Listinn er vélritaður á pappírsörk í A4 stærð og telur nemendur við Reykjarhólslaug vorið 1919. Með liggur skýrsla um sundkennsluna. Hún er vélrituð á pappírsörk í A5 stærð. Ástanda skjalanna er gott.
Myndin er teiknuð og lituð á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur handskrifað bréf í A4 stærð, undirritað af Tryggva Magnússyni. Fram kemur að hann sé höfundur myndanna og einnig að hann hafi sent frá sér tvær aðrar tillögur. Myndin sýnir merki Skagafjarðar teiknað á fána. Ástand skjalanna er gott.
Kvittunin er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar sundkennslu Páls í Holts-og Haganeshreppum. Með liggur kvittun fyrir greiðslu vegna afnota af lauginni á Lambanes-Reykjum. Ástand skjalsins er gott.
Minnisblaðið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Líklega rithönd Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns. Það varðar ýmsan undirbúning fyrir Alþingishátíðina. Ástand skjalsins er gott.
Minnisblað í A5 stærð. Virðist einhvers konar uppkast að tillögu og varðar málefni sem sýslunefnd vísar til ungmennafélaganna í sýslunni. Ástand skjalsins er gott.
Minnisblaðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það er gefið út af framkvæmdastjóra Alþingishátíðar og varðar "Nokkur atriði til athugunar fyrir héraðsnefndirnar." Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar meðmæli sýslunefndar til skipan Sölvínu Konráðsdóttur á Mýrum í Fellshreppi sem ljósmóður. Ástand skjalsins er gott.
Meðmælin eru handskrifuð á pappírsörk í A5 stærð. Þau varða umsókn til styrks úr verðlaunasjóði Kristjáns konungs IX. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5broti, tvær skrifaðar síður. Það varðar meðmæli bréfritara með kynbótabúinu á Nautabúi, vegna styrkumsóknar þess.
Tveir handskrifaðir lappar. Varða meðmæli fyrir Sólgborgu Hjálmarsdóttur í starf ljósmóður, annars vegar frá hreppsnefnd og hins vegar frá sýslunefnd. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, tvær skrifaðar síður. Það varðar meðmæli bréfritara með kynbótabúinu á Nautabúi, vegna styrkumsóknar þess.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti, stimplað og undirritað af sýslumanni. Það varðar meðlagsúrskurð í faðernismáli. Ástand skjalsins er gott.
Stílabók í A5 broti, alls 74 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Það varðar sýsluvegagjald og flutning á berklasjúklingi. Ástand skjalsins er gott.
Stílabók í A5 broti, alls 89 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Varðar ástand sýsluvega. Undirritað af Lúðvík Kemp. Bókin er nokkuð óhrein en heil.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Listi yfir hesta, keypta af Sigfúsi kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki, undirritaður af Stefáni. Ástand skjalsins er gott.
Listarnir eru annars vegar 3 vélritaðar síður i folio stærð og hins vegar 3 handskrifaðar síður í folio stærð, hvort tveggja listar yfir gefendur styrkja vegna ljóslækningatækja.
Leyfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar leyfi til lánsábyrgðar til hreppsnefndar Staðarhrepps vegna Ræktunarsjóðsláns. Ástand skjalsins er gott.
Tillögurnar eru er handskrifar á 2 pappírsarkir í folio stærð. Þær varða upptöku marka og samvinnu við Eyfirðinga og Húnvetninga. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar lánsábyrgð á láni fyrir Holtshrepp. Með liggur handskrifað pappírsskjal í A4 stærð. Það varðar sömu lánsábyrgð. Nokkrar rakaskemmdir eru á skjalinu.
Fjórir seðlar í mismunandi stærðum. Kvittanir sem varða leigu á húsnæði og jarðnæði. Virðast allar úr Hofshreppi og tveir þeirra eru merktir sem fylgiskjöl 1 og 2. Ástand skjalanna er gott.
Reikningurinn er ritaður á pappírsörk í folio stærð. Með liggur seðill sem á eru ritaðar athugasemdir vegna reikningsins. Hvort tveggja er undirritað af Jóni Sigurðssyni á Reynistað. Skjölin eru nokkuð skemmd af myglu.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í folio stærð. Um er að ræða lista yfir kostnað við brúagerð á Hofsós 1925. Skjalið er upplitað en ástand þess annars gott.
Yfirlitið er handskrifað á pappírsörk í A3 stærð. Það varðar "kostnað við sjúklingahald héraðslæknisins í Hofsóshéraði árið 1929." Með liggur stutt fylgibréf frá Páli Sigurðssyni, ritað á pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalanna er gott.
Vélrituð pappírsörk í A4 stærð þar sem er sundurliðaður kostnaður vegna sýsluhesthúss. Með liggja reikningur og loforð um greiðslur frá félögum, hreppum og fyrirtækjum. Einnig greiðslukvittun og umsögn um nauðsynlegar viðgerðir. Samtals 5 bleðlar.
Kostnaðaráætlunin er handskrifuð á pappírsörk í folio broti. Með liggja 10 númeruð fylgiskjöl, í folio stærð. Varðar Skarðsveg árið 1928. Ástand skjalanna er gott.
Kortið er teiknað á pappírsörk i A3 stærð og litað með trélitum. Það sýnir land Vallaness og landamerki við aðliggjandi jarðir. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er vélritið pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar jarðabótamælingar Páls Zóphoníassonar árið 1925. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar innkomu vegna tveggja skemmtikvölda, þar sem fluttir voru fyrirlestrar og söngur, til fjáröflunar fyrir sjúkrahús. Ekki kemur fram frá hverjum gjöfin er.
Handskrifuð pappírsörk í A4 stærð. Útdráttur úr starfsskýrslu verkstjóra við hreppsveginn í Sauðárkrókshreppi. Með liggur yfirlit yfir kostnað við hreppsveg. Ástand skjalanna er gott.