Bókin er innbundin í stærðinni 13,5x20,5 sm. Á titilsíðu stendur: "Spedjerbogen. Patrouilleövelser for drenge. Generallöjjtnant sir R.S.S. Baden-Powells scouting for boys ved C.Lembcke. Andet oplag. Gyldendalske Boghandel Nordisk forlag. MDCCCCXI." Kápa farin að losna frá og kjölur slitin, annars í ágætu ásigkomulagi.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ábyrgð á Ræktunarsjóðsláni fyrir Tryggva Kvaran á Mælifelli. Ástand skjalsins er gott.
Símskeytið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. það varðar mótmæli á rýmkun heimildar til dragnótaveiða og er stílað á Jóns Sigurðsson alþingismann. Ástanda skjalsins er gott.
Konráð Gíslason sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsum á Frostastöðum. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Dagsett 20.06.1973. Teikningar fylgja ekki.
Jóhann Jóhannesson sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsi og þurrheyshlöðu á Silfrastöðum. Byggt verður úr járni og timbri á steyptum grunni. Umsókn dagsett 20.06.1973. Teikning fylgir ekki.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar byggingu á sundlaug og sundskýli á Gili í Austur-Fljótum. Ástand skjalsins er gott.
Friðrik læknir ræðir við Jón Norðmann Jónasson frá Selnesi (0:00:00-0:06:10) Ekki góð upptaka. Síðar á upptökunni segir Tryggvi frá Lónkoti frá Sveini Sveinssyni (lagsmanni)
Í upphafi upptökunnar er ónýtt efni (0:00:00-0:13:00) Ólína Jónasdóttir skáld (Tilgáta) fer með ljóð og sögu (0:13:00-0:33:50) Bjarni Halldórsson Uppsölum (Tilgáta) fer með vísur til Ólínu Jónasdóttur (0:33:51 til enda)
3 erindi frá Íþróttanefnd Ríkisins, tvö frá 1948 og eitt frá 1964. Í öðru erindinu frá 1948 er farið yfir úthlutun fjárstyrkja til hinna ýmsu íþróttamannvirkja og starfrækslu.
Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og undirritað af Stefáni Bjarman. Aftan á það eru ritaðar með blýanti nöfn þeirra sem skipa fræðsluráð, rituð af Sigurði.
Fundargerð Félagsmálaráðs í júlí 1979. Undir fundargerðina rita Friðrik J. Friðriksson, Hulda Jónsdóttir, Helga Hannesdóttir, Sæmundur Hermannsson, Sigurlína Árnadóttir og Guðmundur Gunn.
Innbundið hefti þar sem fjallað er um ágreining innan bæjarstjórnar Sauðárkróks um bæjarreikningana 1959-1960. Fyrir útgáfu heftisins stóðu frambjóðendur I-listans þeir Skafti Magnússon og Erlendur Hansen.