Sauðárkrókur

Taxonomy

Code

Scope note(s)

  • Sauðárkrókur er innst við botn Skagafjarðar að vestanverðu, sunnan undir Tindastóli og skammt sunnan við ós Gönguskarðsár. Byggðin var fyrst öll á fremur mjórri malarspildu undir Nöfunum, bröttum malarkömbum upp af bænum, norðan við ós Sauðár, sem þá rann fram úr Sauðárgili og til norðurs um eyrar undir Nöfunum, þar sem nú er íþróttavöllur, sundlaug og tjaldstæði bæjarins. Byggðin færðist síðar suður fyrir ána og rann hún þá gegnum bæinn en síðar var ánni veitt til suðurs þar sem hún kemur úr Sauðárgili og rennur hún nú fyrir sunnan byggðina. Sauðárkrókur er byggður úr landi jarðarinnar Sauðár. Engin byggð var á eyrinni á fyrri öldum og voru verslunarstaðir héraðsins við austanverðan fjörðinn, á Hofsósi, í Grafarósi og Kolkuósi, en árið 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur verslunarstaður. Þá fóru kaupskip að koma þangað. Þar var þó engin föst búseta fyrr en 1871, þegar Árni Árnason járnsmiður kom sér þar upp þurrabúð og settist þar að. Hann seldi bændum sem komu að versla við kaupskipin gistingu og veitingar. Strax árið eftir kom fyrsta fasta verslunin og kaupmenn, iðnaðarmenn og sjómenn settust að á Króknum og síðan ýmsir embættismenn. Sauðárkrókskirkja var reist árið 1892. Fólki fjölgaði hratt á Króknum fyrstu árin og um aldamótin 1900 voru íbúar um 400. Hafnleysi og einhæfir atvinnuhættir komu í veg fyrir að þessi öra fjölgun héldi áfram. Íbúar voru þó orðnir um 1000 þegar bærinn fékk kaupstaðaréttindi 1947. Gönguskarðsárvirkjun var reist á árunum 1947-1949 og hitaveita úr borholu við Áshildarholtsvatn var lögð í bæinn 1953. Hafnaraðstaða var smám saman bætt og er nú töluverð útgerð og fiskvinnsla í bænum.

Display note(s)

Hierarchical terms

Sauðárkrókur

BT Ísland

Equivalent terms

Sauðárkrókur

Associated terms

Sauðárkrókur

27 Archival descriptions results for Sauðárkrókur

27 results directly related Exclude narrower terms

Fey 1690

Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997.
Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.

Feykir (1981-)

Fey 1696

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997.

Feykir (1981-)

Fey 1699

Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997.
Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.

Feykir (1981-)

Fey 1701

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997.

Feykir (1981-)

Fey 1702

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.

Feykir (1981-)

Fey 1703

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.

Feykir (1981-)

Fey 42

Vigdís Finnbogadóttir forseti heimsækir Sauðárkrók og Skagafjörð í ágúst 1991. Hér er hún að gróðursetja birkiplöntu í Sauðárgili. Þekkja má f.v. Þórhall Ásmundsson (með myndavél), Sigurð B Magnússon, Sigurð Jónsson (með sólgleraugu) Halldór Þ. Jónsson sýslumann, Magnús Sigurjónsson (með sólgleraugu) og Steinunni Hjartardóttur.

Feykir (1981-)

GI 1339

F.v. Kristján Eldjárn forseti - Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður - Guðjón Ingimundarson (talar í hljóðnemann) Halldóra Ingólfsdóttir - Sesselja Helga Jónsdóttir - Ingibjörg Kristjánsdóttir - Ásta Kristjánsdóttir og Hákon Torfason bæjarstjóri. Myndin tekin fyrir framan gamla pósthúsið. Guðjón Ingimundarson (1915-2004) talar í hljóðnemann. Forseti Íslands Kristján Eldjárn stendur lengst til vinstri - Jóhann Salberg sýslumaður - Halldóra eiginkona Kristjáns og Ingibjörg Kristjánsdóttir (1922-2010)

GI 384

Kristján Eldjárn forseti Íslands í opinberri heimsókn á Sauðárkróki. F.v. Jóhann Salberg Guðmundsson - Guðjón Ingimundarson - Kristján Eldjárn - Halldóra Ingólfsdóttir - Sesselíja Helga Jónsdóttir (kona Jóhanns Salbergs) - Bogga(Ingibjörg Kristjánsdóttir) kona Guðjóns og Ásta Kristjánsdóttir (lengst t.h.

