Björn Egilsson og Hjalti Pálsson, staðfesta móttöku skjölum frá Maríu Rósmundsdóttur Efra - Ási 1975. Tilkynning um skipanir sveitastjórnar í nefndir í Hólahreppi1982, og bréf til stjórnar Rekstrarfélags Hólahrepps 1993 um hvort halda eigi áfram rekstri bókasafns undirritað Trausti Pálsson. Allt handskrifðuð gögn. Svo eru hér hin ýmsu pappírsgögn er lágu inn í bókum.
Skjöl Sigurjóns Jónassonar frá Hátúni sem móðir hans, Steinunn Sigurjónsdóttir, hélt til haga eftir að Sigurjón fluttist að heiman. Gögnin sem um ræðir eru uppkast að bréfi og tveir reikningar frá uppboði í Seyluhreppi.
Persónugreinanleg trúnaðargögn. Handskrifuð bók í þokkalegu ástandi. Bókakápa er með járni í kili og festingum en ryðfrí og heilleg. Bókin er með leðurkápum og ein rifa á forsíðukápu innanvert. Bókin fær því að halda sínum uppruna eins og hún koma frá einkasafni Harðar Jónssonar. Gögnin voru hreinsuð, laus blöð fengu að halda sinni stöðu vegna uppruna. Gögnin eru persónugreinanleg trúnaðargögn.
Persónugreinanleg trúnaðargögn. Pappírsgögn handskrifuð í þokkalegu ástandi en gögnin voru klippt frá bókakápu sökum járns og ryðs í bókakápu. Gögnin voru hreinsuð og innpökkuð í sýrufrían pappír og bundin inn með borða.
Litlir bláir miðar um félagaskráningu. Miðarnir eru prentaðir, persónugreinanlegir en án ártals og vel læsilegir. Gögnin eru sett i öskjur eftir stafrófsröð eins og þau lágu í safni. Gögnin eru hreinsuð af bréfaklemmum, auka eyðublöðum og plast milliblöðum með stafrófstölustöfum.
Gögn Guðrúnar Jónasdóttur frá Hátúni sem móðir hennar, Steinunn Sigurjónsdóttir hélt til haga. Gögnin eru reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga og eitt einkunnablað frá árinu 1936.