- IS HSk N00301-D-Fey 2119
- Item
- 1981 - 2000
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Bær og kirkja gerð af Svavari Ellertssyni frá Ármúla og var í garðinum við hús hans í Aðalgötunni á Króknum.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Bær og kirkja gerð af Svavari Ellertssyni frá Ármúla og var í garðinum við hús hans í Aðalgötunni á Króknum.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Skagfirskir kennarar á fundi um nýjungar í skólamálum í nóvember 1997. Erla Kjartansdóttir Árskóla, Arnþrúður Heimisdóttir Sólgarðaskóla, Guðrún Hanna Halldórsdóttir Sólgarðaskóla, Sara Regína Valdimarsdóttir Akraskóla, Sigríður Garðarsdóttir Akraskóla og Anna Steinunn Friðriksdóttir, Árskóla.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Tilg. Verið að rannsaka ígulker.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Efst til hægri í grárri hettupeysu er Erla Björk Helgadóttir og Hrund Pétursdóttir vinstra megin við hana. Vinstra megin við Hrund er Hugi Halldórsson. Sigurlaug Bjarnadóttir er efst, vinstra megin við miðju og Kristján Heiðar Viðarsson í rauðri peysu fremst. Elvar Halldór Hallfreðsson er kennarinn fyrir miðju og myndin er tekin í Skólabúðunum á Reykjum.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Krakkar úr árgangi 1978 í Laugabakkaskóla í sólarhrings lestrarmaraþoni veturinn 1993-1994, til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð. Efri röð frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Katrín Þóra Víðisdóttir, Sesselja Aníta Ellertsdóttir.
Neðri röð frá vinstri: Þorgerður Tómasdóttir, Sonja Karen Marinósdóttir og Gunnar Ægir Björnsson.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Krakkar úr árgangi 1978 í Laugabakkaskóla í sólarhrings lestrarmaraþoni veturinn 1993-1994, til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Dæli, Jón Hilmar Karlsson (með gleraugu og bók) og Harpa Ragnarsdóttir, óþekkt.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Sumarhátíð leikskólanna Glaðheima og Furukots sumarið 1997.
Foreldrafélög skólanna stóðu fyrir hátíðinni.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Skagfirskir kennarar á fundi. Á borðinu vinstra megin eru, talið frá vinstri, Fríða Eyjólfsdóttir, Herdís Fjeldsted, Kristín Bjarnadóttir, Hlín Bolladóttir, Stefán Gestsson og Björn Björnsson (í rauðum bol) sem öll störfuðu við Grunnskólann á Hofsósi.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Hólasveinar sitja að tafli í desember 1981. Sveinn Orri t.v. og Þorvarður t.h.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Myndin er líklega tekin á skólaskákmóti. Róbert Línberg Runólfsson frá Brúarlandi í Deildardal til vinstri og Sigurður Gunnarsson frá Siglufirði til hægri.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Krakkar á Sauðárkróki í Friðarhlaupi sem fór kringum landið sumarið 1987. F.v. Tveir óþekktir, Rúnar Arnarson (1974-), Ingi Freyr Ágústson (1975-), Ögmundur Arnarsson (1973-), Ómar Sigmarsson (1976-), óþekktur, Smári Björnsson (1975-) og lengst t.h. Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Matvörubúðin hættir og lokar í lok október 1998.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Unnið að breytingum á Skagfirðingabúð í mars 1990.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Byggingavöruverslun KS, þ.e. Verslunin Eyri, stækkaði og endurbætti verslunina vorið 1985. Af því tilefni var slegið upp veislu.
Kári Björn Þorsteinsson (svartklæddur með glas í hendi) vinstra megin á myndinni.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Lyfsala í heilsugæslustöðinni á Hvammstanga 1985.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Verlsunin Ábær ca 1985-1990.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá opnun Á.T.V.R. á Sauðárkróki í okt. 1983.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Mynd tengd vinnuviku GSS í des. 1985.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Vídeóspólur í Ábæ (1986).
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Laufskálarétt 1995. Ytri-Hofdalamenn að draga.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Laufskálarétt (1995).
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Kaffistofa ? T.v. Svanhildur Elsa Jónsdóttir og önnur f.h. er Engilráð Margrét Sigurðardóttir (1941-) og lengst t.h. er Inga Lovísa Andreassen (1952-). (talkennari).
