Handskrifað skjal með fundargerð vegna dráttarvélakaupa og reglugerð um um notkun hennar. Að kaupunun stóðu búnaðarfélögin í Hofshreppi, Óslandshlíð og Hólahreppi að kaupunum. Skjalið er vel varðveitt en það hefur rifnað og er viðkvæmt viðkomu.
Í þessu safni er mikið af handskrifuðum og vélrituðum, formlegum og óformlegum bréfum, erindum, skýrslum og fundagerðum. Skjölin eru vel varðveitt og sum hafa rifnað. Gögn eru röðuð í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.
Í safninu eru handskrifuð og vélrituð pappírsgögn, bæði formleg og óformleg bréf, lög félags, teikning og skýrslur. Gögnin eru vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í safninu er skjal tengt ættfræði en ekki er kunnugt um það hvernig það tengist skjölum búnaðarfélagsins.
Stofnskjal fyrir Garðræktarsjóð hjónanna Jófríðar Björnsdóttur og Jóns Konráðssonar á Bæ á Höfðaströnd. Skjalið er vel læsilegt og hefur varðveist ágætlega. Inni í stofnskjalinu var stakt handskrifað blað, líklega er þetta hluti af ræðu sem tengist peningagjöfinni frá þeim hjónum.
Í þessu safni eru nokkrar skýrslur tengdar hrossarækt, Það eru fundagerðir sambandsstjórnar Landsambands Hestamannafélaga, starfssamþykkt fyrir Búfjárræktardeild Búnaðarsambands Skagfirðinga (B.B.S.S) og handskrifað bréf undirritað Haraldi Árnasyni, lög fyrir hrossaræktarsamband Suðurlands, frumvarp að reglugerð um kappreiðar fyrir félög í L.H. og Frumvarp til reglugerðar um ræktun reiðhests. Gögnin eru ágætlega varðveitt, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.
Innbundin bók með handskrifuðum bókhaldsfærslum. Bókin er vel læsileg en blekið er sumstaðar farið að smitast í gegnum blöðin einnig eru blettir eftir vökva á blaði inni í bókinni, að öðru leyti er hún í góðu ásigkomulagi. Límborði er á kili bókarinnar. Einungis er skrifað í hluta bókarinnar eða c.a helming hennar.
Forprentaðar, vélritaðar og handskrifaðar kvittanir og önnur bókhaldsgögn, Gögnin eru í sæmilegu ásigkomulagi, þau eru röðuð upp í ártalsröð, blöðin hafa gulnað og eru orðin snjáð, sum blöðin eru rifin.
Handskrifaðar jarbótaskýrslur fyrir jarðir í Hofshreppi. Skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar. Sumar skýrslurnar eru með blettum, líklega eftir vökva. Í safninu eru skjöl með tölulegum upplýsingum um jarðir í Hofshreppi og hluti af útfylltri skýrslu, líklega jarðbótaskýrslu sem er ódags.
Þrjár bækur í góðu ástandi og pappírsgögn í viðkvæmu ástandi. Samkvæmt gögnum er talið að félagið hafi verið stofnað 1938 og sameinast svo samkvæmt lögum Búnaðarfélagi Íslands 24.04.1974 og eignum félagsins ráðstafað þannig að sjóðurinn verði í vörslu hreppsnefndar en vöxtum hans varið til að verðlauna snyrtimennsku í búskap og umgengni á félagasvæðinu.
Bókin er harðspjalda, handskrifuð í góðu lagi en hreinsuð. Persónugreinanleg gögn, nöfn og heimili, greiðslur fyrir búfénað ásamt fundagerðum félagsins. Þar er tíðrætt um síldarmjöl sem skepnufóður gæði þess miðað við flokkun þess og það sem lakara er að notað það sem áburð.
Blað sem lá inn í Fjárgjalda og fundagerðabók, skjal um ártöl, fénaðartala ( nautgripi, sauðfé, hross og hey) og heybyrgðir 1907 -1914. Ekkert annað á skjali.
Harðspjalda handskrifuð fundargerðabók í góðu ástandi. Blaðsíður eru númeraðar og skrifað á 59 blaðsíður. Fremst kemur frá að félagið hafi verið stofnað 1938
Aðalreikningabók harðspjalda handskrifuð með númeraðar blaðsíður, skráðar eru tekjur, styrkir, eignir og gjöld félagsins. Bókin í góðu ástandi og skráð er í bókin heim að blaðsíðu 49 /298. Inn í bók liggur blár pappír Ásetningaskýrsla frá 1944 sem sett er með D-a reikningum frá 1938 - 1950.
Fylgiskjöl handskrifuð og prentuð innihalda aðalreikninga félagsinss, erindi, reikninga, skuldalista og önnur gögn s.s lög félagsins og samþykki. Gögnin eru hreinsuð af heftum og eru í misgóðu ástandi sum heilleg en önnur blettótt og rifinn.
