum tíma voru götur handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir að bílar færu um þær þegar snjór var sem mestur.
Aage heldur á systkinabörnum sínum þeim Önnu Lísu og Frank Pálssyni
Michelsens fjölskyldan var með kanínur sem var afar fátítt á Sauðárkróki, ef ekki einsdæmi. Ekker laust við að kanínubúskapur hafi farið nokkuð fyrir brjóstið á Sauðkrækingum sem áttu fremur að venjast áti á sauðkindum ekki ekki þessum vinalegu dýrum. Á myndinni eru Aðalsteinn, Aage og Pála Elínborg.
Aage og Kristinn Michelsens vetrarbúnir.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Hinn 10. maí 1940 var Ísland hernumið af Bretum. Um sumarið kom um 50-60 manna flokkur breskra hermanna til Sauðárkróks og hafði þar bækistöð. Myndin er líklega tekin árið 1941. Hafði þá fækkað í liðinu. Herlið var yfirleitt fámennt á Sauðárkróki, yfirleitt ekki nema nokkrir menn sem áttu að verja þorpið. Bæjarlífið fór furðulítið úr skorðum þrátt fyrir þessa heimsókn og fór vel á með hermönnum og heimafólki. Annar frá vinstri í aftari röð er merktur sem Charles
Nautgripaslátrun, Gísli í keldudal fláir en sá sem heldur á brýninu er óþekktur.
Höfði. Gamla símstöðin á Sauðárkróki. Símstöðin var opnuð hinn 1. október 1906 og strfrækt þar til ársins 1954. Við símstöðina var hið fræga kjafrahorn, þar sem íbúar bæjarins hittust til skrafs og ráðagerða, enda stutt að sækja fréttir úr hinum stóra heimi.
Séð yfir Sauðárkrók
Georg Michelsen
Nýja höfnin á Sauðárkróki í byggingu. Höfnin var gríðarmikið mannvirki og boðaði byltingu í atvinnuháttum á Sauðárkróki steypuklumbar bíða í röðum eftir að vera sökkt við hafnargarðinn og verja hann fyriri úthafsöldunni. Myndin er tekin á árunum 1938-1939.
Aage Micehlsen á tréhesti. Þennan hest fékk Frank Michelsens að gjöf frá Danmörku þegar hann var á fyrsta ári, s.s. 1914 þá var hesturinn klæddur með skinni eða skinnlíki.
Anna Lísa og Frank sonur Páls Michelsens um borð í kassabíl. Aage Michelsen bakvið bílinn. Kassabílar voru uppáhald leikföng margra krakka á Króknum og var þessi kassabíll knúinn með keðjum sem án efa hefur létt á drættinum.
Frá vinstri Aage Michelssen, Kristinn Michelsen, Magnús Jónsson, tveir óþekktir.
Flutningur á mó úr gröfuminni á Krók var erfið vinna. Matthildur Kristinsdóttir fósturdóttir Steindórs Jónssonar og Karen Edith standa í móflutningum.
Frá vinstir Elsa Michelsen, "Lilla á Stöðinni" og Karen Edtih Michelsen.
Börn í skrúðgöngu á leið út á Eyri til að taka þátt í hátíðarhölum 17. júní 1944. Hátíðarhöldin hófust í kirkjunni en síðan var gengið í fylkingu út á Eyrina. Á annað hundrað börn gengu fremst og báru litla fána. Á eftir börnunum komu fullorðnir, en fremstur í þeirri fylkingu bar merki Skagfiðinga frá Alþingishátíðinni 1930.
Hús Michelsens hjóna séð að baka til.
Karen Edith, Frank Michelsen og AAge eða Kristinn
Bræðurnirnir Aage og Kristinn að tuskast við fjöruborð
J.Fr. Michelsen þriðji frá vinstri, Við hlið hans er Magnús frá Nesi. Aðrir óþekktir.
Franch Michelsen
Hjörtur Laxdal liggur við tjald. Bíllinn á myndinni sjúkrabíll K-32
Nýji hafnargarðurinn, sjá má bragga sem bresku hermenninirnir höfðu byggt.
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Mynd tekin yfir sundlaugina í Varmahlíð.
Jörgen Frak Michelsen var sennilega sá fyrsti sem hért svín á Sauðárkrókur. Svínaeignin er nýmæli og af mörgum óhæfilegur matur. Árið 1943 voru 10 svín talin til heimils á Sauðárkróki.
Aage á hestbaki og Dúdda stendur hjá.
