Bréfspjald með ljósmynd í brúntónum. Á myndinni er eldri maður. Bréfspjaldið er skrifað á Akureyri 2.maí 1923 og undirskrifað af Steingrími en föðurnafn er óljóst. Það er sent Hrólfi Þorsteinssyni á Ábæ í Skagafirði.
Tveir bátar með farþegum við bryggju. Fjöldi fólks stendur á bryggjunni, nokkrir með reiðhjól. Sennilega Akureyri frekar en Húsavík. Á húsinu fyrir miðri mynd stendur "Maskinverksted."
Ljósmynd í stærðinni 8,5x5,9. Á myndinni eru Steinunn Eiríksdóttir (t.v.) og Auður Guðjónsdóttir (t.h.) ásamt tveimur af sjö börnum Auðar. Aftan á myndina er handskrifað: "Auður Guðjónsdóttir og Steinunn Eiríksdóttir Akureyri með börn Auðar. Glerárg 2 Ak."
Pappírskópía límd á pappaspjald. Um er að ræða skólaspjald frá Menntaskólanum á Akureyri. Á myndinni er m.a. Stefán Stefánsson skólameistari, auk kennara og nemenda.
Myndir af Þórönnu Pálmadóttur og dóttur. Erfitt er að greina hver tekur myndina en líklega hefur það verið Hallgrímur Einarsson. Þóranna bjó ásamt eiginmanni og börnum á Akureyri svo það gæti passað ágætlega.
Við myndina stendur: "Þóranna, Pálmi, Pétur, Jón, Bryndís, Jóhann". Þóranna, Jón, Bryndís og Jóhann voru börn séra Pálma Þóroddssonar og Önnu Hólmfríðar Jónsdóttur. Pétur Pétursson var eiginmaður Þórönnu og sonur þeirra hét Pálmi Pétursson en þeir eru fremst á myndinni.
Saltfiskþurrkun á vírnetum á þurrkreitum á gömlu Akureyrinni. Hér stóðu húsin sem brunnu 1912. Til vinstri er Tuliniusarhúsið nær og bryggjuhúsið fjær - nú Hafnarstræti 18 og 18b. Local Caption Svipuð BS 244
Hlíðarshús - Lækjargata 3 - Akureyri. Þar bjó Sigurður Hlíðar (1885-1962) dýralæknir í Norðlendingafjórðungi með búsetu á Akureyri þangað til hann var skipaður yfirdýralæknir með búsetu í Reykjavík árið 1943. Sigurður var þýskur vararæðismaður á Akureyri frá 1927 til 1940. Kona hans var Guðrún Louisa Guðrbrandsdóttir frá Reykjavík (1887-1963). Tréin til vinstri eru í garði sr. Geirs Sæmundssonar vígslubiskups. Telpurnar á myndinni eru systurnar Jóna Alfreðsdóttir (f.1929) og Helga Alfreðsdóttir (f. 1927) sem ólust upp á Lækjargötu 6 - - dætur Alfreðs Steinþórssonar frá Hömrum (f.1903). Gamla konan er líklega María Friðfinnsdóttir í Ráðhússtíg 2 - kölluð María í Smiðjunni.
Trésmiðurinn sem sá um viðgerðina á gamla bænum í Laufási var Baldur Helgason (1889-1977) sem hér stendur hjá verkstæði sínu bak við Hótel Goðafoss. Baldur var frá Grund í Höfðahverfi og starfaði alla tíð sjálfstætt að iðn sinni á Akureyri. Lengst hafði hann verkstæði sitt við Hafnarstræti - en síðustu árin í Laxagötu 4. Hann flutti inn fyrstu eða eina af fyrstu trésmíðavélum til Akureyrar.
Söngleikurinn My Fair Lady sett upp af Leikfélagi Akureyrar haustið 1983. Arnar Jónsson (1943-) er t.h. en hann fór með eitt aðalhlutverkið í sýningunni.