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Kofabyggð vestan við sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1983. Pála Kristín Bergsveinsdóttir (1974-) með hvíta adidas húfu.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Laufskálarétt 1995. Árdís Björnsdóttir frá Vatnsleysu, lengst t.h. með gesti frá Ástralíu og Noregi.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Stóðréttir í Skarðarétt.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Hrossahópur neðst í Norðurárdal. Bærinn Egilsá handan Norðurár.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Laufskálarétt. Fyrir miðju, Björn Sveinsson á Varmalæk (t.v.) og Ottó Geir Þorvaldsson í Viðvík. Aðrir óþekktir.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Laufskálarétt haustið 1993. Björn Hjálmarsson frá Mælifellsá (t.v. heldur á pelanum) og Sæmundur Hermannsson. Aðrir óþekktir.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Undirfellsrétt í Vatnsdal haustið 1985. Til hægri með gráu kindina gæti verið Magnús Sigurðsson frá Hnjúki. Myndina tók Magnús Ólafsson.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Úr Hlíðarendarétt (hinni nýrri) haustið 1984.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Geirmundur Valtýsson (1944-) skemmtir eldri borgurum á Sauðárkróki í Safnaðarheimilinu við Aðalgötu. Frá vinstri má þekkja Friðfríði Jóhannsdóttur, Sigurlaugu Antonsdóttur, Ágústu Jónasdóttur og Maríu Sveinsdóttur. Þá Geirmundur og Guðmundur Andrésson (1895-1992) dýralæknir.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá söngskemmtun í Húnaveri í janúar 1998. Bjórkallarinn sunginn. Frá vinstri: Þorleifur Ingvarsson, Tryggvi Jónsson frá Ártúnum, Halldór í Tungu, Brynleifur Friðriksson og söngvarinn Sigurður Ingvi Björnsson frá Guðlaugsstöðum, allir félagar í Karlakór Bólstaðahlíðahrepps.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Hestasport stóð fyrir hestasýningunum "til fundar við íslenska hestinn" á Vindheimamelum sumarið 1992. Sýningahópurinn var jafnframt með söngatriði undir stjórn Sigríðar Einarsdóttur. F.v. Björn Sveinsson, Ingimar Ingimarsson, Sigurjón Jóhannesson og Magnús Sigmundsson.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Mynd með grein K-listans í Feyki árið 1990.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Jónsmessuhátíð á Hofsósi 1994. Karlakórinn Heimir syngur í Staðarbjargavík.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðákróks í Sæluviku í Bifröst vorið 1997. Frá verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri: Hilmir Jóhannesson, Ásdís Guðmundsdóttir, Snorri Evertsson, Gísli Magnason, Einar K. Pálsson höfundur lags númer tvö, Guðrún Gunnarsdóttir, Ari Jónsson og séra Sigurður Ægisson á Grenjaðastað, höfundur sigurlags og texta, en lag hans hét "Þú og ég". Guðrún og Ari sungu lagið.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Á miðvikudaginn í dymbilviku vorið 1992 var engu líkara en vorið væri komið á Krókinn. Götusóparar voru í óða önn í bænum og lúðrahljómar ómuðu í gamla bænum síðdegis. Þar var á ferðinni Stórsveit Tónlistarskóla Sauðárkrórks, sem stofnuð var með 20 hljóðfæraleikurum um veturinn. Tónlistarfólkið hélt til vinabæjar-tónlistarmóts í Köge í Danmörku skömmu eftir að myndin var tekin. Með leik sínum á Aðalgötunni var sveitin að sýna þakklætisvott þeim fyrirtækjum sem studdu hana til fararinnar.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Jasskvöld á Sumarsæluviku í Bifröst sumarið 1983 sem Jazzklúbbur Skagafjarðar og Jazzklúbbur Akureyrar stóðu fyrir. Ingimar Eydal (1936-1993) er við hljómborðið og Haukur Þorsteinsson lengst til hægri. Þá er Jóhann Friðriksson fjærst fyrir miðju.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá jasskvöldi í Bifröst sem Jazzklúbbur Skagafjarðar og Jazzklúbbur Akureyrar stóðu fyrir á Sumarsæluviku sumarið 1983. Þekkja má Ingimar Eydal við orgelið (hljómborðið) og Hauk Þorsteinsson með saxafón lengst t.h.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Tilgáta. Frá jazzskemmtun sem Jazzklúbbur Skagafjarðar stóð fyrir í Sælkerahúsinu á Sauðárkróki, líklega árið 1985. F.v. Jónas Björnsson, Sigurður Jónsson, Úlfar Ingi Haraldsson og Ari Einarsson.