Aage Michelsen
Frank með börn. Anna Lísa Michelsen er við fætur afa sins, tilgáta um Svövu Svarvars við hlið Önnu.
Frá vinstri Magnús Jónsson, Kristinn Michelsen, Jórunn, Karen og börnin fremst óþekkt.
Frank Michelsen úrsmiður á Sauðárkróki.
Paul Michelsen og Franch Michelssen
Bræðurnir Kristinn og Aage, mynd tekin á fermingardegi Aage
Michelsen áður en hann kom til Íslands.
Frank Michelsen þegar hann var í hernum í Danmörku, tekin áður en hann kom til Íslands.
Bræðurnir Kristinn og Aage á fermingadag Kristins árið 1940.
Franch Michelsen á úrsmíðaverkstæði sínu í Reykjavík
Jörgen Frank Michelsen á úrsmíðaverkstæði sínu í Reykjavík.
Frank Michelsen og Guðrún Pálsdóttir Michelsen
Sveinstykki Frank sonar Michelsen
Sveinstykki Franks yngir Michelsen. Klukkuverk.
Jörgen Frank Michelsen
Aftasta röð frá vinstri er skráð: Sigga Þórðar (Blöndal), Óþekktur, Þorvaldur Guðmundsson kennari, Jón Þ. Björnsson skólastjóri.
Miðröð Aðalheiður Árnadóttir, Aage Michelsen?, Magnús Bjarnason kennari, Alda Bjarna.
Fremstaröð frá vinstri: Sigurður Margeirsson, Snorri Sigurðsson ?, Hjalti Guðmundsson, Bjöggi Skaftason ?,
Hermaður sem dvaldi á Sauðárkróki á hernámsárunum.
Bíll við Skagfirðingabraut. Hugsanlegir eigendur eru Ole Bang og Þorvaldur Þorvaldsson "Búbbi"
Tveir hermenn. Breskir hermenn
Síldarsöltun á Sauðárkróki.
Michelsens fjölskyldan frá vinstri; Frank, Ottó, Aage, Hulda, Georg, Elsa, Aðalsteinn og Páll . Sitjandi frá vinstri Karen, Frank, Guðrún og Pála.
Aðalgata 16. Sýslumannshús, Michelsens hús.
Útför, mynd tekin að líkfylgd.
Lýðveldishátíð 1944 á Sauðárkróki
Þessi mynd er án vafa tekin á Lýðveldishátíðinni 1944, þegar Íslendingar fögnuðu sjálfstæði. Þá var haldin mikil hátíð og bærinn skreyttur.
Karen Michelsen í síldarvinnu.
Anna Lísa og Edda Michelsen gef hænum í bakgarði Aðalgötu 16.
Ingólfur Siggeir Andrésson
Tveir bílar og fólk í kring.
Guðrún Michelsen í garði sínum
Guðrún Pálsdóttir Michelsen að huga að garði sínum að Aðalgötu 16.
Ingólfur Andrésson við sjúkrabílinn á Sauðárkróki.
Aage Michelsen á hestbaki.
Hjörtur Laxtal við tjald.
Á íþróttavellinum á Sauðárkróki
Hátíðarhöld á núverandi íþróttavelli Sauðárkróks.
Bátar við höfnin á Sauðárkróki, minni báturinn er bátur Michelsens.
Gæsir, en Michelsen var alltaf með gæsir. Mynd úr safni Michelsens en myndin er ekki tekin á Sauðárkróki.
Mynd tekin í Utanveðurnesi frá vinstri: Sigurlaug Gunnarsdóttir, óþekkt, Guðrún Pálsdóttir Michelsen, Jörgen Frank Michelsen, óþekkt barn, Sigurgeir Daníelsson, Ingvard Sörensen apótekari
Mynd af Frank og Jytte.
Hjörtur Laxdal (1908-1946) við bíl K 47
Bílar X 520. Mynd ekki tekin í Skagafirði.
Michelsensbræður frá vinstri: Ottó, Aage, Paul, Aðalsteinn, Kristinn, Georg og Franch mynd teki 15.10.1950
Pála Michelsen, Pála (hjá Steindóri) og Ísleifur Gíslason.
Aage Michelsen, Beta eða Svana og Kristinn Michelsen
Mynd tekin norður Aðalgötu, Svangrund, Apóteki og syðri búð.
Sauðárkrókskirkja.
Óþekkt barn með dúkku
Sauðárkrókur, Bærinn undir Nöfunum.