Ljósmyndasafnið er að stofni til úr tveimur áttum: Sögfélag Skagfirðinga gaf safninu á sínum tíma fjölda mynda og hefur sífellt verið að bæta við. Kristján C. Magnússon var afar ötull myndasafnari og tók sjálfur ljósmyndir, m.a. af mönnum í dagsins önn. Sigrún M. Jónsdóttir, ekkja Kristjáns, gaf Héraðsskjalasafni Skagfirðinga safn manns síns eftir hans dag, mikið og gott að vöxtum. ... Safninu hafa og borist stórhöfðinglegar gjafir einstaklinga. Markmiðið er að safna saman á einn stað sem mestu af því, er víkur að sögu lands og lýðs í Skagafirði."
Jón Jónsson "Hjalti" (1837-1915) bóndi á Hjaltastöðum Skag- kona hans Helga Arnbjörnsdóttir (1856-1923) og sonur þeirra Páll Jónsson. Þau bjuggu um tíma í Vesturheimi- en fluttust síðast til Sauðárkróks.
Jón Jónsson "Hjalti" (1837-1915) bóndi á Hjaltastöðum Skag- kona hans Helga Arnbjörnsdóttir (1856-1923) og sonur þeirra Páll Jónsson. Þau bjuggu um tíma í Vesturheimi- en fluttust síðast til Sauðárkróks.
Páll Jónsson trésmiður á Siglufirði- kona hans- Guðbjörg Eiriksdóttir- og börn þeirra- Pálmi frá vinstri : Olga Eyland- Sverrir Eyland og Haraldur Eyland
Steinvör Sigurjónsdóttir (1881-1911) Stóru-Seylu- Skag. kona Björns Jónssonar (1879-1943) bónda þar og Jón Björnsson (1903-1987) síðar bóndi og kórstjóri á Hafsteinsstöðum.
Björn H. Gunnlaugsson (1864-1951) bóndi Enni í Viðvíkursveit Skag. og kona hans Halldóra Magnúsdóttir (1861-1951) . Synir þeirra Magnús Björnsson (1892-1901) t.v. og Gunnlaugur Björnsson (1891-1962) síðar bóndi og kennari í Brimnesi Skag. t.h.
Ragnheiður Guðjónsdóttir (1871-1942) síðar kennari í Reykjavík o.v. og Helga Guðjónsdóttir (1869-1942) á Sauðárkróki. Helga var kona Pálma Péturssonar kaupmanns á Sauðárkróki.
Þorsteinn Jónsson (1885-1970) rithöfundur frá Mælifelli Skag. Ritaði bækur undir nafninu Þórir Bergsson og Magnús Jónsson (1887-1958) prófessor í Reykjavík.
Börn Magnúsar Guðmundssonar verslunarmanns á Sauðárkróki og konu hans Hildar Margrétar Pétursdóttir. Frá vinstri: Ludvig C Magnússon (1896-1967) endurskoðandi í Reykjavík, Kristján C Magnússon (1900-1973) verslunarmaður á Sauðárkróki, Pála Anna Magnúsdóttir (1900-1908) og Lára Ingibjörg Magnúsdóttir (1894-1990) síðar húsfreyja á Ísafirði
Lára Ingibjörg Magnúsdóttir (t.v.) og Hildur Margrét Pétursdóttir (t.h.), kona Magnúsar Guðmundssonar verslunarmanns á Sauðárkróki, Lára er dóttir hennar, gift á Ísafirði
Frá v. : Ludvig C. Magnússon Reykjavík, [Hildur] Margrét Pétursdóttir, móðir hanns og Kristjáns C. Magnússonar, Sauðárkróki, sem er þriðji t.h. Myndin er tekin við hús Kr. C. Magnússonar á Skr. Suðurgötu 10
Frá v. : Valtýr Ludvigsson, Reykjavík; Ludvig C. Magnússon, Reykjavík; [Hildur] Margrét Pétursdóttir, Sauðárkrókur. Litla stúlkan er dóttir Valtýs, Lára
Daníel Daníelsson, Sauðákróki (t.v.) og Sigurgeir Daníelsson, kaupmaður á Sauðárkróki myndin er tekin fyrir sunnan gömlu símastöðina, hús Péturs Sighvats
t.v. Guðmundur Þórarinsson verkamaður á Sauðárkróki og Jóhann Sveinbjörnsson „Dal“, verkamaður á Sauðárkróki þeir eru að grafa eftir hitavatnsleiðslu heim að „Árbæ“; sýsluhesthús í baksýn
Salssystkin á Sauðárkróki. Standandi fremst: Ingibjörg Sumarrós Guðmundsdóttir (1903-1974) síðar húsfreyja á Sauðárkróki. Aftari röð frá vinstri: Helgi Guðmundsson (1896-1957) sjómaður á Sauðárkróki. Sigurður Guðmundsson (1906-1989) sjómaður á Sauðárkróki og Stefanía Björnsdóttir (1900-1972) húsmóðir á Sauðárkróki. Þau voru börn Guðmundar Sigurðssonar- sjómanns á Sauðárkróki- og konu hans- Sigríðar Ásmundsdóttir.
Kristján Guðmundsson, Svavar Guðmundsson (1905-1980) skrifstofumaður Sauðárkróki, Hreinn Sigurðsson (1934-) síðar framkvæmdarstjóri. Helena Magnúsdóttir skrifstofukona á Sauðárkróki (1930-).