Fréttabréf frá 1958 sem sennilega hefur verið send til blaðsins Dags á Akureyri. Sagt er frá 65 ára afmæli Guðmundar Sveinssonar og kveðjuhófi sem haldið var fyrir Björgvin Bjarnason sem lét þetta ár af bæjarstjórastörfum. Eins er sagt frá því að Haraldur Pálsson skíðamaður frá Reykjavík hafi verið á Sauðárkróki við skíðakennslu og sagt er frá skíðamóti sem fram fór í Skógarhlíð.
Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) eltist við hesta í haga sunnan við Bárustiginn. Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn. Stóra húsið t.h. stendur við Skagfirðingabraut 25. (ca. 1950-1955).
Sennilega Sörli hennar Lóu. Skagfirðingabraut 8 (með tveimur strompum) á Sauðárkróki í baksýn. Fyrir framan Sörla er stafli af steyptum rörum ( ca. um 1955).
Hús Búnaðarbankans við Faxatorg í forgrunni, kjörbúð KS (ný ráðhúsið á bak við. Vinstra megin suðurgatan og hægra megin Skagfirðingabraut. Sér í barnaskólann efst til vinstri á myndinni.
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er líklega Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.
Forprentaðar skýrslur með handskrifuðum upplýsingum um framkvæmdir á Sauðárkróki á tímabilinu 1926-1949 - með nokkrum undantekningum þar sem vantar nokkur ártöl inn í. Safnið er í misjafnlega góðu ástandi, skýrsla fyrir árið 1931 er t.d. mjög illa rifin. Safnið og raðað upp eftir ártali og heftin hreinsuð úr.
Íbúaskrá Sauðárkróks árið 1962. Prentuð á gatapappír og kápa úr þykkum pappír utan um. Alls 4 eintök. Inn í hvert um sig eru færðar ýmsar upplýsingar. Eitt eintakið er merkt skattanefnd. Ástand skjalanna er gott.
Ljósmynd í stærðinni 9 x 9 sm. Á myndinni sjást m.a. húsin við Aðalgötu 16, 14, 12 og 10 við Aðalgötu og Sauðárkrókskirkja. Myndin er tekin af svölum hússins við Aðalgötu 21.
Veðbréf þar sem Nikódemus Jónsson á Sauðárkróki gjörir kunnugt að hann hafi fengið að láni hjá Sparisjóði Sauðárkróks 400 krónur. Bréfið er undirritað og stimplað af Sýslumanni Skagafjarðarsýslu.
Harðspjalda handskrifuð fundageraðbók í góðu astandi en lítillegt los á fremstu blaðsíðum. Bókin segir frá síðustu árum félagsins sem vitað er af í þessum gögnum.
Kjörskrá Sauðárkróks 1966. Skráin er prentuð á gatapappír með þykkri kápu utan um. Kjörskráin er án ártals, en er líklega frá árunum 1951966, þar sem flestar skrár í safninu eru frá því árabili. Ástand skjalsins er gott.
3 fréttir frá Sauðárkróki 1963 sendar Degi á Akureyri. Fjallað um er erindi Adolfs Björnssonar rafveitustjóra um rafveitur í Skagafirði og áætlanir um að virkja Reykjafoss í Tungusveit. Jafnframt er fjallað um frumsýningu Leikfélags Sauðárkróks á Fjalla-Eyvindi. Verkamannafélagið Fram minntist 60 ára starfsafmælis. Mikið atvinnuleysi hafði verið á Sauðárkróki þennan veturinn og afli lítill. Danskennsla var á vegum Æskulýðsráðs Sauðárkróks og var það Rigmor Hanson sem kenndi.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 broti skrifað er í örfáar blaðsíður. Í bókinni er blað með upplýsingum með nöfnum nokkurra manna sem skulda (ekki kemur nákvæmlega fram hverjum þeir skulda eða hversu mikið), bréfið er ódagsett og án ártals. Bókin er vel varðveitt og í góðu ásigkomulagi.
Íbúaskrá Sauðárkróks árið 1964. Prentuð á gatapappír og kápa úr þykkum pappír utan um. Inn í skrána eru færðar ýmsar upplýsingar. Ástand skjalanna er gott.
Veðbréf til handar Nikódemusar Jónssonar þar sem gjört er kunnugt að hann hafi fengið að láni hjá Sparisjóði Sauðárkróks 1000 krónur. Bréfið er undirritað og stimplað af Sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu.
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Myndin er tekin af Nöfunum ofan við Sauðárkrók og sést m.a. yfir Lindargötu, Skógargötu og Aðalgötu, Sauðárkrókskirkju og Suðurgötu.
Horft frá Suðurgötu til norðausturs. Sæmunargatan í bakgrunni, barnaskólinn við Freyjugötu fyrir miðri mynd, kjörbúð KS (nú ráðhúsið) og hús við Suðurgötuna fremst á myndinni.
Staðlað bréf þar sem sagt er frá að bréfi verður sent til umferðardeildar lögreglunar í R.vík og vegagerðar á Sauðárkróki, ásamt tilhlutan klúbbsins um bætta umferðarmenningu á Sauðárkróki, 4 tillögur í nokkrum liðum. 3 síður A4
Fundagerðabók stjórnar Verkamannafélagsins Fram 1935-1942. Innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum í A5 stærð. Bókin er ágætlega varðveitt og vel læsileg.
Útmæling lóðara í landi Sauðár handa Ólafi Jóhannssyni. Lóðin liggur vestan við gamla alfaraveginn norðan við svonefnda Eiríksenslóð 18,8 metrar á lengd frá suðri til norðurs. 25 metrar á breidd frá uatir til vesturs samtals 470 fermetrar.