Print preview Close

Showing 368 results

Archival descriptions
Sölvi Helgason: Skjalasafn Text English
Print preview Hierarchy View:

368 results with digital objects Show results with digital objects

Síða 1, framhlið

Í þessu skjali virðist Sölvi vera að leggja sér lífsreglur. Hann vill temja sér að gleðjast yfir velgengni annara, jafnvel óvina sinna. Hann vill líka geta þolað annara manna mótgjörðir betur en hann gerir en hann viðurkennir þann misbrest sinn að stundum reiðist hann full mikið.
Neðst á síðunni er skýring innan sviga þar sem Sölvi segir að endirinn komi næst á eftir lýsingu af djöflanáttúrunni í Ærlækjarseli sem má finna á bakhlið þessarar síðu.

Síða 4, bakhlið

Þessi síða hefst á níðvísu um Jóa Sölvason, þeirri sömu og birtist sem grafskrift á bakhlið síðu þrjú, en hér hefur öðru erindi verið bætt við. Í framhaldinu fer frásögn sem undirstrikar skoðun Sölva á manninum.

Síða 2, framhlið

Sölvi heldur áfram að fjalla um þá sem hafa níðst á honum og beitt órétti. Á þessari síðu eru allnokkur hópur manna nafngreindur en það eru m.a.: Björn og Anna á Skálá, Hafsteinn á Möðruvöllum (Pétur Havsteen amtmaður) ,Stefán Jónsson, Árni Þorsteinsson, Eggert Briem, Sigfús Skúlason, Jónas Jóhannesson, Ari Arason Flugumýri, Eyjólfur Jóhannesson, Gísli Konráðsson, Jónas Jóhannesson, Jóhann Sölvason í Ærlækjarseli, Kobbi (væntanleg Jakob Pétursson í Breiðumýri), Pétur Pálmason, Jón Bjarnaon,
Sérstaklega tekur hann fram að sýslumaðurinn Eggert Briem og amtmaðurinn Pjetur Havsteen geri sér far um að skipa og hvetja menn í Þingeyjarsýslu, bæði munnlega og skriflega, til að pína, kvelja og þræla Sölva

Síða 3, bakhlið

Sölvi ræðir visku og mátt drottins sem veitir honum styrk í þeim raunum sem hann má þola í kringum réttarhöldin.

Síða 5, bakhlið

Áfram er farið yfir níðingsverkin sem unninn eru á Sölva sem heldur áfram að skrifa þrátt fyrir að skrif hans hafi verið gerð upptæk og brennd. Hann verður hins vegar að gæta þess vel að finna góða felulstaði svo það endurtaki sig ekki. Sölvi er píndur til að vinna 10000 dagstörf hvern dag. Þetta orðalag um störf kemur oft fyrir í textanum og stundum er talað um lögstörf. Farið yfir alla þá vinnu sem hann hefur innt af hendi, í varðhaldinu, án þess að hafa fengið greitt fyrir. Vegna þessara miklu afkasta er hann talinn göldróttur eða að hann sé jafnvel djöfullinn sjálfur því enginn venjulegur maður geti afkastað eins og Sölvi gerir.

Síða 1, framhlið

Sögumaður ávarpar Sölva sjálfan og fer yfir raunir hans. Hvernig íslenskir höfðingjar hafa leikið hann, spillingu þeirra og hvernig þjóðin öll fylgir þeim í blindni. Í lokin kemur sögumaður inn á yfirnáttúruleg afköst Sölva og illa meðferð á honum í þrælavinnu.

Síða 01, framhlið

Fyrirsögnin er mynduð úr nokkrum útgáfum af skrautskrifuðum upphafstöfum Jóns Bergþórssonar.
Frásögnin hefst á því að Sölvi greinir frá bón Jóns Bergþórssonar um að hann riti upphafsstafi hans í skrautskrift. Sölvi hefur væntanlega hafnað þeirri bón ef marka má einkunnina sem Jón fær. Hann úthúðar fleiri mönnum þarna í sveit án þess að nafngreina nein sérstakan en blaðsíðan endar á trúarlegri lofgjörð um mikilvægi þess að fylgja Guði.

