Showing 48790 results

Archival descriptions
Item
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

35544 results with digital objects Show results with digital objects

Skjal 26, opna

Þessi örk er greinilega hluti af siðfræðibók Sölva því hér eru nokkrar viðbætur við þriðju grein hennar og þær fjalla um samband siðfræði og trúar, einkum um hvernig siðbótin hafi leitt hið sanna samband þar á milli í ljós andstætt harðstjórnaranda kaþólsku kirkjunnar.

Skjal 26, bakhlið

Þessi örk er greinilega hluti af siðfræðibók Sölva því hér eru nokkrar viðbætur við þriðju grein hennar og þær fjalla um samband siðfræði og trúar, einkum um hvernig siðbótin hafi leitt hið sanna samband þar á milli í ljós andstætt harðstjórnaranda kaþólsku kirkjunnar.

Skjal 3, opna

Hér heldur áfram umfjöllun um tilraun Sölva til að henda reiður á rúmmálseininguna Katlamálsskjólu.

Skjal 1, framhlið

Tafla með upplýsingum um reikistjörnur sólkerfisins. Fjarlægð þeirra frá sólu, þvermál þeirra og snúningshraði.

Síða 1, bakhlið

Þessa umfjöllun um konungana notar Sölvi til þess að benda á að fleiri gildi en þau sem einkenndu bardagamenn, voru í hávegum höfð í heiðnum sið. Því næst kynnir sögumaður til leiks Loka og afkvæmi hans Fenrisúlf, Miðgarðsorminn og Hel en frásögnin af henni leiðir að umfjöllun um örlög Baldurs sem samkvæmt goðsögninni hafnaði í ríki Heljar (oftast nefnt Hel en í Gylfaginningu Éljúðnir). Ásarnir reyndu allt til að endurheimta Baldur og gerðu samkomulag við Hel en þeir gátu ekki staðið undir kröfum hennar þar sem Loki beitti brögðum sínum. Alveg í lok síðunnar fullyrðir sögumaður að Baldur og allir hinir guðirnir, sem skírðust (hreinsuðust) í eldum (væntanlega ragnarraka), sitji við hlið þess almáttuga í Gimli. Þar sem vantar upp á umfjöllun þessa vitum við ekki hvort Sölvi telji sömu örlög bíða dyggðum prídda menn en ýmislegt virðist benda til þess að þangað stefni umfjöllunin.

Síða 1, bakhlið

Ýmsar tölulegar upplýsingar um náttúrufyrirbæri á Íslandi. Eins og t.d. lengd vatnsfalla og hitastig þeirra og hitastig Geysis og ýmsar aðrar upplýsingar um hverinn.

Síða 1, bakhlið

Sölvi lýsir fólkinu í Ærlækjarseli og þeim skelfingum sem hann má þola af þeirra hendi. Hann lýsir miklum raunum sem hann myndi sennilega ekki lifa af ekki væri fyrir samfylgd drottins.

Síða 4, framhlið

Sölvi fer ófögrum orðum um vistina í Ærlækjarseli og segir þann stað næst verstan á Íslandi en aðeins Skálá í fæðingarsveitinni er verri, hjá þeim Birni (hreppstjóra, áður á Ystafelli) og Önnu konu hans sem Sölvi segir hafa „járnsál“

Síða 01, framhlið

Á þessari síðu ávarpar sögumaður Sölva og hughreystir hann með því að réttlætinu verði fullnægt hinum megin grafar. Þar verði þeim refsað sem hafi gert á hlut hans en hann njóti ávaxtana af dyggðugu lífi sínu á jörðinni.

Síða 01, bakhlið

„Segir þannig frá: að þá kom hann í Fnjóskadal,“
Hallgrímur Bjarnason og Hallgrímur Gíslason eru nefndir í þessum texta sem er einn samfeldur reiðilestur sem virðist beint að þeim tveimur.

Skjal 11, seinni síða á opnu

„Enn af því guð var með honum, og hafði gefið honum meira vit og krafta og þekkingu á náttúrunni …“
Áfram heldur frásögnin af djöflinum en á þessari síðu er fjallað um guðdóminn og trú Sölva. Hvernig hann í krafti trúar sinnar getur veitt andskotanum mótspyrnu og hvernig er reynt að brjóta hann niður í þeirri von að hann snúi af guðsvegum og djöfulinn fái sínu framgengt.