GI 385

Opinber heimsókn hjá forseta Íslands. Kristján Eldjárn F.v. Jóhann Salberg Guðmundsson - Kristján Eldjárn - Guðjón Ingimundarson (að baki Kristjáni) Halldóra Ingólfsdóttir - Sesselíja Helga Jónsdóttir (kona Jóhanns Salbergs) - Bogga (Ingibjörg Kristjánsdóttir)kona Guðjóns - Ásta Kristjánsdóttir og Hákon Torfason (með gleraugu)

GI 387

Kristján Eldjárn í opinberri heimsókn á Sauðárkróki árið 1969. Aðbaki Kristjáni f.v. Jóhann Salberg Guðmundsson - Guðjón Ingimundason - Sesselíja Helga Jóndóttir (kona Jóhanns Salbergs) - Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir.

GI 390

Guðjón Ingimundarson (1915-2004) flytur ávarp F.v. Kristján Eldjárn - Jóhann Salberg Guðmundsson - Guðjón Ingimundarson - Halldóra Ingólfsdóttir - Helga Jónsdóttir - Ingibjörg Kristjánsdóttir - Ásta Kristjánsdóttir og Hákon Torfason.

GI 540

Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. F.v. Þorsteinn Ásgrímsson - Ingibjörg Sigurðardóttir - Kristbjörg Guðbrandsdóttir - Magnús Sigurjónsson - óþekkt - Björn Sigurbjörnsson - aðrir óþekktir.

GI 541

Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. Við borðið f.v. Brynja Kristjánsdóttir - Ingibjörg Sveinsdóttir - Árni Gislason - Vigdís Finnbogadóttir - úlfar Sveinsson - Elin Tómasdóttir - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir.

GI 542

Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. F.v. Brynja Kristjánsdóttir - Knútur Aadnegard - Ingibjörg Sveinsdóttir - Árni Gíslason - Vigdís Finnbogadóttir - Úlfar Sveinsson - Elín Tómasdóttir - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir.

GI 543

?Kirkjukór Sauðárkrókskirkju syngur. Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands. Kirkjukór Sauðárkrókskirkju.

GI 544

Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands.

GI 545

Hátíðarhöld í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki að fagna komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands.

GI 546

Opinber heimsókn Vidísar Finnbogadóttur - veisla í íþróttahúsi. Konan fyrir miðri mynd er María Kristjana Angantýsdóttir (1948-2006) - Maðurinn sem drekkur úr glasinu er Einar Örn Einarsson (1960-) og í hægra horni er sonur hans Gísli Arnar Elínarson (1983-) María Angantýrsdóttir fyrir miðri mynd (í svörtum jakka og rauðri blússu)

GI 548

Tilgáta um að þessi mannfögnuður tengist heimsókn Forseta Íslands Vigdísi Finnbogadóttur. Hátíðarhöld eru haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

GI 549

Tilgáta um að þessi mannfögnuður tengist heimsókn Forseta Íslands Vigdísi Finnbogadóttur. Hátíðarhöld eru haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

GI 551

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir (í gulri dragt) í opinberri heimssókn í Skagafirði. T. v. Stefán Pedersen (í bláum gallabuxum) Sér í bakið á Þorsteini Ásgrimssyni ftá Varmalandi (í ljósum frakka)

GI 552

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir í opinberri heimssókn í Skagafirði. Vigdís í gulri dragt. Snorri Björn Sigurðsson vinstra megin við Vigdísi. Hægra megin við Vigdísi - Þorsteinn Ásgrímsson - kona ókekkt - Magnús Sigurjónsson (með sólgleraugu) - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir (með bláan hatt)

GI 553

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir í opinberri heimssókn í Skagafirði. F. v. Vigdís Finnbogadóttir - Þorsteinn Ásgrímsson - Ingibjörg Sigurðardóttir - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir. Á bak við sér í Magnús Sigurjónsson og Kristbjörgu Guðbrandsdóttir (við hlið Magnúsar). Aðrir óþekktir.