Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 3 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Only top-level descriptions Pappírskópía
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir: skjala- og ljósmyndasafn

  • IS HSk N00497
  • Safn
  • 1930-1970

Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarömmunum áfram í safninu.
Allt safnið er ágætlega varðveitt.

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir og Guðjón Sigurðsson: skjalasafn

  • IS HSk N00492
  • Safn
  • 1900-1995

Bréfa og ljósmyndasafn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega.
Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir (1903-1980)

Sigurlaug Jónsdóttir og Gunnar Helgason: ljósmyndasafn

  • IS HSk N00498
  • Safn
  • 1850-1993

Safn Sigurlaugar Jóns (Lillu Nikk) og Gunnars Helgasonar:
Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum, elstu myndirnar eru pappírskópíur, líklega frá 1850 - yngstu myndirnar eru frá 1993. Einnig eru eftirtökur og stækkanir í safninu og ljósrit af nokkrum myndum, ein ljósmynd og ljósrit voru grisjuð úr þar sem tvö eintök voru til af sömu myndinni. Í safninu eru 8 póstkort með teikningum eftir G. Þorsteinsson voru í safninu, einnig póstkort með teikningu af Lindargötunni á Sauðárkróki, 2 myndir af Sauðárkrókskirkju - líklega framhliðar á jólakortum.
Í safninu voru nokkur blöð með lista yfir nöfnum þeirra einstaklinga sem fermd voru frá Sauðárkrókskirkju árið 1943, einnig ljósritaður listi með nöfnum og símanúmerum þeirra sem hittust á fermingarbarnamótinu 1993 og miði með nöfnum, heimilisföngum og símanúmerum nokkurra þeirra sem búsett voru utan Sauðárkróks. Í safninu er einnig úrklippa úr fréttablaðinu Feyki með fyrirsögninni "50 ára fermingarsystkini" sem var fjarlægð úr safninu.
Einnig er A4 blað með teiknuðum útlínum út frá svart hvítri ljósmynd af skólabörnum á Reykjaströnd. Á blaðið er ritað "Mynd fyrir 1940" og "Skólabörn á Reykjaströnd" búið var að skrá eitt nafn á þetta blað.
Yfir heildina er myndasafnið mjög vel varðveitt, ein svart hvít litmyndin hefur verið rifin og hún límd á spjald og litað hefur verið með svörtum lit í eitt horn myndarinnar.
Nýrri myndirnar voru allar í myndaalbúmum og viðeigandi plastvösum sem voru öll grisjuð úr safninu.

Sigurlaug Jónsdóttir (1929-2008)