Skjal 11, bakhlið

Hér dregur til tíðinda, djöfullinn ætlar að taka með sér hóp af fólki til helvítis. Þar eru nefndir meðal annara: Jónas Helgason, Stefán Þorfinnsson, Sigurð Jónsson, Stefán Hjörleifsson, allir á Skinnastöðum. Þóra, Oddný og þrjár aðrar konur, auk hjónanna á Breiðumýri Allt þetta fólk ætlaði djöfullin handa sér á páskunum en tvær konur verða eftir.
„þetta allt fólk(ógr.) ætlaði andskotinn til páskanna handa sér, djöflunum þeim þar í helvíti sem hann hélt mest uppá, nema gömlu frúnna á Breiðumýri og Guðlaugu Björnsdóttur á Skinnastöðum, gamlar hórur djöfulsins. Þær áttu að vera hórurnar hans um alla eilífð“
Undir lok sögunnar virðist hersingin haf tekið drepsótt og læknar koma við sögu, þeir Oddur Stefánsson, Eggert Jónsson og Jón Þorsteinsson.

Skjal 2, framhlið

Byrjar á umfjöllun um Sölva sjálfan og samband hans við alföðurinn og náttúruna. Síðan er fjallað um Schulesen sýslumann og Jón Ingjaldsson sem Sölvi líkir við Óðinn sjálfan.

Skjal 4, framhlið

Sögumaður fjallar um hæfileika Sölva á tónlistarsviðinu. Nefnir á nafn þá Tómas Sæmundsson og Jónas Hallgrímsson.

Skjal 1, framhlið

Ljóð sem virðist vera ein samhangandi frásögn á bæði framhlið og bakhlið. Erfitt að greina einhver skil á milli erinda og formið virðist ekki vera mjög fast í reipunum en ljóðlínurnar eru mislangar. Fyrst eru óvildarmenn á Sölva í Ærlækjarseli tilgreindir en síðan beinist athyglin að píslum Sölva og sambandi hans við Guð.

Skjal 1, bakhlið

Ljóð sem virðist vera ein samhangandi frásögn á bæði framhlið og bakhlið. Erfitt að greina einhver skil á milli erinda og formið virðist ekki vera mjög fast í reipunum en ljóðlínurnar eru mislangar. Fyrst eru óvildarmenn á Sölva í Ærlækjarseli tilgreindir en síðan beinist athyglin að píslum Sölva og sambandi hans við Guð.

Skjal 2, framhlið

Á þessari síðu má finna tvö kvæði. Annars vegar fjórtán erinda kvæði og hins vegar fyrstu sex erindin í 26 erinda bálki. Bæði kvæðin fjalla á einn eða anna hátt um Sölva sjálfan.

Síða 1, bakhlið

Hér er bláendirinn á sögunni af Flóres og Blankiflúr og síðan hefst sagan af Júlíen og Fleurie án titils og formála.
Uppruni sögunnar er ókunnur. Sagan á að gerast um 1830 og því er ekki um endursögn á riddarasögum að ræða og gæti þessi saga allt eins verið eftir Sölva sjálfan en hann ritar nafn sitt undir í lok sögunnar ólíkt því sem hann gerir við söguna af Flóres og Blankiflúr.

Skjal 2, bakhlið

Frásögnin einblínir á yfirnáttúru Sölva . Afkastgeta hans og til vinnu og þol gegn öllum hans sýnir ð hann er ekki eins og venjulegir menn, heldur sé hann gæddur yfirnáttúrlegum kröftum.
Yfirnáttúru þessa fékk Sölvi frá Guði og það er trú hans sem kemur í veg fyrir að djöfullinn geti snert hann ólíkt öllum óvildarmönnum hans sem eru á vegum andskotans og því berskjaldaðir þegar hann fer um Ísland og hirðir upp sálir sínar

Síða 4, framhlið

Sögumaður heldur umfjöllun sinni áfram og snýr sér að Breiðumýri. Ljóðið fjallar um Sölva en athygli vekur hvernig sögumaður tekur til máls eftir ljóðið. Í þessum texta eru öll orð ljóðsins undirstrikuð en sögumaður tekur fram að svo sé ekki gert í bókinni, þ.e. sögumaðurinn er á þessum síðum að fjalla um fyrri verk Sölva.
Þetta er prýðisdæmi um hvernig Sölvi notar mismunandi sjónarhorn á frumlegan og greinilega skáldlegan hátt. Þar sem ganga má út frá því að hann skrifi þetta sjálfur.

Síða 4, bakhlið

Hér segir sögumaður að Sölvi hafi kveðið vísur um mannanöfn í ferskeyttum stíl til þess að sýna snilli sína. En ljóðin eru að mestu upptalning á nöfnum sem skáldið fellir í formið.
Á seinni hluta síðunnar segir sögumaður að ljóðunum sé líka beint að Breiðumýri og illri meðferð á Sölva. Ekki er gott að sjá hvernig það gengur upp en mögulega er á við ljóð sem á að koma í framhaldi af textanum en það er þá glatað.

