Handskrifuð, vélrituð, tölvuunnin og fjölfölduð pappírsgögn sem öll innihalda lög Sambands Skagfirskr Kvenna auk þess sem er einnig tillaga um breytingu á lögum S.S.K., skjölin eru öll ódagsett og án ártals. Ákveðið var að hafa þau saman þar sem þau voru ekki flokkuð sérstaklega með öðrum skjölum.
Meðal gagna sem eru í safninu eru fundarboð og dagskrá aðalfundar og formannafunda S.S.K., fundargerðir og minnispunktar frá fundunum. Formleg erindi til bæjastjóra Sauðárkróksbæjar og Skógræktarstöðvar Ríkisins, einnig óformleg bréf og erindi til formanna kvenfélaganna í Skagafirði og fundargerð Landsþings K.Í. Í safninu eru einnig fundarboð fyrir S.N.K., jólakort og þakkarkort til formanns S.S.K. Gögnin hafa öll verið mjög vel varðveitt.
Titilinn vísar til rúmmálseiningar sem notuð er í Jónsbók og texti Sölva og útreikningar miða að því að komast að hvert inntak einingarinnar var nákvæmlega. Hann rekur ýmsar heimildir og gerir grein fyrir ýmsum mælieiningum fornum og beitir flóknum óskiljanlegum reiknikúnstum til að komast að hinu sanna. Seinni síðurnar varpa síðan einhverju ljósu á hvers vegna hann er að velta þessu fyrir sér en þar eru fjandmenn hans Schulesen og Jakob nefndir til sögunnar en þeir vita víst ekki hvað mælieiningin stendur fyrir. Hvernig þetta tengist deilum hans við þessa menn er hins vegar óljóst.
Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1951, alls 8 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu. Með liggur eintak af lestarblaði.
Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og sagt líka frá annari starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel varðveitt og læsileg, lítill hluti bókarinnar er notaður.
Bréf: lög félagsins - miði á afmælishátíð Öldunnar - fundargerð 26. mars 1969 - símskeyti - vegna vangoldin laun - reglugerð um sjúkrasjóði - v/ skipulags- og laganefnd - v/ verkföll - áskorun til Sauðárkróksbæjar að bæta atvinnuástandið - Fiskiðjan v/rækjuvinnsla - milliþinganefnd á 30. þingi ASÍ - skýrlsa vegna sýninga í Bifröst - v/aðalfund Bifröst - ASÍ v/rækjuvinnsla í Fiskiðjunni - Landsmót Hólum 1966 - o.fl.
Bréf: v/ rekstrarstöðvun og -erfiðleikar hjá Dögun - uppsögn á bónussamningi starfsfólk hjá Dögun - kauptaxtar - v/ vaktavinna í Fiskiðjunni - samkomulag Aldan - Fram og Dögun - v/ hóppremía - samningur v/ lífeyrissjóð.
Gögn sem varða skólaárið 2002-2003, m.a. vorskýrsla skólastjóra, próftöflu, eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseftirlits, skóladagatal og stundaskrár. Alls 59 pappírsarkir í A4 stærð., flestar ljósritaðar.
Bréf Innheimtustofnunar sveitarfélaga til Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. 5 bréf frá árunum 1979-1982 sem varðar innheimtu meðlagsgreiðslna. Ástand skjalsins er gott.
Tveir ráðningarsamningar, milli Tónllistarskólans og Einars Schweiger og _Önnu Jónsdóttur. Þeir eru óundirritaðir. Með liggur tillaga að starfsreglum fyrir skólastjóra Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu.
Bréf 1: Skrá yfir nemendur 5. skólaár. Bréf 2: Auglýsing sem sent var á auglýsingadeild Morgunblaðsins. 1 handskrifað blað með skrá um aðsetur nemenda 1969, 70 og 71
Þessi texti fjallar um bón Jóns Bergþórssonar en hann vildi fá upphafsstafi sína skrautritaða. Nokkuð sem Sölvi gerði stundum fyrir samferðamenn sína og velgjörðarmenn. Líklega var Jón þessi fæddur 1797 og dó 1877.
Bréf frá Arngrími Sigurðssyni til Sigríðar Benediktsdóttur. Dagsett 09/10/1927 og 23/02/1934 en þriðja bréfið er dagsett 7. febrúar en ekki með ártali,
Í safninu voru nokkur vélrituð skjöl sem á eru textar með skátasöngvum varðveittir í einni örk, eitt textablað fannst til viðbótar og var því bætt saman við. Blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð, eitt ljóðið sem er í safninu heitir Andvaraljóð og er eftir Friðrik Hansen. Tveir textar eru eftir Gunnar Einarsson, svo er blað með þremur skátasöngvum bæði á íslensku og erlendu tungumáli. Giskað er að textarnir séu frá tímabilinu 1930-1965.