Rósa Stefánsdóttir (1895-1993)
- S02042
- Person
- 10. okt. 1895 - 14. júlí 1993
Rósa fæddist 10. október á Króksstöðum í Kaupvangssveit í Eyjafirði. ,,Sem unglingur var Rósa í vist hjá hinum nafntogaða presti og fræðimanni, sr. Jónasi á Hrafnagili sem þá var kennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri. Árið 1930 var hún ráðin aðstoðarkona á Sjúkrahúsi Akureyrar, en skömmu síðar ráðskona við Menntaskólann á Akureyri. Hélt síðan til frekara náms í Danmörku og lauk prófi frá merktum hússtjórnarskóla, Ankerhus í Sorø. Næstu árin stundaði hún kennslu í sinni grein við Kvennaskólann á Laugalandi í Eyjafirði og síðar Kvennaskólann og Miðbæjarskólann í Reykjavík. Árið 1940 giftist hún Jóni Þ. Björnssyni skólastjóra á Sauðárkróki sem þá hafði verið ekkjumaður í átta ár, hann hafði átt tíu börn með fyrri konu sinni. Hún sá um þungt heimili þeirra af skörungsskap, en kenndi jafnframt við Barna- og unglingaskóla Sauðárkróks 19421952. Auk færni sinnar í öllum húsmóðurstörfum var Rósa mikill matreiðslusnillingur. Í meira en áratug stóð hún fyrir hótelrekstri á Hólum í Hjaltadal á sumrin eða þar til þau hjónin fluttust til Reykjavíkur 1962. Eftir það var Rósa lengi matráðskona við Hagaskólann í Reykjavík."