Ályktanirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Þær varðar niðurstöður almenns hreppsfundar og snúa að sýsluvegasjóðsgjaldi og greiðslum fyrir sjúklinga. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er handskrifuð á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Hún varðar fjölgun hreppsnefndarmanna í Staðarhreppi. Ryðskemmd er eftir bréfaklemmu á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ábyrgð á ræktunarsjóðsláni fyrir Sölva Jónsson smið og Valdimar Guðmundsson verkamann á Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til Páls Sigurðssonar læknis vegna lánsheimildar til Hofshrepps. Ástand skjalanna er gott.
Álitið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar álit aukanefndar vegna styrks til hafnargerðar. Með liggja drög að nefndaráliti. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar læknisbústað á Hofsósi. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar umsjón með útgáfu markaskrár. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar styrkumsókn til dýralækninganáms. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar styrkumsókn Búnaðarsambands Skagafjarðar. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar beiðni um meðmæli vegna umsókna um verðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Tvær mismundandi útgáfur, merktar mismunandi hreppum. Það varðar sýsluvegasjóð. Ástand skjalsins er gott.
Beiðnin er handskrifuð á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar færslu hreppsvegar milli Keldudals og Hróarsdals. Á aðra örkina er ritað samþykki hreppsnefndar. Ástand skjalsins er gott.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í folio stærð. Hún varðar samþykkt um sýsluvegasjóð. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar fundarboð á sýslufund. Með liggur vélritað fundarboð í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar reikning um hrossasýningar í sýslunni. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Með liggur samhljóða afrit, gert með kalkipappír. Varðar löggjöf um sveitarstjórnakosningar. Ástand skjalsins er gott.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur samhljóða afrit, ásamt fjórum pappírsörkum í A4 stærð sem innihalda tilboð. Varðar grjótflutning vegna Vesturósbrúar. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar styrkbeiðni vegna sundkennslu í sýslunni. Ástand skjalsins er gott.
Tillögurnar eru handskrifaðar á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Með liggur samþykkt á pappírsörk í A5 stærð. Þær varða sundkennslu í Skagafirði. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar áhuga félagsins á landgræðslu og skógrækt og ósk um land til slíks.
Leyfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar leyfi til lánsábyrgðar til hreppsnefndar Staðarhrepps vegna Ræktunarsjóðsláns. Ástand skjalsins er gott.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17,5x21 cm. Bókin er 221 númeraðar síður, þar af 3 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni að hluta. Bókin er innsigluð.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti. Það varðar ágreining milli Hóla-og Viðvíkurhreppa um óskilafjár. Með liggja reglur um fjallskilasjóð fyrir Hóla- og Viðvíkurhreppa, sem eru handskrifaðar á pappírsörk í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Áætlunin er handskrifuð á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Með liggur vélritað afrit, gert með kalkipappír, á pappírsörk í foliostærð. Ástand skjalanna er gott.