Aðalgata 16, Sýslumannshús eða Michelsenshús kringum árið 1940. Þar hefur verið stundaður verslunar- og veitingarekstur óslitið frá 193?. Takið eftir skiltunum á húsinu. Myndin er tekin um það leyti er Michelsens fjölskyldan bjó í því. Til hægri var verslun og verkstæði Frank Michelsen en Sápuhúsið vinstra megin. Fjölskyldan keypti húsið árið 1912 og hóf Frank þar verslun og verkstæðisrekstur fljótlega eftir það. Húsið var áður nefnt Sýslumannshús í daglegu tali, enda höfðu þrír sýslumenn búið í því fyrir þann tíma, en formlegt nafn þess var Laufás, eftir prestsetrinu í Eyjafirði.
Hermundur Ármannsson (t.v.) starfsmaður í Mjólkursamlaginu á Sauðárkróki og fósturfaðir hans Guðmundur Sigurðsson smiður. Þeir sitja á bekk fyrir framan Vörubifreiðastöð Skagafjarðar sem stóð við Skagfirðingabraut þar sem nú er hús Búnaðarbanka.
Frá vinstri: Jón Björnsson deildarstjóri í Gránu og Haraldur Hjálmarsson verslunarmaður. Bak við Harald sér í Ole Aadnegaard fyrrverandi lögregluþjón á Sauðárkróki. Myndin er tekin í Gránu. Safn Kr. C. Magnússonar.
Í Syðribúð K.S. frá vinstri: Viðskiptavinurinn er Sigríður Jónasdóttir Syðri-Brekkum. Innan við borðið eru Marta Sigtryggsdóttir og Tómas Hallgrímsson. Safn Kr. C. Magnússonar.
Í Syðribúð K.S. frá vinstri: Viðskiptavinurinn er Sigríður Jónasdóttir Syðri-Brekkum. Innan við borðið eru Marta Sigtryggsdóttir og Tómas Hallgrímsson. Safn Kr. C. Magnússonar.
Hermundur Ármannsson (t.v.) starfsmaður í Mjólkursamlaginu á Sauðárkróki og fósturfaðir hans Guðmundur Sigurðsson smiður. Þeir sitja á bekk fyrir framan Vörubifreiðastöð Skagafjarðar sem stóð við Skagfirðingabraut þar sem nú er hús Búnaðarbanka.
Myndin er tekin við Kjörbúðina við Freyjugötu á Sauðárkróki 1956-1957. Talið frá vinstri: Ragnhildur Óskarsdóttir Sauðárkróki- Hanna Steingerður Helgadóttir (1940-) frá Ólafsfirði- Sveinn Guðmundsson Sauðárkróki og Anna Jónsdóttir Sauðárkróki. Safn Kr. C. Magnússonar.
Viðskiptamannabækur Kolkuós verslunar frá árinu 1913. Halldór Gunnlaugsson skrifar bækurnar en hann vann hjá Hartmanni Ásgrímssyni við ýmis verslunarstörf í Kolkuós frá árinu 1901 til 1916.
Viðskiptamannabækur Kolkuós verslunar frá árinu 1913. Halldór Gunnlaugsson skrifar bækurnar en hann vann hjá Hartmanni Ásgrímssyni við ýmis verslunarstörf í Kolkuós frá árinu 1901 til 1916. Bækurnar eru 11 talsins og eru númeraðar, þó ekki í samfeldri röð svo líklega vantar einhverjar bækur inn í.
Vélritaður verðlisti yfir timburverð hjá KEA í júlí 1934. Listinn er í tveimur eintökum en á öðru eintakinu er búið að strika yfir og handskrifa athugasemdir.
Skjalið er tvær samanbrotnar fjölritaðar arkir sem hafa verið heftaðar saman. Um fjölrit er að ræða. Ástand ágætt, nema ryð eftir hefti. Skjalið inniheldur reikninga Kjötbúðar Siglufjarðar árið 1964.
Gögn er varða líflambakaup Skagfirðinga árið 1993 sem Búnaðarsamband Skagfirðinga hefur haft milligöngu um. Líklega hefur verkefnið verið á könnu Egils Bjarnasonar, starfsmanns sambandsins.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Það varðar bréf til Sigurðar Sigurðssonar vegna verslunarleyfis. Ástand skjalsins er gott.
Grein send Degi á Akureyri þar sem Guðjón fjallar ítarlega um Sauðárkrók, bæjarstjórnina, kirkjuna, íbúana, heilbrigðismál, skólamál, verslun, félags- og skemmtanalíf og atvinnumál.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar beiðni um meðmæli vegna verslunarleyfis. Ástand skjalsins er gott.
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri. Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur frá L.e S.g.b?