Skissa af hestalest fara yfir Hvítá (JGJ - 1985 - bls. 82). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Myndefnið menn með hesta við kláfferjuna á Jökulsá eystri í Skagafirði (JGJ - 1985 - bls. 77). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Skissa af mönnum í hestaferð. Einn hugar að hesti á meðan annar maður hvílir sig við á. Myndin kallast: „Áning við Galtará“ (JGJ - 1985 - bls. 80). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Teikning af flugvél sem kemur til lendingar við sólarlag á Sauðárkróki. Þar má sjá Tindastól - Drangey og Þórðarhöfða. Nokkur hús sjást við höfnina og þar er einnig bátur. Myndin er frá 1938.