Kappreiðar á Fluguskeiði við Sauðárkrók. Knaparnir eru: Sigurður Ólafsson söngvari (t.v.) og Leifur Þórarinsson í Keldudal. Árni M. Jónsson er milli hestanna. Á dómpalli standa frá vinstri: Hilmar Jónsson frá Ási- Guttormur Óskarsson- Haraldur Árnason og Þorvaldur Þorvaldsson. Safn Kr. C. Magnússonar.
Sauðkrækingar á hestbaki. Frá vinstri: Björn Ásgrímsson- Jón Baldvinsson- Guðmundur Ó. Guðmundsson- Hafsteinn Lúðvíksson- Stefán Helgason- Þorvaldur Þorvaldsson- Björn Björnsson og Guðmundur Sigurðsson. Myndin er tekin á Skagfirðingabraut- innan Ábæjar. Safn Kr.C. Magnússonar.
Útreiðatúr hestamanna á Sauðárkróki. Frá vinstri: Björn Ásgrímsson- Jón Baldvinsson- Hafsteinn Lúðvíksson- Guðmundur Ó. Guðmundsson- Stefán Helgason- Björn Björnsson- Guðmundur Sigurðsson og Þorvaldur Þorvaldsson. Tekið á Skagfirðingabraut- Sjávarborg í baksýn. Safn Kr.C. Magnússonar.
Sauðkrækingar á hestbaki. Frá vinstri: Björn Ásgrímsson- Jón Baldvinsson- Guðmundur Ó. Guðmundsson- Hafsteinn Lúðvíksson- Stefán Helgason- Þorvaldur Þorvaldsson- Björn Björnsson og Guðmundur Sigurðsson. Myndin er tekin á Skagfirðingabraut- innan Ábæjar. Safn Kr.C. Magnússonar.
Hestar og hestamenn í Bólstaðarhlíð í Húnavatnsþingi. Bóas Magnússon er lengst til vinstri. Í hlíðinni fyrir ofan Botnastaðabrekku mótar fyrir elsta veginum upp á Vatnsskarð milli Húnavatnssýslu og Skagafjarðar.
Eiríksstaðir í Svartárdal. Laxárdalsfjöll fyrir miðri mynd í norðri. Nágranni kveður Guðmund Sigfússon (1906-1993) með kossi - en Guðmunda Jónsdóttir húsfreyja (1908-1937) stendur á bæjarhlaði.
Bréf en ekki kemur fram hver var viðtakandinn. Með haus: "B. Schweizer - Diessen. Alleinvertretung fur islandische kleinpferde. Dagsett 5. maí 1937. Fjallar um innflutning á íslenskum hrossum til Sviss.
Mynd tekin á Sauðárkróki, Sauðáin rennur neðan við Sauðárhæðir. Í baksýn má sjá Esso sjoppurnar, eldri sjoppan nær og nýja fjær. Reiðskóli Ingimars Pálssonar
Sigurbjörn Sigurpálsson "Bubbi" frá Ingveldarstöðum, Reykjaströnd ásamt reiðhesti sínum. Litla stúlkan er Sólbrún Friðriksdóttir (1941-). Sólbrún er dóttir Friðriks Friðrikssonar (1910-2008) og Laugu. Sigurbjörn Sigurpálsson 15. janúar 1917 - 18. mars 2008 Var á Ingveldarstöðum, syðri bær, Sauðárkrókssókn, Skag. 1930. Fósturmóðir: Anna S. Sigurðardóttir. Sjómaður á Sauðárkróki, síðar verkstjóri í Reykjavík.