Ottó Geir Þorvaldsson (1922-2001) í Grjótbirgi í Drangey. Ottó er að borða fugl í Drangeyjarfjöru árið 1943. Byrgið var hlaðið úr grjóti og reft yfir og klætt með áburðarpokum. Betri skúti en úti þegar norðan bræla vor eða sunnan rok. "En minningarnar muna flestir betur" stendur við þessa mynd.
Skjöl varðandi kaup Nafar h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga h.f. á norska skipinu m/s Leisund frá 1973. Ýmis skjöl, svo sem lánabeiðni til Framkvæmdastofnun ríkisins og ábendingar frá Fjármálaráðuneytinu, úttekt á skipinu og leiðbeiningar varðandi kaup á erlendum notuðum fiskiskipum.
Umboð til P. Johannsson og H. Torfason til að gera kaupsamninga varðandi Nord Rollnes. Undirritað 26.7.1973 af Birni Þorgrímssyni, Þorsteini Hjálmarssyni og Birni Björnssyni.
Drög að samningi um sameiningu útgerðarfélaganna Nöf h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga, Sauðárkróki. Undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f. en vantar undirritun ÚSS. Saman við þetta er heftað "Samningur stjórnar" undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f.
Fjölfaldað bréf til hluthafa Hraðfrystihússins h.f. varðandi aukið hlutafjárframlag vegna mikilla framkvæmda í sambandi við uppbyggingu Hraðfrystihússins h.f.
Óundirritaður samningur milli stjórnar Búnaðarbanka Íslands og stjórnar Sparisjóð Hofshrepps um yfirtöku Búnaðarbankans á skuldum og eignum Sparisjóðs Hofshrepps.
Hópmynd frá 1930-1940. Ljósrituð ljósmynd ásamt miðum með nöfnum þeirra sem á myndinni eru. Gæti verið frá síldarvinnslu eða einhvers konar fiskvinnslu.