Hátúnshúsið við Sæmundargötu 7. Dósaverksmiðja Jónasar Guðlaugssonar sem framleiddi rafmagnsdósir, starfaði frá 1964 til 1968. Maðurinn er Jónas Guðlaugsson. Nú Hús frítímans.
Hátíðarhöld 17. júní í garði Læknishússins (Suðurgata 1) á Sauðárkróki. Líklega 1965. Halldór Þ. Jónsson fulltrúi í ræðustóli. Eyþór Stefánsson við hljóðfærið. Pósthúsið í bakgrunni og önnur hús við Skagfirðingabraut og Freyjugötu.
Malbikun á Skagfirðingabraut á Sauðárkróki 1962-1964. Mennirnir tveir sem ber í vörubílinn eru hugsanlega Rögnvaldur Finnbogason bæjarstjóri t.v. (var bæjarstjóri 1958-1966) og Adolf Björnsson rafveitustjóri t.h.
Lagning hitveitu við Skagfirðingabraut. Undirbúningur undir malbikun Skagfirðingabrautar árið 1962. Gunnar Helgason verkstjóri í skurðinum nær og Þorvaldur Erlendsson fjær. Aðrir óþekktir.
Deildarfundur Sauðárkróksdeildar Kaupfélags Skagfirðinga í Bifröst 1962. Á myndinni þekkjast meðal annars f.v. Jónas Björnsson - Bragi Jósafatsson - Hafsteinn Hannesson (ber yfir Braga) - Stefán Pálsson - Valgarð Jónsson - Gunnar Þórðarson - Guðjón Sigurðsson (fremstur fyrir miðju) - Sólberg Þorsteinsson (bak við Ólaf) - Ólafur Jónsson (með gleraugu) - Runólfur Lárusson (bak við Ólaf t.h.) - Sér aftan á Árna Jónsson t.v og Árni Guðmundsson t.h.
Sveinn Guðmundsson kaupfélagsstjóri. Myndin er tekin í Bifröst. Tilg: Tekin á deildarfundi Sauðárkróksdeildar KS eins og fleiri myndir í þessu safni. (1962).
Lagning hitaveitu og undirbúið fyrir malbikun á Skagfirðingabraut á Sauðárkróki um 1962. Þorvaldur Erlendsson frá Tungunesi við loftpressuna. Sjá mynd 476.
Deildarfundur Sauðárkróksdeildar KS í Bifröst (1962). Næst í mynd f.v. Hreinn Sigurðsson - óþekktur og Bragi Pálsson. Aftar f.v. Héðinn Ásgrímsson (aftan við óþekktan) - Erla Einarsdóttir - Rögnvaldur Finnbogason (aftan við Braga) - Selma Magnúsdóttir (ber yfir öxlina á Rögnvaldi). Kristján Skarphéðinsson er lengst t.h.
Deildarfundur Sauðárkróksdeildar KS í Bifröst (1962). Fremst frá vinstri, Ragnheiður þorvaldsdóttir - Helga Jóhannesdóttir - Stefanía Ástvaldsdóttir - Geirald Gíslason - Árni þorbjörnsson - Ágústa Jónasdóttir. Næsta röð f.v. Valgarð Blöndal - Friðrik Júlíusson - Ragnar Pálsson (fjær)- Jón Björnsson (frá Heiði) - sr. Þórir Stephensen - Jónas Þór Pálsson og Jón Friðriksson (Júlíussonar). Sitjandi fremst á mynd (sér á bak )F.v. Árni M. Jónsson - Guðmundur Ó Guðmundsson og Gísli Felixson.
Jarðarför Péturs Hannessonar frá Sauðárkrókskirkju (1960). Líkmenn. Fjær Ólafur Stefánsson (aftastur), Guttormur Óskarsson og Ole Bang (fremstur). Nær Steingrímur Arason (aftastur), Haraldur Árnason og Björn Daníelsson.
Jarðarför Péturs Hannessonar í Sauðárkrókskirkjugarði (1960). Líkmenn t.v. Árni Blöndal (aftastur). Árni Þorbjörnsson og óþekktur. Th. Óþekktur (aftastur), Kári Jónsson og Jón Jónsson, Hofi.
Þetta mun vera við Áshildarholtsvatn. Heitt vatn farið að renna eftir borun við vatnið. Á myndinni eru Anna Friðriksdóttir kona Jóns Nikk - Jón Nikodemusson - Unnur Hallgrímsdóttir - kona Ingólfs Nikodemussonar - Ingólfur Nikodemusson og Gunnar Helgason verkstjóri (1929-). Myndin er tekin í mars 1958. Er hér um að ræða annan borinn sem Jón smíðaði - en áður hafði verið borað á svæðinu og hitaveita lögð. Sbr. HSk. 2067 - 4to Dagbók Jóns Þ. Björnssonar bls. 167. Myndin er einnig skráð í Hcab 294.
Jarðarför Péturs Hannessonar í Sauðárkrókskirkjugarði (1960). Prestur sr. Þóri Stephensen. Fremst (lengst t.h.) Sigríður Sigtryggsdóttir, ekkja Péturs og dætur þeirra Hanna (nær) og Sigrún (Siddý).
Tilg. Hestasýning á Eyrinni á Króknum. Björn Björnsson bifreiðastjóri, Sauðárkróki, heldur í hest, fremst á myndinni. Mögulega Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunautur sem stendur við jeppann (ca. um 1955).
Tilg. Valdimar Friðbjörnsson skipstjóri á Pálínu SK 2 og kona hans Sigurlaug Barðadóttir og dætur þeirra Helga og Björg. Togarinn Pálína SK 2 kom til Sauðárkróks 1960 og var Valdimar skipstjóri. Skipið var selt til Keflavíkur síðla árs 1961.
Bifreiðarnar K 320 og K 438. Mennirnir gætu verið t.v. Friðrik Árnason frá Kálfsstöðum og t.h.Þorvaldur Óskarsson, Sleitustöðum (ca. um eða fyrir 1960).