Skjal 1, opna 2

Þar sem bréfinu sleppir tekur við texti sem ekki er sendibréf en gæti verið heldur hefðbundin frásögn þar sem sögumaður ávarpar Sölva. Sama mál virðist þó vera til umfjöllunar en níðingur nokkur á Ketilsstöðum er þungamiðja frásagnarinnar. til umfjöllunar. Þessi maður er aldrei nefndur fullu nafni en ýmist kallaður Baulu – Steini eða Ketilgerðis – Steini. Frásögnin segir að hann hafi hrökklast austur vegna skuldar í Reykjavík.
Sögumaður frásagnarinnar segir hann hafa skrifað lygi í vegabréf Sölva. Þetta tengist greinilega þeim atburðum sem urðu til þess að Sölvi hélt ferð sinni ekki áfram suður að Stafafelli í Lóni.

Skjal 1, bakhlið

Grafskrift yfir þremur mönnum Stefáni Þorfinnssyni á Skinnastöðum (1826-?), Jóhanni Sölvasyni (1829-1864?) í Ærlækjarseli og Jónasi Helgasyni í Axarfirði (1827-1873).

Síða 1, bakhlið

Virðist ekki vera sama örkin og síða 1 framhlið. Efst á síðunni er fjallað um stjörnufræði fjarlægir hina ýmsu stjarna frá sólinni. Síðan berst umfjöllunin að höfðingjum og meðferð þeirra á alþýðunni. Umfjöllunin er almenn og engir eru nafngreindir sérstaklega.

Skjal 2, framhlið

Hér les Sölvi amtmanni Havsteen, Eggerti Briem og fleiri nafngreindum mönnum pistilinn. Fyrst lýsir Sölvi umfjöllunarefninu sem hann segir vera þá félaga áður nefnda. Þar á eftir kemur níðvísa um Pétur Havsteen og síðan romsa þar sem ýmsir menn eru nefndir og ókostir þeirra tíundaðir. Landsréttur er Sölva hugleikinn í pistlinum og talar um „landsréttar leysi“. Nokkuð sem gæti tengst dómsmálinu 1854 því það mál fór aldrei fyrir landsrétt af ókunnum ástæðum.

Síða 2, bakhlið

Framhald sama pistils um áðurnefnda höfðingja án þess að nokkurt sérstakt sakarefni sé tiltekið. Sölvi býsnast yfir yfirvaldinu og því óréttlæti og þeim hörmungum sem hann hefur mátt þola af hendi þess.

„þó ekki hafi ég alstaðar, og ekki nema á stöku stað, háðmerkin við nöfnin þeirra, meina ég það þó.“

Skjal 3, bakhlið

Upphafslína:
„Það er haft fyrir satt að ófriðurinn falli yður lang verst af öllum skelfingum og kvölum á sál og líkama iðar Sólon minn!“
Allir voru þar (óljóst hvar) voru við hann bölvaðir en allra verstur var þó Jakob Pétursson. Sölvi segir Jakob þennan hafa framið glæp en komist hjá refsingu með hjálp föðurs síns. Ásakanir sem koma fyrir á fleiri stöðum í þessum handritum, m.a. segir Sölvi hann hafa hrökklast úr Reykjavík.

Skjal 5, framhlið

Á þessari örk bregst Sölvi við frétt sem birtist í Norðra þann 1. Október 1853. Sölvi vitnar orðrétt í greinina en þar var tilkynnt að Sölvi hafi verið handtekinn og væri vistaður hjá Schulesen sýslumanni. Þar eru tilgreindir tveir glæpir sem Sölvi er ásakaður um. Annars vegar þjófnaðarmál í Skagafirði og hins vegar utanskot á fé til tíundar í Skefilstaðahreppi.
Sölvi er ósáttur við þessa umfjöllun og „höfunda Norðra“. Hann telur sig verðskulda að minnst sé á góðverk hans, t.d. peningagjöf sem hann minnist á. Mögulega er textanum ætlað að vera aðsend grein í Norðra.

