Haukur Jósef Jósefsson (1915-1999)
- S01500
- Person
- 11. nóv. 1915 - 3. sept. 1999
Haukur Jósefsson fæddist 11. nóvember 1915 á Vatnsleysu í Viðvíkurhreppi í Skagafirði. Hann var alinn upp á Vatnsleysu og á Hólum í Hjaltadal. Foreldrar hans voru Jósef Jón Björnsson skólastjóri og bóndi og 3.k.h. Hildur Björnsdóttir. ,,Haukur varð búfræðingur frá Búnaðarskólanum á Hólum árið 1932. Stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti 1933-34. Sat í Samvinnuskólanum 1936-38. Sótti námskeið í hagfræði og viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Var við nám og störf í Svíþjóð á vegum Samvinnuhreyfingarinnar frá 1945 til 1946. Haukur hóf störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1.10. 1939. Hann var deildarstjóri byggingarvörudeildar Sambandsins frá 1947 þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Samvinnuhugsjónin var Hauki alla tíð hjartfólgin og tók hann virkan þátt í störfum starfsmannafélags SÍS, var m.a. formaður, stóð að stofnun Sambands starfsmannafélaga samvinnumanna og vildi í hvívetna auka veg samvinnuhreyfingarinnar. Rætur Hauks voru alla tíð í Skagafirðinum og því ekki að undra að meðal áhugamála hans voru hestamennska og kórsöngur." Haukur kvæntist 24.5. 1947 Svövu Jensen Brand, þau eignuðust þrjú börn.