Skissa af fimm hestum sem standa við húsaþyrpingu - líklega í hesthúsahverfi einhversstaðar í Reykjavík - þar sem Esjuna má sjá í bakgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Á myndinni eru fjórir hestar sem standa utan við hús sem sést á vinstri hlið. Tveir hestarnir er dökkir - einn þeirra ljós og einn rauður í forgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.
Skissa af húsaþyrpingu við sjávarsíðuna - á Sauðárkróki. Bryggja kemur vinstra megin inn í myndina og handan við fjörðinn má sjá fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Skissa af Reykjarvíkurhöfn - þar sem hvít skúta er mest áberandi. Í bakgrunni má sjá Esjuna - Kistufell og Mosfell. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Mynd af lítilli kirkju - óvíst hvar en sennilega við sjávarsíðuna þar sem í forgrunni liggur bátur á hvolfi á jörðinni. Á myndinni er einnig áberandi staur (sama myndefni og á JG 58). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Mynd af lítilli kirkju - óvíst hvar en sennilega við sjávarsíðuna þar sem í forgrunni liggur bátur á hvolfi á jörðinni. Á myndinni er einnig áberandi staur (sama myndefni og er á JG 57). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970. Mynd vantar í safn.
Mynd af vegi sem hlykkjast í gengum hæðótt landslag - hverfur fyrir miðju myndar og birtist svo á ný við efra hægra horn myndar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagsmynd úr Skagafirði. Í forgrunni erru strá og sandur - svo kemur gulleitt haf. Í bakgrunni má sjá Drangey og Málmey. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Landslagsmynd - óvíst hvaðan - mögulega í Skagafirði með Blönduhlíðarfjöllin í bakgrunni. Í forgrunni er jarðlita og svört jörð. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er tveir hestar í forgrunni - einn rauður og annar grár. Lítið hús má sjá handan við á og fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagsmynd þar sem vegur liggur í gegnum gulleitann haga og fjall er í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975. Mynd vantar í safn.
Landslagsmynd þar sem vegur hlykkjast í gegnum jarðlita forgrunn en dökkleit fjöll sjást í bakgrunni. Staðsetning óknunn. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Kyrralífsmynd. Flaska og tvær perur standa á borði - stóll sést í bakgrunni. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Landslagsmynd líklegast úr Skagafirði - þar sem horft er yfir hólmann á Blönduhlíðarfjöllin. Tveir hestar eru í forgrunni. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa er af bæ eða borg. Horft er yfir húsaþök og einnig má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Skissa af bæ eða borg. Staðsetning er mögulega Reykjavík þar sem má sjá byggingu sem svipar til Landakotskirkju í bakgrunni. Myndin gæti verið frá 1950-1960.
Á efri (minni) mynd: Landslagsmynd þar sem bátar liggja í fjöru og fjöll eru í bakrunni. Á neðri (stærri) mynd: Skissa af brú. Báðar myndir eru skissaðar með svartri krít. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Skissa af hesthúsunum í Víðidal. Fimm hestar eru innan gerðis og tveir menn sinna þeim. Í bakgrunni má sjá útlínur bæjar. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Þrjár skissur eru á spjaldi. Tvær þeirra eru samskonar - þar sem maður situr álútur á stól með hendur í skauti sér. (Þetta er mögulega æfingarskissa af Jónasi Svafár.) Þriðja myndin er sýnilega yngri en hinar þar sem hún er að hluta til skissuð yfir höfuð mannsins á einni myndinni. Þar er maður að framkvæma eitthvað eða við e.k. iðn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Hestar við hesthúsin í Víðidal. Hestarnir eru fimm og þar er einnig maður. Í forgrunni er hvítur hestur sem klórar sér í fætinum. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Skissa þar sem sjónhornið er yfir húsþök í miðbæ Reykjavíkur. Í forgrunni er tré en bakgrunni er sólarlag yfir Akrafjall og Skarðsheiði. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Litaspjald með brúnum - grænum - bleikum - rauðum - bláum og svörtum tónum. Bleikar doppur eru í hverjum reit. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1945-1955.
Auglýsingaspjald af manni á Sauðárkróki. Í bakgrunni má sjá kirkjuna í gamla bænum. Á spjaldinu stendur „Glampar á götu. [...?]“ Samskonar mynd er á forsíðu bókarinnar Glampar í götu eftir Björn Jónsson læknir - bróður Jóh.Geirs. Bókin kom út árið 1989 og er myndin því líklegast frá því um eða fyrir þann tíma.
Skissa af tveimur manneskjum sem standa við grindverk og í bakgrunni er Reykjavíkurborg. Þar má sjá móta fyrir Borgarspítalanum. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Skissa af hestum innan gerðis við tvenn lítil hús. Í bakgrunni er Esjan og miðað við sjónarhornið á fjallið er staðsetningin líklegast í Mosfellsbæ. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Myndefnið er bær - óvíst hvar en mögulega Hafnafjörður. Í forgrunni má sjá baksvipinn á manneskju ganga eftir vegi. Reisuleg kirkja stendur upp úr húsaþyrpingunni - mögulega Hafnafjarðarkirkja. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af iðnaðarhúsnæði við litla bryggju í firði - staðsetning ókunn. Í forgrunni má sjá tvenna báta en í bakgrunni er fjall. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Mynd af bláum vörubíl keyra eftir vegi og ljósastaurar eru meðfram veginum. Í forgrunni er manneskja í rauðri yfirhöfn. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af baðgestum Bláa lónsins. Nokkrar manneskjur eru í forgrunni og eru klædd en flestir eru fálæddir að baða sig í grænleita lóninu. Í bakgrunni stígur upp mikil gufa. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af kirkju - mögulega kirkjan á Eyrarbakka - umkringd nokkrum húsum. Í forgrunni má sjá manneskju í blárri yfirhöfn (til hægri) og þvottur hangir á snúru við hús (til vinstri). Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Landslagsmynd þar sem vegur hlykkist gengum landslagið - á veginum virðist vera ökutæki og hestar eru á beit vinstra megin við veginn. Í forgrunni má sjá menneskju standa við vatn en í bakgrunni er fjall. Sólarlag er hægra megin fjallssins. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1970-1980.