Jósef Jón Björnsson (1858-1946)
- S00710
- Person
- 26.11.1858-07.10.1946
Fæddur að Torfastöðum í Núpsdal. ,,Eftir glæsilegan námferil við Búnaðarskólann á Stend í Noregi 1877-1879, ársdvöl í verklegu búnaðarnámi í Danmörku og leiðbeiningastörf við búnaðarframkvæmdir í Skagafirði, réðst hann skólastjóri og bústjóri að Hólum í Hjaltadal 1882 og hélt svo til 1887. Stundaði hann á því tímabili (1885-1886) nám við Landbúnaðarháskólann í K.höfn og lauk þar prófi með miklu lofi. Árið 1887 keypti hann Bjarnastaði í Kolbeinsdal og gerði þar bú. 1892 fluttist hann í Ásgeirsbrekku. Varð aftur skólastj. og bústj. á Hólum 1896-1902. Þá lét hann af skólastjórn, en var samtímis skipaður fyrsti kennari skólans og gegndi því embætti til 1934. Eftir það reisti hann bú að Vatnsleysu 1934 og bjó þar til 1940. Brá hann þá búi og fluttist til Reykjavíkur 1941. Alþingismaður Skagfirðinga á árunum 1908-1916."
Jósef var þríkvæntur;
- Kristrún Friðbjarnardóttir, þau áttu einn son, sem lést um svipað leyti og móðir hans (1882).
- Hólmfríður Björnsdóttir frá Brimnesi, þau eignuðust sex börn sem komust á legg, Hólmfríður lést eftir aðeins tíu ár í hjónabandi, yngsta barnið þá tæpra tveggja ára gamalt (1894).
- Hildur Björnsdóttir, hálfsystir Hólmfríðar, þau Jósef eignuðust fimm börn.