Pappírsgögn prentuð og handskrifuð í viðkvæmu ástandi, prent farið að dofna og pappír rifinn. Samþykktir, lög og þrjár ársskýrslur félagsins frá 1948 - 1950. Inn í reikningabók lá blár pappír Ásetningaskýrsla frá 1944 sem settur er hér með D-a reikningum frá 1938 - 1950, látin fylgja ártali.
Gögnin innihalda rekstur félagsins, lög, fundagerðir og skýrslur eru vel læsilegar og segja sögu félagsins. Bækur er nokkuð góðar en þó viðkvæmar, los á blaðsíðum og gulnuð blöð en ein blaðsíða er laus. Nöfn, heimili og búpeningu er hér nefndur. Félagsmenn eru skráðir. Útigöngu og vinnuhross skráð svo og ær, lömb, kálfar, veturungar og naut. Fóðurkaup og skýrsluskráning.
Stór harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Lög félagsins, fundagerðir og skýrslur eru vel læsilegar og segja sögu félagsins.Bókin er nokkuð viðkvæm, los á blaðsíðum og gulnuð blöð en ein blaðsíða er laus. Nöfn, heimili og búpeningu er hér nefndur. Félagsmenn eru skráðir. Útigöngu og vinnuhross skráð svo og ær, lömb, kálfar, veturungar og naut.
Stór harðspjalda handskrifuð skýrslubók um búfé og fóðurforða í Skefilstaðarhreppi. Bókin var hreinsuð en í nokkuð góðu ástandi. Bók er rétt hálf skrifuð og krot er á nokkrum óskrifuðum blaðsíðum. Persónugreinanleg bók með nöfnum eigenda búfjár, býlum, upplýsingar um iðgjöld og afurðir.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Bókhald félagssins með rekstrarreikningum, efnahagsreikningum, fylgiskjölum, skrá yfir útborganir og skrá yfir síldarmjölskaup svo eitthvað sé nefnt.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Lítið skrifað í bók en skráðir eru efnahags- og rekstrarreikningar og skrá yfir síldarmjölskaup hjá Síldarverksmiðju Ríkisins á Siglufirði.
Harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi. Blaðsíður lausar, blettóttar og rifnar en bókin er föst við kjöl sem er með límborða á. Bókin er vel læsileg og gott væri að myndar hana til að varðveita heimildina.
Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í góðu ástandi. Hefti eru í bókinni og lítillega farin að ryðga. Aftast í bók er meðlimaskrá frá 1929, 1941, 1949, 1952.
Bréf sem fannst inn í fundargerðabókinni og er staðfesting á peningagjöf frá Sigríði Sigtryggsdóttur Skefilstöðum til Héraðssjúkrahúsins á Sauðárkróki. undirritað af Stefán Sigurðsson, gjaldkera.
Lestrarfélagið er safn bóka og pappírsgagna sem eru í viðkvæmu, misjöfnu ástandi en elstu gögnin hafa varðveist vel með vel læsilegan texta og fallegt ritmál. Lestrarsafnið er skipt upp i deildir I - II - III, Útskagi, Niðurskagi, Laxárdalur. Gögnin komu lítið flokkuð og ákveðið var að setja safnið niður í eins mikinn uppruna eins og hægt en flokkað er eftir efni og ártali Pappírsgögnin eru prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það. Bækurnar eru vel læsilegar en viðkvæmar. Gott væri að mynda þær til varðveislu og fróðleiks.
Fundagerðabækur í misjöfnu ástandi.Sú elsta lítil handskrifuð stílabók er í viðkvæmu ástandi, laus frá kili, hefti ryðguð og tekin, blaðsíður blettóttar og laus opna framt í bók sem er um lög félagsins. Lítil stílabók (afrit af elstu bók ) er með rifinn enda á blaðsíðum er er föst við kjöl. Sú yngsta er innbundinn í nokkuð góðu ástandi pg vel læsileg, blaðsíður gulnaðar.
Lítil handskrifuð óinnbundin bók um fyrstu stofnfund og lög félagsins. Bókin er laus frá kápu og kjölur með límmiða og mjög viðkvæm þyrfti að vera ljósmynduð vegna ástands og einnig hve hún er fallega rituð.
Lítil handskrifuð óinnbundin fundargerðabók en í hana hafa verið yfirfærðar upplýsingar frá elstu fundagerðabók A- 1. Aftast í bók skráð 1944 segir: Afrit samkvæmt ósk Árna Kristmundssonar á Hóli, sem nú um langt skeið hefur verið formaður félagsins. Skefilstöðum 1/3 1944. Sigurjón Jónasson. Bókin er í góðu ástandi, en kjölur rifinn.
Harðspjalda handskrifuð bók í heillegu ástandi. Hefti í bók eru ryðguð og smita á næstu blaðsíður og blaðsíður blettóttar en heilar og vel læsilegar. Í bók er blandað saman því starfi er félagið stóð fyrir félagatal, fundagerðir og árskýrslur.
