Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
- IS HSk N00316-E-A-A-3
- Eining
- 10.03.1939
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur við störf, segir frá lífinu í Reykjavík og spyr frétta að heiman.
Reikningar, nótur og vinnuskýrslur úr fórum Sigurðar Jónassonar
Bókhaldsgögn Sigurðar, reikningar og nótur, mest frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Reikningar og önnur bókhaldsgögn sem tilheyra Gunnlaugi Jónassyni.
Bréf sem tilheyra Gunnlaugi Jónassyni. Bréfin eru aðallega frá þeim tíma sem Gunnlaugur dvaldi á Laugarvatni við nám.
Bréf frá Steinunni Sigurjónsdóttur
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Ýmis gögn sem voru í skjölum Gunnlaugs Jónassonar. Þetta eru siðferðisvottorð fyrir Gunnlaug gefið út af Hallgrími Thorlacius, lyfseðill og félagsskírteini ungmennadeildar Slysavarnafélags Íslands.
Skjöl sem tilheyra Halli Jónassyni frá Hátúni. Steinunn móðir Halls hélt gögnunum til haga. Í skjölunum er að finna einkunnablöð, bréf, reikninga og nótur, ásamt einni innbundinni vasabók.
Hallur Jónasson (1918-2011)
Bréf sem Halli Jónassyni hafa borist á árunum 1929-1941. Bréfin eru af ýmsu tagi, svo sem jólakort, fermingarkveðja og bréfaskriftir á milli bræðra sinna.
Bréf frá Siggu frænku til Halls, engin dagsetning.
Einkunnir Halls frá árinu 1929. Einkunn er gefin fyrir lestur, skrift, réttritun, kristinfræði, landafræði, sögu , náttúrufræði, teikningu og reikning.
Ýmis gögn Halls Jónassonar, bókin Ást og erfiði.
Hefti í stærðinni 15,3x22,5 sm. Heftið er alls 20 bls, auk kápu.
Höfundur er Holger Kjær.
Heftið er áritað af honum en utan á kápu stendur: "Lisa Hallgrima Thorlacius. Med venlig hilsen fra forfatteren."
Blað í stærðinni 38x25 cm, prentað á dagblaðapappír, alls ein opna.
Almanak í stærðinni 7,2x10,3 sm.
Útgefandi er Unga Ísland.
Heftið er alls 44 síður.
Steinunn Sigurjónsdóttir: Skjalasafn
Skjalasafn Steinunnar Sigurjónsdóttur í Hátúni á Langholti. Gögnin eru samsafn af hennar persónulegu gögnum, bréfum og bókhaldi, ásamt gögnum barna hennar. Steinunn hefur haldið utan um gögn barna sinna frá grunnskólagöngu þeirra og fram á fullorðinsár og eru þau þess vegna skráð með hennar eigin gögnum.
Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)
Bréf frá Jóni Norðmann Jónassyni
Jón Norðmann skrifar bréf og færir Steinunni og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur vegna fráfalls Jónasar Gunnarssonar, eiginmanns Steinunnar, síðastliðið sumar.
Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)
Hallur Jónasson skrifar móður sinni bréf frá Vestmannaeyjum, segir frá lífinu í Vestmannaeyjum þar sem hann starfar.
Hallur Jónasson (1918-2011)
Bréf frá Steinunni Hallsdóttur
Bréf frá Steinunni Hallsdóttur á Akureyri. Hún segir Steinunni frá búferlaflutningum suður yfir heiðar og vonast til að þær hittist þar á Hótel Borg og geri sér glaðan dag saman.
Steinunn Hallsdóttir (1877-1946)
Stök umslög sem ekki var hægt að para við bréf.
Ýmis reikningar sem tilheyra búrekstri í Hátúni á árunum 1935-1945.
Minnisbækur varðandi heimilisbókhald
Þrjár minnisbækur sem tengjast utanumhaldi á heimilisbókhaldi heimilisfólksins í Hátúni. T.d. yfirlit um hænsnabúskap, vinnu utan heimilis og fleira.
