Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Bréfritari mótmælir því að "sveitalimur" sá er málið varðar eigi sveitafesti í Holtshreppi.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.
Yfirlit yfir búshelming Margrétar Ólafsdóttur í dánarbúi eiginmanns hennar, Snorra Pálssonar. Um er að ræða ýmsar jarðeignir, flestrar í Holtshreppi, ásamt hlut í fyrirtækjum á Siglufirði, útistandandi skuldir og fleira.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17,5x21 cm. Bókin er 221 númeraðar síður, þar af 3 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni að hluta. Bókin er innsigluð.
Frumvarpið er skráð á pappírsörk í folio broti, alls 2 skrifaðar síður. Með liggur synishörn af skýrslu um fjárskoðanir, í sama broti, einnig tvær skrifaðar síður.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar aflabrest við fuglaveiðar i Drangey vorið 1895 og greinargerð Konráðs um orsakir þessa.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar brúagerð á Gönguskarðsá. Með liggur kostnaðaráætlun fyrir brúargerðina, rituð á pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tværi skrifaðar síður. Það er undirritað af Hermanni Þorsteinssyni á Reykjarhóli og Páli Árnasyni á Ysta-Mói. Bréfið varðar ósk um endurgreiðslu á láni fyrrum Holtshrepps til sýslusjóðs vegna brúargerðar yfir Fljótaá.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Það varðar umfjöllum almenns fundar í Hegranesi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og er bréfið undirritað af Eggert Briem.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, alls 3 skrifaðar síður. Þær varða sýsluvegasjóðsreikning fyrir árið 1899. Undir þær rita Sigfús Jónsson og Jón Jónsson.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða sýslusjóðsreikning fyrir árið 1899. Undir þær rita Ólafur Briem og Zóphonías Halldórsson.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.
Greinargerðin er rituð á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Svo virðist sem það séu tilkvaddir tryggingamenn sem rita hana. Greinargerðin er rituð á dönsku.
Skýrslan er skráð á pappírsörk í foliostærð. Þar gerir skýrsluritari grein fyrir verkþáttum og fjölda dagsverka og launum vegna vegavinnu í Hofshreppi sumarið 1900.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða sýslusjóðsreikning fyrir árið 1901. Undir þær rita Ólafur Briem og Rögnvaldur Björnsson.
Skilagreinin er skráð á pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Skilagrein varðandi Hrafnagil í Laxárdal Ytri, gerð nokkru eftir að ábúendur höfðu flutt til Vesturheims. Hún er samin og undirrituð af Sigurði Ólafssyni á Hellulandi.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar innkomu vegna tveggja skemmtikvölda, þar sem fluttir voru fyrirlestrar og söngur, til fjáröflunar fyrir sjúkrahús. Ekki kemur fram frá hverjum gjöfin er.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk sem er reikningseyðublað Gránufélagsverslunarinnar á Sauðárkróki. Það varðar gjöf bréfritara til sjúkrahúsbyggingar á Sauðárkróki.
Bréf þar sem sýslumaður tilkynnir leiðiréttingar vegna skipta á dánarbúi Jóhanns Jónssonar frá Vaglagerði. Jóhann arfleiddi sýsluna að eignum sínum og skyldu þær renna til sjúkrahúsbyggingar.