Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaður fróðleikur og ljóð úr útvarpsþáttum. Einnig ýmis önnur ljóð, æviágrip Pálma Sveinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði, hugleiðing um kosningarétt kvenna, annála atriði, fróðleikur um símalagningu og Glaumbæ í Skagafirði, fjártala í Holtshreppi 1932,frásögn um leiksýningu 1953 (ekki ljóst hvar hún var sett upp) og sögn um álagablett í Minni-Brekku. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja tvö minnisblöð
Skýrslan er tvær handskrifaðar síður í A4 stærð. Hún varðar afhendingu baðlyfja. Með liggja fjórir seðlar í ýmsum stærðum, er varða afhendingu baðlyfja. Skjölin eru nokkuð skemmd af ryði en annars er ástand þeirra gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjárkláða í fé Jóhanns Jónassonar bónda í Litladal. Með liggja tvær ávísanir á baðlyf, undirritaðar af sýslumanni. Á skjalinu eru ryðskemmdir eftir bréfaklemmu, en að öðru leyti í góðu ástandi.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjárkláða í fé Jóhanns Jónassonar bónda í Litladal og hugsanlega fjárkláða í fé frá Litladalskoti. Á skjalinu eru ryðskemmdir eftir bréfaklemmu, en að öðru leyti í góðu ástandi.
Tillögurnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða böðun vegna fjárkláða í hreppum sýslunnar. Á skjalinu eru ryðskemmdir eftir bréfaklemmu, en að öðru leyti í góðu ástandi.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjárkláða í fé Sveinbjörns Sveinssonar bónda í Breiðargerði. Á skjalinu eru ryðskemmdir eftir bréfaklemmu, en að öðru leyti í góðu ástandi.
Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók viðskiptamanna U-Þ árið 1934, ásamt ýmsum sérreikningum Kaupfélagsins og birgja.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar tillögur um framkvæmd kláðaskoðunar. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar boð um almenna kláðaskoðun í öllu sauðfé innan hreppanna. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er vélritaður á pappírsörk í folio stærð. Hann varðar skipan eftirlitsmanna með sauðfjárböðun í öllum hreppum sýslunnar. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.