Lítil óinnbundin gul bók um Lög um almenningssöfn ásamt tveimur handskrifuðum blöðum um Starfsreglur fyrir lestrarfélag Hvammsprestakalls. Bók í góðu ástandi en blöðin með ryðblettum eftir bréfaklemmu,
Handskrifuð pappírsgögn og litlar óinnbundnar bækur um þau samskipti sem eru í lestrarfélagi , félagatal, fylgigögn, bókaeign og leigu bóka. Gögnin eru í misgóðu ástandi og hreinsuð af heftum og bréfaklemmum.
Handskrifuð og prentuð pappírsgögn, yfirlitsskýrslur í ártölum og skrá um breytinga á bókaeign í ártölumum, aftast eru svo handskrifðuð pappírsgögn um keyptar bækur.
Lítil handskrifuð bók, óinnbundin og án kápu. Bókin í viðkvæmu ástandi og kjölur saumaður, nokkuð um rifin pappír. Aftast er skráning lista yfir bækur og tímarit dagsett 5. maí 1918. og er bókin dagsett vegna þessa.
Handskrifuð pappírsgögn í misjöfnu og misstóru ástandi, langir renningar og stærri skýrslueyðublöð, gögnin eru sett í ártalaröð og vegna óvenjulegrar stærðar gagna eru þau sett í uppunalegt brot eins og þau komu fyrir í safni.
Handskrifuð og prentuð erindi er koma til félagsins frá ýmsum aðilum s.s. Fræðslumálaskrifstofu,Bókaútgáfu Guðjóns Ó Guðjónssonar, Skrár yfir bækur og handskrifuð erindi.
Bókhaldsgögn er fylgja lestrarfélaginu eru pappírsgögn prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það.
Pappírsgögnin eru prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það á blöðum.
Handskrifaðar ársskýrslur um tekjur og gjöld félagsins. Gögni í nokkuð góðu ástandi en vek athygli á elstu gögnum frá 1902 - 1906 sem hafa einstaklega fallega rithönd Björns L Blöndal
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins, lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, blaðsíðurnar eru viðkvæmar, þar sem sum blöðin hafa fest saman. Kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins og lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum. Í bókinni er útprentað fundarboð og dagskrá aðalfundar þann 10.apríl líklega 1995.
Innbundin og handskrifuð bók, með fundagerðum félagsins. Bókin er mjög illa farin, binding bókarinnar er ónýt, blaðsíður eru lausar og blettóttar, kápan er einnig laus.
Harðspjalda handskrifuð bók um aðalfundi félagsins. Bókin er í nokkuð góðu ástandi en aðeins farið að sjást ryð í heftum og bókakápa er lúin en bók vel læsileg.
Harðspjalda handskrifuð bók merkt Gjörðabók. Bók í góðu ástandi en blaðsíður hafa verið rifnar úr bók og krass í bók eða frekar að segja listaverk eftir börn, en bókin er vel læsileg. Tvö laus blöð lágu inn í bók um fundagerð 1960 og eru sett aftan við bók í örk vegna uppruna.
Haðrspjalda stór bók um meðlimaskrá, og bændur, heimili og viðskipti. Bókin er persónugreinanleg, vel læsileg en nokkuð að byrja ryð frá heftum og blöð eru blettótt en heilleg.
Stór harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Upphaf bókar byrjar á Flóki Ungi, I. árgangur Brautarholti, 6. mars 1949. 1. tbl. þar stendur meðal annars, Flóki ungi á að vera félagsblað U.M.F Haganeshrepps og ætti að geta lifað jafnlengi félaginu. En félagið á að geta verið við líði svo lengi sem byggð helst í hreppnum. Ritstjóri Salomon Einarsson. Einungis eru 3. tbl í bókinni. En fundagerðir taka svo við, fyrsti fundur 4. des 1955 - 24. apríl 1963. Blaðsíður eru merktar í bókinni og 32 nýttar hinar auðar.
Handskrifuð gögn í bækur og á pappír um starfsemi lestrarfélagsins. Gögnin eru í góðu ásigkomulagi, tvær gormabækur sem eru látnar halda sér en hefti tekin úr ljósrituð riti frá gjörðabók.
Rit sem hefur verið ljósritað upp úr fyrstu fundagerðabók sem er ekki í þessu safni, ritið er heftað saman og hefti eru tekin. Þetta eru fyrstu upplýsingar félagsins um stofnun og lög félagsins.
Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.
Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi, en blöðin lítillega gulnuð, trosnuð og blettótt. Bókin gefur upplýsingar um bókaeignir félagsins en engin dagsenting er gefin upp en miðað við uppruna félagsins og þetta er fyrsta bókaskráningabók þá er gert ráð fyrir að hún sé frá 1924. Hér koma fram upplysingar um höfund, nafn bókar, útgáfudagur og staður.
Stílabók handskrifuð með upplýsingum um útlán til heimila og þau nefnd, ásamt dagsetningum. Bókin er í góðu lagi, en hún er skráning um síðustu ár félagsins og ekki mikið skráð í bók.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Prentuð skýrsla tvö blöð, um kýr og neðst segir tekið saman samkvæmt skýrslum í Búnaðarfélag Íslands 6. ág.1952. Ólafur E Stefánsson. Gögn lágu inn í fundargerðabók og eru sett hér með.