Skjal 6, framhlið

Kunnuglegar ávirðingar um lygar. Þeir ljúga upp á Sölva og margfalda svo lygarnar og ljúga loks að hann hafi viðurkennt að þær séu sannar.

Skjal 6, bakhlið

Sölvi býsnast yfir lygum á sig saklausan almennt án þess að nefna nein nöfn en minnist þó sérstaklega á prent og skriflegar lygar.

Skjal 11, framhlið

Frásögn af djöflinum og ferðum hans um landið þar sem fylgjendur hans hljóta grimmilega og jafnvel hláleg örlög eftir meðferð hans.
Margt fólk er nefnt í þessari sögu, til dæmis Jóhann Sölvason (1829-1864), Kristján í Ærlækjarseli og annað heimilisfólk þar á bæ og Jakob Pétursson í Breiðumýri (1790-1885).

Skjal 1, bakhlið

Á bakhliðinni er frásögn af einum þessara drauma þar sem djöfullin kemur við sögu og fjall eitt við sem heitir Góafeykir sem er í minna Rússlandi. .
Um miðja síðu byrjar ný frásögn þar sem bæir í heimasveitinni koma við sögu, bæði Skálá og Enni, greinilega vantar aftan á þá frásögn.

Skjal 1, bakhlið

Á þessari síðu er fjallað um vonda vist hjá vondu fólki í Ærlækjarseli. Guð kemur einnig við sögu en fyrir trúna er Sölvi ofsóttur en þangað sækir hann jafnframt styrk sinn.

Skjal 1, framhlið

Á þessari síðu er fjallað um ritstörf Sölva. Greint er frá verki í vinnslu sem er þegar orðin sex þúsund þúsunda arka að stærð. Umfjöllunin beinist að bæði þjáningum Sölva og að yfirnáttúrulegum afköstum hans. Kunnuglegt umræða um hversu mörg þúsund dagstörfum hann getur skilað.

Skjal 1, framhlið

Á þessari síðu er að því er virðist ein níðvísa á þessari síðu og byrjun á annarri. Erfitt er að átta sig á hvort og þá hvar erindi byrja og enda. Virðist vera í belg og biðu en atkvæði hverar línu frekar fá. Seinni vísan sem heldur áfram á bakhlið er stíluð á Kristinn Jóhannesson á Brú í Jökuldal (mögulega Kristinn Jóhannesson sem er fæddur 1820 og deyr 1865. Var um tíma í Skagafirði en er sagður vera á Eiríksstöðum á Jökuldal 1855).

Skjal 1, framhlið

Til sögunnar eru nefndir þeir Þorleifur, andskotinn, sonur hans Þorstein, Jón Daníelsson og Helgi Jónsson. Sagan er öll hin undarlegasta en þeir félagar virðast vera saman komnir í veislu í „neðribyggðum“, þeirri mestu sem haldin hafði verið í lengri tíma. Andskotinn er með hárkollu (parruk) og forláta hatt sem hann notar til að gefa þeim Þorleifi, Jóni og Helga á Kjaftinn. Bæði kollan og hatturinn „bögluðust“ þegar djöfullinn greiddi þeim höggið en hvort tveggja lagaðist aftur þegar hann setti það aftur á hausinn á sér.

Skjal 3, bakhlið

„þannig hélt djöfullinn til vítis með alla lestina sína.“
Sagan endar á því að djöfullinn heldur til síns heima með allar þær sálir sem hann safnaði saman á ferð sinni um Ísland.

Síða 1, framhlið

Hér er einhver Margrét kynnt til leiks en henni er eignað fyrsta ljóðið á síðunni um Sölva. Lausamálið á seinni helming síðunnar er lýsing á kveðskap Sölva um Margréti þessa sem birtist á bakhlið síðunnar.

