Sigríður Eggertsdóttir Briem Thorsteinsson (1901-1998)
- S00708
- Person
- 9. júlí 1901 - 2. júlí 1998
Sigríður Briem Thorsteinsson fæddist á Sauðárkróki 9. júlí 1901, dóttir Eggerts Briem þáverandi sýslumanns á Sauðárkróki og Guðrúnar Jónsdóttur frá Auðkúlu. ,,Sigríður stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík 1915-1918. Þá stundaði hún teikninám og handavinnunám í Kaupmannahöfn 1922, enskunám í London 1927 og nam við snið- og handavinnuskóla í Frankfurt am Main 1933. Hún var handavinnukennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1919-1953. Sigríður sat í stjórn Hjúkrunarfélagsins Líknar og Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur 1943-1955, var í nefnd til að gera tillögu um handavinnunám í skólum árið 1947, sat í skólanefnd Húsmæðraskóla Reykjavíkur frá 1950 og var formaður skólanefndar Kvennaskólans í Reykjavík 1955-1983. Sigríður gerðist félagi í Hringnum árið 1921 og í Oddfellowreglunni árið 1939 og starfaði í Rb. stúkunni nr. 1, Bergþóru, meðan heilsan leyfði. Sigríður var sæmd fálkaorðunni fyrir störf sín að líknar- og menningarmálum." Sigríður giftist 6. júní 1953, Magnúsi Sch. Thorsteinsson, forstjóra í Reykjavík.