Síða 5, framhlið

Þó ekki sé getið eftirnafna fjallar Sölvi hér, án nokkurs vafa, um góðkunningja sína þá Jóhannes Sölvason og Jakob Pétursson. Nöfn þeirra koma ítrekað upp í umfjöllun Sölva um handtökuna og réttarhöldin á Norðausturlandi árin 1853-54 og er umfjöllunin á þessari síðu mjög áþekk.

Skjal 1, opna 1

Sögumaður fer í fyrstu yfir þær híðingar sem Sölvi má þola en guðdómurinn gagnast Sölva ekki aðeins til stórkostlegra vinnuafkasta. Hann veitir honum styrk til að þola hverja þá raun sem hann þarf að þola.
Sögumaður fjallar um ýmsa þætti guðdómsins sem styrkja Sölva eins og ást guðs og hin „eilífa speki“ sem gera Sölva að þeim vitra og góða manni sem hann er. Öðru máli gegnir um höfðingjana en líf þeirra einkennist af „lífleysi“, spillingu og synd.
Sögumaður fer í fyrstu yfir þær híðingar sem Sölvi má þola en guðdómurinn gagnast Sölva ekki aðeins til stórkostlegra vinnuafkasta. Hann veitir honum styrk til að þola hverja þá raun sem hann þarf að þola.
Sögumaður fjallar um ýmsa þætti guðdómsins sem styrkja Sölva eins og ást guðs og hin „eilífa speki“ sem gera Sölva að þeim vitra og góða manni sem hann er. Öðru máli gegnir um höfðingjana en líf þeirra einkennist af „lífleysi“, spillingu og synd.
Á seinni síðu opnunnar heldur ferð Sölva áfram þó þeir séu nýlega búnir að senda hann um Austur og Norðurland senda þeir hann að stað aftur en í þetta skiptið með passa. Ferðinni er heitið alla leið á suðausturlandið að Stafafelli í Lóni. Sögumaður fjallar almennt um mannvonsku þá sem Sölvi má þola og þær birgðir sem hann má bera. Undir lok síðunnar fjallar sögumaður um hversu mikið veröldin hafi farið á mis við vegna þess hvernig ilskan og grimmdin hafi halið Sölva frá þeim störfum sem hefðu verið til mikilla bóta.

Skjal 1, bakhlið

Efst á síðunni er fjallað um hvaða visku Sjö þúsund þúsunda auka bók Sölva geymi. Síðan veltir Sölvi fyrir sér hvort skelfingarnar og þrældómurinn muni nokkurn tíma tala enda og reynir að hugga sig við þá tilhugsun að allar skelfingar geri það að lokum þó hann hafi þurft að þola þær lengur en nokkur annar.
Og svarið virðist vera að finna í lok síðunnar:
„Þannig fjaraði út að ströndum lífsins, að dvína líf Sölva Sólons, án þess hann fengi nokkru sinni eitt augnablik frelsi sitt, eða að njóta þess og lífsins og þó ætlaðist Guð til þess, og skóp hann til þess að útbreiða ljós á jörð … en þeir hindruðu útbreiðslu hins eilífa ljóss og sannleika og guðs í Sölva …“
Þannig endar þessi fimmta örk og sagan af þessari píslargöngu Sölva um gjörvalt landið.

Síða 1, framhlið

Hefst á þessum orðum: „Þessir tveir uppáhalds synir og vinir andskotans“
umfjöllun um þessa syni andskotans og fjandmenn Sölva einkum í tengslum við bækur hans og. Í því samhengi nefnir hann Pétur Pálmason og bók sína hina helgu Sjömilljóna auka bók.

Síða 4, framhlið

Saga af djöflinum og hans fylgjendum. Gróteskar lýsingar á því hvernig m.a. djöfullinn étur og drepur Skagfirðinga.

Síða 1, framhlið

Á þessari síðu má finna ráðleggingar um hvernig megi skipta stórum tölum í skiljanlegri einingar. Aðferðin felst í því að skipta stórum tölum í flokka með því að setja lítil strik undir þær sem aðgreina þá í mismunandi flokka sem hver stendur fyrir mismunandi einingar, t.d. tugi og hundruði. Aðferðina útskýrir Sölvi með dæmi en neðst á síðunni byrjar svo annar kafli sem fjallar um samlagningu.

Síða 2, framhlið

Á þessari síðu er niðurlag kaflans um samlagningu og henni fylgt eftir með dæmi áður en kafli um frádrátt tekur við.

Results 256 to 340 of 48790