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá afmælishátíð Karlakórs Bóstaðarhlíðarhrepps sunnudaginn fyrsta í sumri 1985, en þá hélt kórinn hátíðlegt 60 ára afmæli sitt í Húnaveri. Af þessu tilefni æfði kórinn um veturinn lög eftir söngfélaga sína, gamla og nýja. Sum laganna eru vel þekkt og heyrast stundum í útvarpi, en önnur heyrast lítt utan sinnar sveitar. Til afmælisfagnaðarins hafði kórinn boðið gömlum söngfélögum sínum og öðrum velunnurum og var þétt setinn veislusalurinn. Hátíðarræðu flutti Páll Pétursson, alþingismaður á Höllustöðum. Auk hans tóku margir til máls og færðu kórnum gjafir og fluttu honum hamingjuóskir. Í hófinu voru tveir stofnfélagar kórsins, þeir Ágúst Andrésson og Guðmundur Sigfússon. Stjórn kórsins skipuðu: Svavar H. Jóhannsson, Litladal, Aðalsteinn Sigurðsson, Leifsstöðum, Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi, Sigurður Ingvi Björnsson, Guðlaugsstöðum og Tryggvi Jónsson, Ártúnum. Söngstjórar voru Jón Tryggvason, Ártúnum, og Gestur Guðmundsson, Blönduósi. Enda þótt karlakórinn taki nafn sitt af Bólstaðarhlíðarhreppi voru söngfélagar nokkrir búsettir í Svínavatnshreppi og aðrir á Blönduósi. Kórinn hefur alltaf starfað með þrótti og átt sinn þátt í því að félagsandi er góður á starfssvæði kórsins. Í tilefni afmælisins var gefið út afmælisritið Tónar í tómstundum en það er ljósprentun á fyrri hátíðarútgáfum svo og nýr kafli vegna 60 ára afmælisins. Jón Tryggvason söngstjóri minnist afmælisins og lauk með þessum orðum: ,,Við þennan sextíu ára leiðarstein er nú staldrað. Menn hafa komið og farið, skilið eftir sín spor, lagt sinn stein í hleðsluna og gott er til þess að vita að hafa aldrei hitt neinn þann er sér eftir því að hafa eytt allnokkru af frístundum sínum með þessum hætti. Árin hafa streymt og streyma fram eins og áin sem fellum um dalinn. Að megin magni er straumur hennar þungur og hraður eins og eitthvað liggi við, en hægir á myndar lygnur við gróna bakkana. Á vatnsfletinum þar sindrar ljósgeislinn skærast á góðum dögum".
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Karlakórinn Heimir árið 1994.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Jónsmessuhátíð á Hofsósi 1994. Karlakórinn Heimir syngur í Staðarbjargavík.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Krakkarnir í skólalúðrasveit Blönduóss, undir stjórn Skarpéðins Einarssonar. Þau fluttu nokkur lög í upphafi Húsbændavöku á Húnavöku á Blönduósi 1993. "Húsbændavikan heldur reisninni." (Fyrirsögn í Feyki 28. apríl 1993).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Óþekkt veisla.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Kirkjukór Sauðárkrókskirkju syngur á íþróttavellinum á 17. júní, (1993) Fremri röð frá vinstri: Sigríður Ögmundsdóttir (1921-2007), Kristín Bjarney Sveinsdóttir (1948-), Anna S. Pétursdóttir (1942-), Sólborg Björnsdóttir (1932-), Jóhanna Karlsdóttir (1943-), Lára Angantýsdóttir (1938-) og Guðbrandur J. Guðbrandsson á trompet (1964-). Í aftari röð f.v. Sigurdríf Jónatansdóttir (1960-), óþekkt, Björgvin Jónsson (á bak við Kristínu) Guðmundur Ragnarsson, Kári Steinsson (bak við Sólborgu) og Stefanía Stefánsdóttirl (bak við Jóhönnu).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Elín Greta Stefánsdóttir frá Hofsósi leikur á þverflautu.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauárkróks í Bifröst árið 1996. Lengst t.v. er Magnús Kjartansson. Helga Möller og Ari Jónsson fyrir miðju, en þau fluttu sigurlagið, Þúsund kossar. Aðrir óþekktir.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks í Sæluviku vorið 1997. Sigurlagið "Þú og ég" sungu Guðrún Gunnarsdóttir og Eyjólfur Kristjánsson t.v. Höfundur lags og texta séra Sigurður Ægisson frá Grenjaðastað annar f.h. og Helga Sigurbjörnsdóttir (1943-) formaður Kvenfélagsins afhendir verðlaunin.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Fjölmenni var samkomið við Staðarbjargarvíkina á jónsmessuhátíð á Hofsósi 1994 til að hlýða á söng Karlakórsins Heimis. Í lokin söng kórinn eitt lag í Básum, þar sem stuðlabergið er hvað fegurst í víkinni og þar er þessi mynd tekin. Frétt um hátíðarhöldin á Hofsósi og söng Heimis á baksíðu Feykis 29. júní 1994.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá tónleikunum "Stórtónleikar" á Hvammstanga í Félagsheimilinu á Hvammstanga 1993.
Frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir (söngur), Guðmundur Hólmar Jónsson og Sonja Marinósdóttir (hljómborð).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Karlakórinn Heimir á Heimiskvöldi í Miðgarði 9. mars 1996. Einsöngvari Óskar Pétursson (1953-) og stjórnandi Stefán R. Gíslason.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Karlakórinn Heimir á Heimiskvöldi í Miðgarði 9. mars 1996, stjórnandi kórsins er Stefán R. Gíslason (1954-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Ásgeir Eiríksson er mikill og djúpur bassi og talinn ákaflega efnilegur söngvari. Hér syngur hann einsöng með Rökkurkórnum á skemmtun kósins í Miðgarði á annan í jólum 1992.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Fermingarfræðsla á Löngumýri árgangur 1975. Nemendur frá Varmahlíð og Blönduósi. Fullorðnu mennirnir eru t.v. sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og t.h. sr. Árni Sigurðsson á Blönduósi.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Fjölmenni var samankomið á velheppnaðri dagskrá í Bifröst um Pétur Sigurðsson tónskáld og Friðrik Hansen í maí á afmælisárinu 1997. Á myndinni er Sigrún Pétursdóttir (dóttir Péturs tónskálds).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Jónsmessuhátíð á Hofsósi árið 1995, Sigrún Hjálmtýrsdóttir (Diddú) þenur raust sína ásamt Heimismönnum undir styrkri stjórn Stefáns Gíslasonar.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Karlakórinn Heimir syngur á Jónsmessuhátíð á Hofsósi árið 1997 í Staðarbjargavík.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Á þrettándaskemmtun Karlakórsins Heimis í Miðgarði 1998 færði Páll Dagbjartsson (t.v.) heiðursgestum skemmtunarinnar, þeim Davíð Gíslasyni og Gladys Gíslason, þakklætisvott fyrir góða aðstoð í ferð kórsins til Kanada sumarið áður.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Erla Björnsdóttir (t.v.) og Bjarkey Gunnlaugsdóttir (t.h.) leika á flautar á sal Fjölbrautaskólans.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá fyrstu útvarpsendingu krakkanna á Blönduósi í félagsmiðstöðinni Skjólinu haustið 1995. Hallbjörn Hjartarson í miðjum krakka hópnum. Mynd með pistli Rúnars Kristjánssonar 4. október 1995. "Undir Borginni" Nú skipta þorskarnir í sjónum ekki lengur mestu máli.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Útitónleikar á Faxatorgi á Sumarsæluviku 1984. F.v Svavar Sigurðsson, Karl Jónsson (1969) trommur, Kristján Gíslason (1969) og Árni Þór Þorbjörnsson (1970-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Karlakórinn Heimir og Sigrún Hjálmtýrsdótttir syngja í Staðarbjargavík á Jónsmessuhátíð á Hofsósi 1995. Varðskipið Óðinn þéttskipað fólki lónar úti fyrir. Stjórnandi kórsins er Stefán R. Gíslason (1954-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Sigurjón Jóhannesson og Margrét S. Stefánsdóttir syngja í fagnaði í Hótel Varmahlíð í ágúst 1993, þar sem fagnað er heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur sem hefur verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Jafnframt er fagnað stækkun og endurbótum á hótelinu.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Sönghópurinn "Hvers vegna" tekur lagið á Stórtónleikum Tónlistarfélags V-Hún í mars 1993. F.v. Benedikt Ragnarsson (1962-) frá Barkarstöðum, Miðfirði, Kristín Sigfúsdóttir, Rósa Friðriksdóttir, Björn Hannesson og Elínborg Sigurvinsdóttir, Hvammstanga.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Mynd tekin í Stafnsrétt haustið 1982, börn frá Barnaheimilinu á Blönduósi.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