Síða 2, bakhlið

Á þessari síðu er ljóð sem á að vera lýsing konu á Sölva. Hún vill ekki láta nafns síns getið að sögn sögumanns vegna þess að hún unni Sölva fyrir tólf árum síðan og vildi helst ganga að eiga hann ef hún fengi að velja en því miður voru foreldrar hennar heimskir og vildu fremur gifta hana Jóhanni nokkrum. Það telur sögumaður hafa verið hennar ógæfu enda orðin föl og heilsulítil fimm barna móðir Samkvæmt sögumanni var Sölvi settur í þrældóm til þeirra hjóna þegar hann var ofsóttur í Þingeyjarsýslu. Hún reyndist honum vel en Jóhann alls ekki.
Mögulega gæti Sölvi verið að vísa til Kristínar Helgu Rögnvaldsdóttur en þau virðast hafa verið í einhverju tilhugalífi ef marka má ljóðabréf Sölva til hennar og bréf hans til föður stúlkunnar en þar bað hann um hönd hennar og til vara hönd systur hennar en ekkert varð af þeim fyrirætlunum.
Sjá ljóðabréf:
Sópdyngja: Þjóðsögur, alþýðlegur fróðleikur og skemmtan. II. bindi. (1951). Reykjavík: Víkingsútgáfan-Helgafell, bls. 125-128.

Skjal 1, bakhlið

Á þessari síðu er efni óskylt skrifreglunum en hér fer kunnuglegur reiðilestur yfir illri meðferð á Sölva sjálfum.

Síða 4, opna

Umfjöllun um tugabrot heldur áfram og sýnt með dæmum hvernig beri að nota frádrátt og margföldun í þeim. Í lok síðunnar hefst kaflinn um deilingu tugabrota.

Skjal 1, framhlið

Nokkuð erfitt að lesa vegna rakaskemmda en augljóslega er að sögumaður ávarpar lesandann og boðar honum trú Sölva.

Skjal 1, opna 4

Á þessum síðum heldur áfram umfjöllunin um guðdóminn en nú er áherslan á hið dulda sem opinberast við dauðann. Fullyrt er að guð hafi ekki skapað manninn en lögð er áhersla á mikilvægi orkunnar, geislans eða ljóssins sem guð stendur á bak við og opinberast mönnum eftir dauðann. Allt lífs og liðið grundavallast á þessari orku guðdómsins.
Þó að umfjöllunarefni seinni síðunnar sé það sama og fyrr, þ.e. guðdómurinn er ekki víst að hún sé í beinu framhaldi af fyrri síðunni. En þar er fjallað um mismunandi afstöðu trúarbragða til guðdómsins en umfjöllunin hefst á afstöðu heiðingja en þeir sjá guð ekki sem veru eða kærleika en kannski sem sál heimsins.
Hann minnist líka á heimspekinginn Platon en frummyndakenning hans er grundvöllur nýplatonismans en í kenningum ýmsra trúarbragða og annara hugmyndakerfa er hann áberandi, t.d. hugmyndum kristinna manna um guð.
Því næst fjallar hann um hinn ópersónulega guð gyðingdómsins en eðli hans er hulinn. Ólíkt því sem hugmyndir kristinna manna gerir ráð fyrir en þeim hefur opinberast guðdómurinn í gegnum krist sjálfan.
Siðferðisboðskap kristinnar trúar virðist Sölvi telja meiri, en annara trúarhreyfinga svo sem gyðingdómsins, vegna þess að vilji Guðs er fylgjendum trúarinnar opinberaður gegnum boðskap krists. Í framhaldinu fjallar sölvi um samband trúar og siðferði.

Skjal 1, bakhlið

Umfjöllun um samband siðfræði og trúfræði heldur áfram. Sölvi leggur áherslu á að ritninguna skuli ekki lesa bókstaflega og að í henni felist ekki siðfræðin heldur sé hún henni til stuðning.

Síða 1, framhlið

  1. grein siðfræðibókarinnar. Á þessari síðu fer mest fyrir fullyrðingum sögumanns að bókin sé eftir Sölva speking en ekki eftir Sigurgeir Pétursson á Breiðumýri en það segir sögumaður að Jakob Pétursson á Breiðumýri kalli sig en hann er sakaður um að hafa ritað bók þessa upp og kallað sína en það eins og áður segir þvertekur sögumaður fyrir og segir hana verk Sölva.
Results 1 to 85 of 368