Sauðárkrókur

Taxonomy

Code

Scope note(s)

  • Sauðárkrókur er innst við botn Skagafjarðar að vestanverðu, sunnan undir Tindastóli og skammt sunnan við ós Gönguskarðsár. Byggðin var fyrst öll á fremur mjórri malarspildu undir Nöfunum, bröttum malarkömbum upp af bænum, norðan við ós Sauðár, sem þá rann fram úr Sauðárgili og til norðurs um eyrar undir Nöfunum, þar sem nú er íþróttavöllur, sundlaug og tjaldstæði bæjarins. Byggðin færðist síðar suður fyrir ána og rann hún þá gegnum bæinn en síðar var ánni veitt til suðurs þar sem hún kemur úr Sauðárgili og rennur hún nú fyrir sunnan byggðina. Sauðárkrókur er byggður úr landi jarðarinnar Sauðár. Engin byggð var á eyrinni á fyrri öldum og voru verslunarstaðir héraðsins við austanverðan fjörðinn, á Hofsósi, í Grafarósi og Kolkuósi, en árið 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur verslunarstaður. Þá fóru kaupskip að koma þangað. Þar var þó engin föst búseta fyrr en 1871, þegar Árni Árnason járnsmiður kom sér þar upp þurrabúð og settist þar að. Hann seldi bændum sem komu að versla við kaupskipin gistingu og veitingar. Strax árið eftir kom fyrsta fasta verslunin og kaupmenn, iðnaðarmenn og sjómenn settust að á Króknum og síðan ýmsir embættismenn. Sauðárkrókskirkja var reist árið 1892. Fólki fjölgaði hratt á Króknum fyrstu árin og um aldamótin 1900 voru íbúar um 400. Hafnleysi og einhæfir atvinnuhættir komu í veg fyrir að þessi öra fjölgun héldi áfram. Íbúar voru þó orðnir um 1000 þegar bærinn fékk kaupstaðaréttindi 1947. Gönguskarðsárvirkjun var reist á árunum 1947-1949 og hitaveita úr borholu við Áshildarholtsvatn var lögð í bæinn 1953. Hafnaraðstaða var smám saman bætt og er nú töluverð útgerð og fiskvinnsla í bænum.

Display note(s)

Hierarchical terms

Sauðárkrókur

BT Ísland

Equivalent terms

Sauðárkrókur

Associated terms

Sauðárkrókur

119 Archival descriptions results for Sauðárkrókur

119 results directly related Exclude narrower terms

GI 2079

Guðmundur Jensson t.h. Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984. Við myndina stendur: Ármann - Ingimar - Guðmundur Hreiðar Jensson (1958-).

GI 2080

Frá vinstri: Ragna Hrund Hjartardóttir - Ingibjörg Guðjónsdóttir í fyrsta sæti og Harpa Guðbrandsdóttir. Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984.

GI 2082

Lengst t.h. Birgir Rafnsson - óþekktur - Guðmundur Jensson - óþekktur. Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984. Frá vinstri óþekktur - óþekktur - Björn Angantýsson - Guðmundur Heiðar Jensson (1958-) Birgir Rafn Rafnsson (1960-).

GI 2083

Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984. Við mynd stendur: Ármann Ingimar og Geir.

GI 28

Sigurjón Þórðarson (1964-). Verðlaunaafhending í sundi. Birgir Guðjónsson þriðji f.v. (í bláum galla).

GI 281

Mögulega Norðurlandsmót í Sundlaug Sauðárkróks. María Valgarðsdóttir næst, í bakgrunni er Sigurlína Hilmarsdóttir, Þorbjörn Árnason og Jón Árnason frá Akureyri bakvið Maríu.

GI 300

Við Sundlaug Sauðárkróks F. h. Birgir Guðjónsson. Ragna Hjartardóttir - (Kristján Gíslason) - Hjördís Jónsdóttir og Álfheiður Ástvaldsdóttir. Aðrar óþekktar.

GI 302

Birgir Guðjónsson (1948-) veitir verðlaun í sundi. Tvíburarnir Þorsteinn Sævar (1958-1994) og Guðmundur Heiðar Jenssynir (1958-)

GI 307

Sundlaug Sauðárkróks - sundmót UMSS í júlí 1984. Á brautum tvö og þrjú eru Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir og Guðmundur Jensson.

GI 308

Sundmót UMSS júlí 1984 - Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir (1960-) á 2 braut og Guðmundur Heiðar Jensson (1958-)

GI 309

Ingibjörg Guðjónsdóttir (1960-) og Ragna Hrund Hjartardóttir (1969-). Hérðasmót í sundi í júlí árið 1984

GI 310

Frá vinstri Alda Bragadóttir - óþekkt - Bryndís Eva Birgisdóttir - Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir (1960-) Sverrir Björn Björnsson (1965-) - óþekkt en lengst til hægri er Guðmundur Heiðar Jensson (1958-)

GI 314

Birgir Guðjónsson (1948-) veitir verðlaun á Gestasundmóti Borgarfjarðar árið 1983 - við viðurkenningu tekur systir hans Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir (1960-) - til vinstri er Þorgerður Sævarsdóttir (1966-) - en lengst til hægri óþekkt.

GI 54

Á sundmóti. Lengst t.v. Sigríður Svavarsdóttir, tilgáta að fyrir miðju sé Soffía Káradóttir, sú þriðja óþekkt.

GI 77

Guðjón Ingimundarson afhendir (Guðmundi Gíslasyni viðurkenningu) Sveinn Ingason lengst til hægri.

Hcab 440

Frá vinstri: Sigmundur Pálsson smiður- Friðrik J. Friðriksson læknir- Svanur Jóhannsson símamaður og Ásgrímur Helgason verslunarmaður. Safn Kr. C. Magnússonar.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

image 78

Ingibjörg Guðjónsdóttir í sundi.

UMSS (1910-

Results 86 to 119 of 119