20 ára afmælifagnaður Róberts Baldvinssonar í Bifröst í nóvember 1992. Hljómsveitin Afreg rifjar upp gamla takta: Ari Björn Sigurðsson (1973-), Róbert Páll Baldvinsson afmælisbarnið (1972-), Ellert Jóhannson (1973-), Kristján Kristjánsson (1973-á bak við Róbert) og Fjölnir Ásbjörnsson (1973-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Einn af fyrstu liðum Sæluvikunnar vorið 1999 var söngur Kórs eldri borgarar á Sauðárkróki.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá Húsbændavöku á Húnavöku á Blönduósi vorið 1993. Katrín Sigurðardóttir (Didda Halls frá Húsavík) syngur við undirleik Jónasar Ingimundarson (1944-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Nafnarnir, Kristján Stefánsson (1944-), Gilhaga (t.v.) og Kristján Sigurmundsson leiða söng á sumarmóti Þroskahjálpar að Steinstöðum í Skagafirði sumarið 1998.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Systurnar frá Ártúnum syngja á jónsmessuhátíð á Hofsósi 1995. F.v. Kristín Snorradóttir (1963-), Þórunn Snorradóttir (1967-) og Anna Jóna Snorradóttir (1960-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá vinstri: Stefán R. Gíslason (1954-) og dóttir hans Berglind.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Þá var jafnframt verið að opna hótelið eftir endurbætur og stækkun. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-), Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-) og Gróa Hreinsdóttir (1956-) leikur á hljófærið.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Katrín Sigurðardóttir (Didda Halls frá Húsavík) syngur á "Húsbændavöku" á Blönduósi vorið 1993, undirleikari er Jónas Ingimundarson (1944-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Jón Þorsteinn Reynisson (1988-) ungur harmonikkusnillingur þenur nikkuna á Heimiskvöldi í mars 1998.
.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Á meðan hún var fjarverandi hafði verið lokið við stækkun og endurbætur hótelsins. Við píanóið er Gróa Hreinsdóttir (1956-), söngkonurnar eru til vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-) og Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-).
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Mynd í auglýsingu hjá K- lista í Feyki árið 1990.
Feykir (1981-)
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Stórhátíð var í íþróttahúsinu á Blönduósi haustið 1999, en þar komu saman um 650 börn og unglingar úr skólalúðrasveitum af öllu landinu.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Nokkrar af þeim fiðlum sem Kristinn Sigurgeirsson (1919-2005) á Sauðárkróki hefur smíðað síðan hann hóf fiðlusmíði árið 1989, en hann var sá eini á landinu sem fékkst við þá iðju. Viðtal við hann í Feyki 25. sepember árið 1991.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá vinstri: Geirmundur Valtýsson (1944-) og Álftagerðisbræður, Sigfús (1943-), Óskar (1953-), Pétur (1945-) og Gísli (1951-) Péturssynir.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Frá sýningu Ómars Ragnarssonar (1940-) "Þjóðarspaug í 30 ár" sem sýnd var í Súlnasal Hótel Sögu október 1989.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Rökkurkórinn í Skagafirði ásamt Margréti S. Stefánsdóttur og Sigurjóni Jóhannessyni.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Tilg. Skólalúðrasveitir barna og unglinga af öllu landinu, um 650 manns komu saman í íþróttahúsinu á Blönduósi haustið 1999.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Afmælishátíð á Siglufirði sumarið 1998, þar sem þess var minnst að 180 voru frá því Siglufjörður varð verslunarstaður og 80 á frá því hann fékk kaupstaðaréttindi. Á myndinni leikur Stórsveit síldarplansins fyrir dansi.
Part of Feykir: Ljósmyndasafn
Afmælishátíð á Sauðárkróki sumarið 1997, en þá voru 140 ár frá því bærinn varð verslunarstaður og 90 ár frá því hann varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár frá því hann varð kaupstaður. Langfjölsóttasta samkoma afmælisársins var Geirmundarkvöld í íþróttahúsinu, þar sem yfir 1000 manns mættu, þar á meðal forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Sveiflukóngurinn og hans fólk fór á kostum. Söngkonan er Ásdís Guðmundsdóttir (1963-) og Geirmundur Valtýsson (1944-). lengst t.h. aðrir óþekktir.