Hér er að finna ýmis gögn úr búi Steinunnar. Happdrættismiða fyrir sundlaug í Varmahlíð, skömmtunarmiða, jólakort, erfiljóð um Sigurð Jónsson frá Brautarholti, dagskrá frá söngskemmtunar Sigurðar Skagfield, ljóð og fleiri blaðsnepplar sem ekki er ljóst hver skrifaði. Einnig ýmislegt útgefið efni, t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.
Bók í stærðinni 13,2x 18,9 cm. Kápu og fremstu 80 síðurnar vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir.
Bókin er 169 bls.
Bjarni Jónasson (1929-
Vinnubækur frá grunnskólagöngu Bjarna Jónassonar. Bækurnar gefa góða innsýn í nám barna á þessum tíma en um er að ræða vinnubækur í ýmsum fögum. Bækurnar innihalda teikningar, stíla, skriftaræfingar og fleira.
Bækurnar eru ekki merktar með ártali né námsgrein en líklega inniheldur hver bók/mappa öll námsgögn það skólaárið.
Bjarni myndskreytti mörg blöð með fallegum og vel gerðum myndum.
Gögnin eru líklega mynduð einhvertíman á árabilinu 1937-1943.
Skrá yfir unna tíma fyrir Gunnar Gíslason, Glaumbæ.
Eitt tölublað af Barnablaðinu ( 8 árg. 8 tbl.), uppkast að bréfi til Sogurðar Helgasonar, og uppkast að bréfi varðandi áskrift að Barnablaðinu, einnig nokkur tóm umslög merkt Bjarna.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Hrefnu og mynd af heimili hennar.
Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Bréfið skrifar Gunnlaugur frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir Sigurði frá lífinu á Laugarvatni og spyr frétta að heiman.
Gunnlaugur Jónasson skrifar Sigurði bróður sínum. Gunnlaugur skrifar frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Gunnlaugur er í bréfinu að biðja Sigurð fyrir því að senda sér 500 krónur á Laugarvatn. Spyr jafnframt frétta af mæðuveikinni sem nú geysar í Skagafirði.
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur til Sigurðar, jólin 1942.
Bréf til Maddýar frá Sigurði. Líklega er Maddý pennavinkona Sigurðar úr barnablaðinu Æskunni. Sigurður segir henni frá lífinu í Hátúni en þegar þetta er skrifað er faðir Sigurðar nýlega fallinn frá.
Hér eru námsgögn Sigurðar frá grunnskólagöngu hans. Skjölin innihalda teikningar, skriftaræfinga, stíla og ýmsar vinnubækur. Einnig fylgja einkunnir Sigurðar frá árunum 1934-1936.
Bréf frá Halli Jónassyni til Gunnlaugs bróður hans. Hallur segir frá lífinu á Akureyri og spyr frétta úr Skagafirðinum. Hann segir Gunnlaugi að vera í sambandi við sig varðandi kaup á byggingarefni því mögulega sé ódýrara að fá efni á Akureyri og hann geti aðstoðað með flutning.
Námsgögn Gunnlaugs Jónassonar frá Hátúni. Aðallega er um að ræða námsbækur og blöð frá dvöl hans í Laugarvatnsskóla en ein vinnubók er frá grunnskólagöngu Gunnlaugs og inniheldur eina smásögu um tófuna og snigilinn.
Námsgögn Gunnlaugs frá þeirri tíð er hann dvaldi í Laugarvatnsskóla. Um er að ræða stílabækur og reikningsbækur ásamt lausum blöðum af ýmsu tagi. Skjölin gefa ágætis innsýn í þau fræði sem lögð var áhersla á í skólanum á þeim tíma.
Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.
Gögn Guðrúnar Jónasdóttur frá Hátúni sem móðir hennar, Steinunn Sigurjónsdóttir hélt til haga. Gögnin eru reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga og eitt einkunnablað frá árinu 1936.
Guðrún Jónasdóttir (1927-2019)
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Innleggsnótur og reikningar frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.
Reikningar Sigurjóns Jónassonar