Framan við bæinn í Staðartungu - Hörgárdal - Eyjafirði. Konan til vinstri er Ingibjörg Kristjánsdóttir (1908-1992) gift Jóni Kristjánssyni (1906-1974). Synir þeirra tveir sem eru á myndinni eru Páll Snævar(f. 1932 - búsettur á Akureyri) og Þengill (f.1929 bifvélavirki á Akureyri). Konan til hægri er húsmóðirin - Stefanía Jónsdóttir (1874-1944) - kona Friðbjarnar.
Trésmiðurinn sem sá um viðgerðina á gamla bænum í Laufási var Baldur Helgason (1889-1977) sem hér stendur hjá verkstæði sínu bak við Hótel Goðafoss. Baldur var frá Grund í Höfðahverfi og starfaði alla tíð sjálfstætt að iðn sinni á Akureyri. Lengst hafði hann verkstæði sitt við Hafnarstræti - en síðustu árin í Laxagötu 4. Hann flutti inn fyrstu eða eina af fyrstu trésmíðavélum til Akureyrar.
Myndin er tekin af Vaðlaheiðavegi skammt fyrir ofan Skóga - sem er nálægt miðjum Fnjóskadal. Frá vinstri talið sést mikill hluti Vaglaskógar. Ofan hans sést inn Kisárdal til suðausturs. Hann skilur Lundöxlina frá öðrum hlutum fjallgarðsins austan dalsins og sést hvernig hún gengur skáhallt upp á hálendið allt til Háafells - sem ber hæst á fjallgarðinum milli Lunds og Þórstaðafjalla. Er þeim sleppir sést á myndinni lítið vik í fjallahringinn og tekur þar við hinn hvassbrýndi Kambfellshnjúkur. Síðan sést Tunguöxl og Tungufjall - en í smáviki milli þeirra sést í mynni Hjaltadals. Vinstra megin Tungufjalls sést í mynni Bleiksmýradals - sem nær óravegu til suðvesturs inn á hálendið. Nær má svo sjá Sellandsfjall og Illugastaðahnjúk. Næst á myndinni eru undirhlíðar Vaðlaheiðar ofan við Skóga. Á miðri mynd lengst t.v. glittir í Fnjóská.
Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.
Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.
Sr. Þorvarður Þormar í Laufási við slátt ásamt óþekktum manni. Elías Gíslason (1897-1970) frá Melum á Fljótsdalshéraði er að kljást við kálf t.h. (óvíst hvort rétt)
Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) húsfreyja í Laufási ásamt börnum sínum Vilborgu - Herði - Halldóri og Guttormi. Sprellikarlinn á veggnum var heimagerður úr krossviði - en klukkan var líklega amerísk.
Í heyhlöðunni í Múlakoti í Fljótshlíð. Frá vinstri eru börn Ólafs og Láru. Guðný Fjóla (f. 1931) - Guðbjörg Lilja (f. 1928 d. 1976) og Karl Reynir (1925-2000) í rólunni. Hægra megin stendur Soffía Gísladóttir (f. 1915) og lengst til vinstri Vigdís Eyjólfsdóttir (1893-1977) bróðurdóttur Guðbjargar í Múlakoti.
Saltfiskþurrkun á vírnetum á þurrkreitum á gömlu Akureyrinni. Hér stóðu húsin sem brunnu 1912. Til vinstri er Tuliniusarhúsið nær og bryggjuhúsið fjær - nú Hafnarstræti 18 og 18b. Local Caption Svipuð BS 244
Stefán Sigurðsson bóndi á Gili í Svartárdal og tengdasonur hans Þorsteinn Jónsson frá Eyvindarstöðum í Blöndudal. Þorsteinn starfaði lengst af á Blönduósi sem sýsluskrifari og kórstjóri.
Fjölskyldan framan við bæinn að Leifsstöðum í Svartárdal Hún. F.v. Þóra (f.1925) - síðar í Hvammi. Sigurbjörg (f. 1931) síðar húsfr. á Leifsstöðum. Björn (1930-1988) - Guðrún Sigríður (1924-1975). Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja (1894-1959). Aðalsteinn (f. 1930) síðar bóndi Leifsstöðum. Sigurður Benediktsson bóndi (f. 1885 d. 1974) - Soffía (1917-1968) heldur á Hilmari Eydal Valgarðssyni (1934-1974) syni sínum. Guðmundur (f. 1922 d. 1996) og Sigurður (f. 1926 d. 1984)