Mynd sem virðist vera af iðnaðarhverfi. Hægra megin er stendur rautt hús og einnig má sjá tvenna ljósastaura. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er líklega aðkoma bæjar - þar sem vegur hlykkjast inn í bæjinn. Staðsetning ókunn. Hús eru í forgrunni - fyrir miðju myndar (þar sem vegurinn hlykkjast) og svo loks húsaþyrping í bakgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Myndefnið er fremur óljóst. Á myndinni er akur og fyrir miðju má greina hús. Í forgrunni er líklega grjót (mögulega hestur). Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Landslagsmynd þar sem gróður er í forgrunni og fjöll í bakgrunni - fyrir miðri mynd má sjá vatn eða á. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Tvennar ókláraðar skissur sem eru hluti af skopmynd af þremur mönnum standa saman við tröppur og einn þeirra heldur á flösku (mynd nr. JG 839 er kláruð útgáfa af myndinni. Á þeirri mynd stendur: „Vigurfrændi heimsóttur (af frændum og keflavíkurgöngumönnum)“). Myndin er gæti verið frá 1965-1985.
Málverk af því þar sem horft er yfir þök og þar á meðal má sjá kirkjuturn - óvíst hvar - mögulega í Hafnafirði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Myndefnið er vegur sem hlykkjast í gegnum landslag - með tveimur húsum sitthvorum megin vegar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Óklárað málverk af mannesjum standa hjá hesti í landslagi - óvíst hvar. Í bakgrunni má sjá rafmagnsstaura á hæð eða litlu fjalli. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Landslagsmynd þar sem í forgrunni eru þrennar litlar trjáhríslur en handan við vatnið/sjóinn er ljósastaur og rafmagnsstaur. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af hestum við hús. Myndin er fremur óljós en tveir hestana eru áberandi í forgrunni ofg byggingar í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er óljóst en krani er fyrir miðju myndar til vinstri og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Til hægri á myndinni má sjá traktor og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu og sennilega einhverskonar iðnaðarhúsnæði. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er óljóst þar sem myndin er mjög dimm. Vegur virðist liggja milli hæða og girðingastaurar við veginn eru áberandi. Uppi á einni hæðinni/fjallinu er ljós - mögulega stendur þar viri eða brennur þar bál. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Landslagsmynd með tveimur kindum á beit - ein dökk og ein ljós. Óvíst hvaðan. Í bakgrunni má sjá þrjár rafmagnsstaura. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Landslagsmynd - óvíst hvaðan - mögulega í Skagafirði með Blönduhlíðarfjöllin í bakgrunni. Í forgrunni er jarðlita og svört jörð. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Landslagsmynd þar sem vegur liggur í gegnum gulleitann haga og fjall er í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975. Mynd vantar í safn.
Skissa af iðnaðarhúsnæði við litla bryggju í firði - staðsetning ókunn. Í forgrunni má sjá tvenna báta en í bakgrunni er fjall. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Málverk af bátum í fjöru - í bakgrunni er einhverskonar hrúgur sem virðist vera búið að tjalda yfir - mögulega nethrúgur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Skissa af hesti í forgrunni til hægri og í bakgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir myndina og handan við hana er lítið hús. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er bátur sem stendur á landi. Á bátnum stendur manneskja og baksvip annarrar manneskju má sjá í forgrunni. Skipið virðist vera í Elliðárvogi en handan við voginn má sjá Grafarvog og Úlfarsfell. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Óklárað málverk af manni standa við lítið bál - óvíst hvar. Í bakgrunni er einhverskonar veggur - líklega stífla. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri virðist vera af einhverskonar fígúrum - litasamsetningin er svört - græn - fjólublá bleik og blá. Sú neðri er af nokkrum bláum hringum á svörtum bakgrunni. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Þrennar abstrakt skissur. Sú efri sem - sem er einnig stærst - virðist vera af fjalli með gulan hring neðst. Sú neðri til vinstri er nokkrar marglitar doppur á svörtum bakgrunni. Sú neðri til hægri er brúnleit með grænan ramma. Óvíst er hvort skissurnar eru eftir Jóh. Geir. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.
Tvennar abstrakt skissur. Sú efri er - sem er jafnframt stærri - er brúnleit með svörtu sporöskjulaga formi með bleikum lit í miðjunni. Sú neðri er grænleit - grá og blá. Myndirnar gætu verið frá tímabilinu 1960-1980.