Smárit í A5 broti, alls 178 bls auk kápu. Greinin Nýbjörg sem Gísli Jónsson Menntaskólakennari ritaði í Skagfirðingabók nr 23 árið 1994. Ástand ritsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og aðra í A5 stærð. Það varðar samning um skólamál í Hofsós-, Hofs- og Fellshreppum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur umslag. það varðar minningarsjóð Odds Tryggvasonar og verðlaunaveitingar úr honum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar upplýsingar um Guðlaug Bergsson, föður Tryggva. Með liggur blað um upplýsingum um fæðingardag, dánardag og jarðarfarardag Guðlaugs. Ástand skjalanna er gott.
Bæklingurinn er prentaður á pappírsörk í A3 stærð. Hann fjallar um landbúnaðarbifreið sem B&L flutti inn frá Rússlandi, af gerðinni GAZ. Bæklingurinn er nokkuð upplitaður og slitinn í brotunum.
Tvær viðskiptabækur, önnur frá Landsbanka Íslands og hin frá Útvegsbanka Íslands í Vestmannaeyjum. Þær fylgdu gögnum Tryggva og virðast því hafa verið í eigu hans eða Odds, sonar hans. Ástand þeirra er gott.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Með liggur umslag. Það varðar fréttir af heilsufari fjölskyldu Ólafar og biblíulestur. Ástand skjalsins er gott.
Afsalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar afsal erfingja Guðlaugs Bergsson (föður Tryggva Guðlaugssonar) á húseigninni Grunargötu 11 (Pólstjörnunni) á Dalvík. Skjalið er nokkuð upplitað af óhreinindum og krumpað.
Skilagreinin er vélrituð á pappírsörk í A4 stærð. Hún arðar greiðslur vegna Guðlaugs Bergssonar, sem var faðir Tryggva Guðlaugssonar. Ástand skjalsins er gott.
Minnisbók í stærðinni 11,0x7,4 cm. Í hana eru skráðir minnispunktar um matarinnkaup. Bókin er sams konar og sú númer 5 og er ef til vill úr eigu Ólafar, eiginkonu Tryggva. Ástand bókarinnar er gott.
Minnisbók í stærðinni 11,8x9,0 cm. Í hana eru skráðir minnispunktar um matarinnkaup. Bókin er sams konar og sú númer 5 og er ef til vill úr eigu Ólafar, eiginkonu Tryggva. Ástand bókarinnar er gott.
Uppskriftin er vélrituð á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar dánarbú Guðlaugs Bergssonar, sem var faðir Tryggva Guðlaugssonar. Ástand skjalsins er gott.
Tryggingaskjöl úr eigu Tryggva Guðlaugssonar í Lónkoti, alls 8 stk. Frá Brunabótafélagi Íslands og Samvinnutryggingum. Skjölin hafa brotnað upp á hornum og á þeim eru blettir eftir óhreinindi.
Gögn sem tengjast Bréfaskóla SÍS, en Oddur hefur verið þar nemandi. Um er að ræða 10 kennsluhefti, sem eru kennslubréf, vinnubækur og kennslubók um færsluu búreikninga eftir Guðmund Jónsson sem var kennari við Bændaskólann á Hvanneyri. Einnig sex verkefni sem send hafa verið til skólans og verið send til baka með úrlausnum.
Þykk innbundin bók í stærðinni 32,5x20 cm. Bókin virðist tengjast einhvers konar verslunarrekstri, líklega deildaskiptu kaupfélagi en óljóst er hvaða verslun um ræðir. Ástand bókarinnar er gott.
Fylgigögn bókhalds frá árunum 1957-1981 (flest frá árinu 1959). Varða búrekstur í Lónkoti. Sum gagnanna eru upplituð af óhreindingum eða krumpuð, annars er ástand þeirra gött.
Kort og skeyti úr eigu Tryggva Guðlaugssonar Ólafar Oddsdóttur í Lónkoti. 8 jólakort 4 þakkarkort 10 samúðarskeyti og 13 samúðarkort vegna andláts Odds Tryggvasonar. Með liggja fáein umslög. Ástand skjalanna er gott.