Kofabyggð vestan við sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1984. Edda Lúðvíksdóttir (1955-) t.v. við kofann. Íris Baldvinsdóttir (1965-) með gítar og Guðfinna Gunnarsdóttir (1942-2012) situr með barn.
Athöfn að Skarðsá í Sæmundarhlíð þegar minnisvarði um síðasta ábúandann þar, Pálínu Konráðsdóttur var afhjúpaður í október 1999 en það ár hefði hún orðið 100 ára. Það er Ingibjörg Hafstað sem flytur tölu á myndinni.
Frá opnun hársnyrtistofunnar Marion á Hvammstanga 20. mars 1993. F.v. Sara Jónsdóttir, Marion McGreevy eigandi stofunnar, Kristín Þorsteinsdóttir og Laufey Skúladóttir.
Sigurvegarar í 50 km Fljótagöngu (á skíðum) í apríl 1999. Trausti Sveinsson, Bjarnagili var frumkvöðull göngunnar. F.v. Birkir Stefánsson (2. sæti), Haukur Eiríksson (1. sæti) og Magnús Eiríksson (3. sæti).
Frá talningu atkvæða í alþingiskosningunum vorið 1983. Talning í kjördæminu fór fram í Bifröst og var útvarpað. Á myndinni er Katrín Pálsdóttir fréttamaður RÚV við hljóðnemann ásamt óþekktum tæknimanni. Þorbjörn Árnason í bakgrunni.
Sjónvarpsfólk frá bandarísku stöðinni ABC var á ferð í Skagafirði í júní 1992 við tökur á efni í vinsælan sjónvarpsþátt sem heitir "Ferðast með ríka og fræga fólkinu". Fyrir hópnum fór Amanda Bears þekkt sjónvarpsstjarna. Þessi þáttur er sýndur í 25 löndum auk Bandaríkjanna.
Frá heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur forseta til Skagafjarðar í ágúst 1991. Á mydinni er Vigdís að skoða málverkasyningu í Safnahúsinu. Með henni á myndinni t.v. eru hjónin Gyða Jónsdóttir og Ottó Michelsen. Þá má sjá t.h. Björn Björnsson og svo á hlið Halldórs Þ. Jónssonar sýslumanns.
Frá biskupsvígslu sr. Sigurðar Guðmundssonar á Hólum 28. júní 1982. Á myndini er sennilega kór Grenjaðarstaðakirkju að ganga til kirkju, en þar þjónaði Sigurður áður.
Í október 1988 söng Kirkjukór Glerársóknar í Sauðárkrókskirkju. Að messu lokinni söng kórinn ásamt Kirkjukór Sauðárkrókskirkju á tröppum kirkjunnar. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson (lengst til vinstri).
Óþekkt athöfn í Sauðárkrókskirkju. Í röðinni t.v. er Jón Jóhannsson meðhjálpari næstur og Inga Valdís Tómasdóttir þriðja, þá sér bak sr. Hjálmars Jónssonar og sennilega er Ólafur Skúlason biskup fyrir altarinu og sr. Sigurður Guðmundsson t.h.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir koma á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á Alexandersflugvelli að heilsa framáfólki bæjarins.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð á Sauðárkróki í júií 1997. Á myndini eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Kaupfélag Skagfirðinga bauð lífeyrisþegum Samvinnulífeyrissjóðsins í Skagafirði í sumarferð í júlí 1995. Farið var til Siglufjarðar og Fljótin skoðuð, komið við í Lónkoti þar sem verið var að afhjúpa minnisvarða um Sölva Helgason.
Í september 1992 tók til starfa að Dalatúni 6 vistheimili við sérdeildina í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Umsjónamaður var Aðalheiður Reynisdóttir og er hún fjórða frá hægri á myndinni. FJórði frá vinstri er Árni Heiðar Bjarnason.
Mynd frá vöru- og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. Það var nóg að gera í básnum hjá afurðasölu KS við að grilla og bjóða upp á kjötmeti og ost. Páll Friðriksson (1967-) t.h. og Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) grillmeistarar. Til vinstri óþekktur.
Á Sölvabakka haustið 1997. Ferguson 1958 (30 ha) er sá minni , Massey Ferguson 1997 (90 ha) er sá stærri. Sannarlega gamli og nýji tíminn en sá gamli gengur eins og nýupptrekkt klukka, skv. frétt í Feyki.
Loðdýrabændur skoða loðdýrabúið hjá Reyni Barðdal á Gránumóum síðsumars 1996. Reynir Barðdal (1949-) annar frá vinstri að útskýra eitthvað fyrri gestunum. Til vinstri á myndinni er Arvid Kro framkvæmdastjóri Sambands Loðdýrabænda. Lengst til hægri er Kristján Jónsson (1959-) Óslandi. Aðrir óþekktir.
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.
Frá vinstri Ingvi Þór umboðsmaður ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn á Blönduósi og Hallbjörn Kristjánsson sem vann ferð til Ítalíu í happdrætti ferðaskifstofunnar síðla vetrar árið 1998.
Minnisvarði um bræðurna á Víðivöllum, Pétur Pétursson biskup, Jón Pétursson háyfirdómari og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður. Víðivellir er bær í Blönduhlíð í Skagafirði, gamalt höfuðból þar sem oft bjuggu höfðingjar, til dæmis ýmsir sýslumenn Skagafjarðarsýslu. Kirkja var á Víðivöllum til forna en var aflögð 1765. Dálítill jarðhiti er á tveimur stöðum í landi jarðarinnar og þar var steypt upp sundlaug árið 1937-38 og var notuð til sundkennslu fram yfir 1960 en nýtt eitthvað lengur til sunds. Eyðibýlið Örlygsstaðir er í landi Víðivalla. Þar var Örlygsstaðabardagi háður 21. ágúst 1238 og er talið að þar hafi barist hátt í þrjú þúsund manns. Minnisvarði um bardagann var afhjúpaður 21. ágúst 1988, 750 árum eftir að hann var háður. Á Víðivöllum fór fram síðsta aftaka í Skagafirði 1789. Var þar hálshöggvin kona úr Fljótum sem hafði fætt barn sumarið áður, fyrirkomið því og grafið. Frá 1809-1842 bjó þar Pétur Pétursson prófastur með Þóru Brynjólfsdóttur konu sinni og þar ólust upp synir þeirra, þeir Jón Pétursson háyfirdómari, Pétur Pétursson biskup og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður, um skeið forstöðumaður íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn , oft nefndir Víðivallabræður. Minnisvarði um bræðurna var reistur skammt frá bænum 1998. Í Íslandsheimsókn Kristjáns konungs 10. sumarið 1936 kom hann við á Víðivöllum ásamt fylgdarliði og borðaði hádegisverð í tjaldi á Víðivallatúni. Dr. Sturla Friðriksson t.v. á myndinni flytur hátíðarræðu, en hann var einn af hvatamönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Sigurvegarar í opnum flokki á skákþingi Norðurlands 1994. Frá vinstri, Matthías Keld 5,5v, Rúnar Sigurpálsson 5,5v og Stefán Andrésson 5v. Stefán er frá Bolungarvík og Matthías frá Reykjavík og kepptu þeir sem gestir. Fjær t.v. er Haraldur Hermannsson.
Kynningardagur í Hólaskóla vorið 1999. f.v. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.