Showing 5998 results

Archival descriptions
With digital objects
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Mynd 63

Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954.
Aftan á hana er skrifað: "Ráðhús Winnipeg borgar. Þar er mjög fögur og skrautleg bygging, með fallegum garði með minnismerkjum fyrir framan."

Mynd 63

Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Í skýringum með myndinni segir "bryggjukarlar við Saurbæ."

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 62

Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954.
Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna fyrir framan eina stærstu járnvöruverslun borgarinnar, heldur súr á svipinn. Á rúðunum má sjá rendur, um 10 cm frá kantinum, hringinn í kring. Þetta er til varnar þjófum, Þessi rönd er eins og úr brönsi og er rafstraumur á henni, og ef kemur sprunga í hana hringir þjófabjalla. þetta er mjög nýtt og er á mörgum byggingum í Wpeg. Ekki vorum við nú að hugsa nánar um það."

Mynd 62

Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Í skýringum með myndinni segir "bryggjukarlar við Saurbæ."

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 61

Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.

Mynd 609

Myndirnar frá 609 til 616 eru að öllum líkindum teknar á Vífilstöðum, en Kristján C dvaldi þar til lækninga á berklum frá 1920 til 1926.
Óvíst er hvort þessar myndir eru teknar þá eða síðar. Fólkið á myndunum er óþekkt.

Mynd 603

Tveir hestar. Sörli Lóu og Gráni Binna.
Líklega er það Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) sem stendur á bak við þá.
Þess má geta að Sörli og Gráni voru felldir ca. um 1955 og heygðir á túni Binna sunnan við þar sem nú er sjúkrahúsið á Sauðárhæðum.

Mynd 60

Myndin er tekin í Winnipeg 1954.
Aftan á hana er skrifað: "Mynd af mér fyrir aftan húsið hjá Kobba, þegar við vorum að steypa stéttina. Hvíld."

Mynd 60

Fimm óþekkt börn.
Aftan á myndina er ritað:
"Sigríður Magnúsdóttir með lukku ósk frá S. Þórarinsdóttur."

Mynd 60

Anna Kristín Jónsdóttir, áður húsfreyja á Völlum með dótturdóttur sína Kristínu Bjarnadóttur, síðar húsfreyju í Ásgeirsbrekku. Myndin tekin á Uppsölum, líklega 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 6

Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er líklega Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.

Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)

Mynd 6

Á myndinni sést maður með körfu úr loftbelg og hluti af belgnum.

Örn Erhard Þorkelsson (1953-)

Mynd 6

Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif.
Myndin sýnir íbúðir aldraðra við Túngötu á Hofsósi í byggingu.

Guðni Sigurður Óskarsson (1950-)

Mynd 6

Brúntóna pappírskópía í stærðinni 5,9 x 8,8 sm. Á myndinni er Jónas Stefánsson smiður. Myndin er límd á spjald merkt Jóni J. Dahlmann ljósmyndara á Akureyri.

Mynd 6

50 ára afmæli Sögufélagsins 1987 haldið í Safnahúsinu. Sjá 01.
Leikarar úr Leikfélagi Sauðárkróks leiklesa úr verkum félagsins. F.v. Kristján Skarphéðinsson. Hilmir Jóhannesson, Erling Pétursson, Hulda Jónsdóttir, Elsa Jónsdóttir og Helga Hannesdóttir.

Sögufélag Skagfirðinga (1937- )

Mynd 6

Karlmenn við leikfimiiðkun utandyra. Malarvegur fyrir miðri mynd og í brekku handan hans stendur fjöldi áhorfenda.
Tilefni og staðsetning óþekkt.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 6

Brúntóna mynd, visit kort merkt Arnóri Egilssyni ljósmyndara. Á myndinni er spariklæddur karlmaður. Nafn mannsins er óþekkt.

Björn Jóhann Jóhannesson (1905-1970)

Mynd 6

Ljósmynd í stærðinni 9 x 9 sm. Á myndinni sjást m.a. húsin við Aðalgötu 16, 14, 12 og 10 við Aðalgötu og Sauðárkrókskirkja. Myndin er tekin af svölum hússins við Aðalgötu 21.

Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson (1941-

Mynd 6

Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar:
"Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970."
Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.

Mynd 6

Tvær óþekktar konur.
Framan á myndina er skrifað: "ingibjörg og mamma."
Aftan á myndina er skrifað: "Ingibjörg frænka mín og mamma. Tekið í Ágúst 1952.

Mynd 6

Frá Akureyri. Úr norðurglugganum á húsi Egils. Húsið heitir "Uppsalir" og Egill var eigandi efri hæðar hússins.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 6

Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað:
"Kári er þarna að eta vínber allmakindalega, og ég hef orðið uppnumin úr skónum."

Mynd 6

Óþekkt kona með barn.
Myndin er tekin á Sauðárkróki, sér í Nafirnar í baksýn.

Eyþór Stefánsson (1901-1999)

Mynd 6

Lóu-Skjóni, kenndur við Lóu á Uppsölum, Sesselju Ólafsdóttur, en myndir af henni eru í þessu safni. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Results 341 to 425 of 5998